Morgunblaðið - 18.06.2020, Qupperneq 8
Þ
að er reyndar bara hægt
að sjá brot af því besta
þegar farið er til Egils-
staða í helgarferð. Það var
mikil upplifun fyrir syni
mína tvo að fara sína jómfrúarferð í
innanlandsflug því hingað til hafa
ferðalögin innanlands snúist um að
hossast um í bíl. Þegar við komum til
Egilsstaða tékkuðum við okkur inn á
Icelandair hótel Hérað áður en við
reykspóluðum af stað á bílaleigu-
bílnum. Okkur leiddist ekki eina mín-
útu. Kíktum á Skálann Diner sem er
innréttaður eins og ekta amerískur
diner, skoðuðum fólk, tjaldstæðið og
fórum í Vök Baths.
Svo keyrðum við til Seyðisfjarðar,
löbbuðum um bæinn og hoppuðum
frá okkur allt vit á ærslabelgnum í
bænum. Það eru örugglega einhverjir
sem líta á slíkan grip sem leiktæki
fyrir börn en þessir ærslabelgir geta
skemmt 43 ára gömlum konum mjög
vel, sérstaklega ef þær eru nánast
hættar að fara á djammið. Yngri syni
mínum fannst þetta mikil upplifun og
síðan við vorum í þessari ferð erum
við að skoða ærslabelgi víða um land
sem við höfum í hyggju að prófa.
Í þessari ferð fórum við líka til
Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar. Löbbuðum um og
rannsökuðum svæðið, skoðuðum
minnismerki um látna franska sjó-
menn á síðastnefnda staðnum. Við
vorum dugleg að stoppa á leiðinni og
skoða, anda og svo skiptumst við á að
vera plötusnúðar í bílnum. Tónlist á
ferðalögum er ekki síður mikilvæg en
nesti enda kemur alltaf eitthvað nýtt í
ljós þegar fólk ferðast saman.
Á milli bíltúra borðuðum við mikið
af mjög góðum mat. Belgísku pönnu-
kökurnar í morgunverðarhlaðborðinu
á Icelandair hótel Hérað standa upp
úr og líka hreindýrasteikin sem hægt
er að fá þar. Þar borðuðum við líka
kjúklingavængi, crème brûlée og ís
með ávöxtum sem smakkaðist allt
hræðilega vel. Svo fórum við í brunch
á Skriðuklaustri og smökkuðum eina
bestu frönsku laukböku sem við höf-
um smakkað en þar var líka hægt að
fá hreindýrabollur, gómsætan fisk og
lerkisveppasúpu sem er víst á barmi
heimsfrægðar fyrir framúrskarandi
bragð.
Áður en við lögðum af stað heim
labbaði ég ein míns liðs niður að Lag-
arfljótinu, sem er fyrir neðan hótelið,
og naut kyrrðarinnar sem þar var að
finna. Næst ætla ég að stoppa lengur
því ein helgi á Egilsstöðum og ná-
grenni er alls ekki fullnægjandi!
Helgarferð
á Egilsstaði
hin mesta
skemmtun
Að fara í helgarferð til Egilsstaða er frekar góð
skemmtun enda þrá flestir einhverja tilbreytingu yfir
sumartímann. Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli og
klukkutíma síðar vorum við lent á Egilsstöðum þar
sem bílaleigubíll beið okkar svo við gætum brunað á
milli staða og reynt að sjá allt!
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Marta María
Seyðisfjörður er heillandi bær.
Hér má sjá litríku stéttina sem
er eitt af kennileitum bæjarins.
Ljósmynd/Helgi Jóhannesson
Það er fjör að fara í helgarferð til
Egilsstaða. Hér er greinarhöfundur
á leið í flug frá Reykjavíkurflugvelli.
Helgi Jóhannesson, sonur
minn, tilbúinn í ferðalagið.
Á Skriðuklaustri er hægt að borða
girnilegar hreindýrabollur, heims-
fræga lerkisveppasúpu og laukböku
sem bráðnar í munninum.
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020
AusturlanD
Skúli Júlíusson
Gönguleiðir f yrir alla
101
QR
kóðar f
yrir
Hvar sem þú kemur
á Austurland!
101 heillandi gönguleið á svæðinu
frá Vopnafirði til Hornafjarðar.
Austurland
- útivistarparadís á heimsvísu.
Minnum á fjallabækurnar á ensku og íslensku.
www.bokstafur.is sigurjon@bokstafur.is