Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 8

Morgunblaðið - 18.06.2020, Side 8
Þ að er reyndar bara hægt að sjá brot af því besta þegar farið er til Egils- staða í helgarferð. Það var mikil upplifun fyrir syni mína tvo að fara sína jómfrúarferð í innanlandsflug því hingað til hafa ferðalögin innanlands snúist um að hossast um í bíl. Þegar við komum til Egilsstaða tékkuðum við okkur inn á Icelandair hótel Hérað áður en við reykspóluðum af stað á bílaleigu- bílnum. Okkur leiddist ekki eina mín- útu. Kíktum á Skálann Diner sem er innréttaður eins og ekta amerískur diner, skoðuðum fólk, tjaldstæðið og fórum í Vök Baths. Svo keyrðum við til Seyðisfjarðar, löbbuðum um bæinn og hoppuðum frá okkur allt vit á ærslabelgnum í bænum. Það eru örugglega einhverjir sem líta á slíkan grip sem leiktæki fyrir börn en þessir ærslabelgir geta skemmt 43 ára gömlum konum mjög vel, sérstaklega ef þær eru nánast hættar að fara á djammið. Yngri syni mínum fannst þetta mikil upplifun og síðan við vorum í þessari ferð erum við að skoða ærslabelgi víða um land sem við höfum í hyggju að prófa. Í þessari ferð fórum við líka til Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar. Löbbuðum um og rannsökuðum svæðið, skoðuðum minnismerki um látna franska sjó- menn á síðastnefnda staðnum. Við vorum dugleg að stoppa á leiðinni og skoða, anda og svo skiptumst við á að vera plötusnúðar í bílnum. Tónlist á ferðalögum er ekki síður mikilvæg en nesti enda kemur alltaf eitthvað nýtt í ljós þegar fólk ferðast saman. Á milli bíltúra borðuðum við mikið af mjög góðum mat. Belgísku pönnu- kökurnar í morgunverðarhlaðborðinu á Icelandair hótel Hérað standa upp úr og líka hreindýrasteikin sem hægt er að fá þar. Þar borðuðum við líka kjúklingavængi, crème brûlée og ís með ávöxtum sem smakkaðist allt hræðilega vel. Svo fórum við í brunch á Skriðuklaustri og smökkuðum eina bestu frönsku laukböku sem við höf- um smakkað en þar var líka hægt að fá hreindýrabollur, gómsætan fisk og lerkisveppasúpu sem er víst á barmi heimsfrægðar fyrir framúrskarandi bragð. Áður en við lögðum af stað heim labbaði ég ein míns liðs niður að Lag- arfljótinu, sem er fyrir neðan hótelið, og naut kyrrðarinnar sem þar var að finna. Næst ætla ég að stoppa lengur því ein helgi á Egilsstöðum og ná- grenni er alls ekki fullnægjandi! Helgarferð á Egilsstaði hin mesta skemmtun Að fara í helgarferð til Egilsstaða er frekar góð skemmtun enda þrá flestir einhverja tilbreytingu yfir sumartímann. Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli og klukkutíma síðar vorum við lent á Egilsstöðum þar sem bílaleigubíll beið okkar svo við gætum brunað á milli staða og reynt að sjá allt! Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Marta María Seyðisfjörður er heillandi bær. Hér má sjá litríku stéttina sem er eitt af kennileitum bæjarins. Ljósmynd/Helgi Jóhannesson Það er fjör að fara í helgarferð til Egilsstaða. Hér er greinarhöfundur á leið í flug frá Reykjavíkurflugvelli. Helgi Jóhannesson, sonur minn, tilbúinn í ferðalagið. Á Skriðuklaustri er hægt að borða girnilegar hreindýrabollur, heims- fræga lerkisveppasúpu og laukböku sem bráðnar í munninum. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚNÍ 2020 AusturlanD Skúli Júlíusson Gönguleiðir f yrir alla 101 QR kóðar f yrir Hvar sem þú kemur á Austurland! 101 heillandi gönguleið á svæðinu frá Vopnafirði til Hornafjarðar. Austurland - útivistarparadís á heimsvísu. Minnum á fjallabækurnar á ensku og íslensku. www.bokstafur.is sigurjon@bokstafur.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.