Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 2

Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 2
Vogafjós Vogabú hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í um 120 ár. Kýr og kindur voru uppistaðan til að byrja með, ásamt nokkrum hænum, tveimur hestum og hundi. Árið 1999 var nýtt fjós byggt og eru nú um 40 kýr og naut- gripir í fjósinu. Kaffihúsið Vogafjós var svo byggt innan við fjósið. Þar fást ljúffengar heimagerðar veitingar en þar er einnig hægt að sjá kýrnar mjólk- aðar og jafnvel bragða á glænýrri mjólk beint úr spenanum. Mjólkað er tvisvar á dag, klukkan 7.30 á morgnana og 17.30 á kvöldin. Fjár- húsin hafa að geyma um 120 kindur. Sauðburður er í maí og ykkur er velkom- ið að koma og sjá lömbin ef þið eruð á ferð- inni á þeim tíma. vogafjosfarmresort.is Hestasport sumarhús Í Varmahlíð, í hjarta Skagafjarðar, eru sumarhús Hestasports. Húsin eru mis- stór, frá 35 fm tveggja manna stúd- íóhúsum upp í 85 fm sex manna hús. Húsin eru ávallt leigð út fullbúin: uppá- búin rúm, handklæði, baðsloppar og súkkulaði á koddanum. Þetta er sjö húsa „örþorp“ í kringum skemmtilegan, upphlaðinn heitan pott sem er draumastaður til að njóta miðnætursólarinnar og út- sýnis yfir víðáttumikinn fjallahring Skagafjarðar. Upplifðu fegurð Norðurlands og fylltu dagana með fjölbreyttum ævintýrum sem svæðið hefur upp á að bjóða. Öll starfsemi Hestasports byggist á persónulegri þjónustu sem endurspeglast í umönnun húsanna og innréttingum, tileink- uðum nokkrum þemum í sveitinni. Þið eruð ávallt velkomin að gista í Hest- húsi, Fjárhúsi eða Fuglahúsi. riding.is/cottages Top Mountaineering Top Mountaineering býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Það má nefna: Kajakferðir fyrir einstaklinga og hópa, allar ferðir eru með leiðsögumanni. Búnaður er flísundirgalli, þurrgalli, skór, vettlingar og bjargvesti, kajakarnir eru mjög stöðugir og öruggir, róið er innan fjarðar með fjöru og notið leiðsagn- ar í ferðinni um sögu síldarbæjarins Siglufjarðar. Gamlar minjar og skipsflök skoðuð, brugðið á leik, siglt upp í fjörur og stokkið af klettum ef aðstæður leyfa. 1 tíma ferð kostar 5.800 kr., 2 tíma ferð kostar 8.500 kr. og er langvinsælust, 3 tíma ferð kostar 13.000 kr. Hægt er að bóka ferðir með smá fyrirvara. Við bjóðum einnig upp á skipulagðar gönguferðir um fjöllin hér í kring, 2-7 tímar með einstaklinga eða hópa, líka er hægt að panta leiðsögn um bæinn. Hægt er að panta siglingu um fjörðinn á bát eða ferð út á Siglunes. topmountaineering.is Circle Air Circle air er útsýnis- og leiguflugfélag sem er staðsett á Akureyri. Félagið var stofnað 2016 og tók þá strax í notkun tvær GippsAero Airvan 8, 8 sæta flugvélar sem henta einstaklega vel til útsýnisflugs. Okkar helsta vara er útsýnisflugtúrar frá Akureyri en einnig leigjum við vélina út í sérferðir hvert á land sem er. Það hefur færst í aukana að vinahópar og fjölskyldur leigi vél út hjá okkur og fari í út- sýnisflug með millilendingu á flugvöllum á afskekktum stöðum þar sem stoppað er og jafnvel grillað ofan í mann- skapinn. Í sumar ætlum við svo að bjóða upp á sértilboð fyrir Íslend- inga svo að þeir geti upplifað okkar undurfagra land frá nýju sjónarhorni. circleair.is Icelandair hótel Akureyri Á Icelandair hótel Akureyri nýt- urðu alls hins besta sem Norð- urland hefur upp á að bjóða. Vinalegt hótel með fallega inn- réttuð herbergi. Ríkulegur morgunverður, frábær stað- setning og fallegt útsýni auka á ánægjulega upplifun og þú skokkar á sloppnum yfir götuna og skellir þér í sund eftir skemmtilegan dag. Útsýnið er til fjalla og skíðaævintýrið er handan við hornið ásamt því að hótelið býður upphit- aðar skíðageymslur. Hót- elgarðurinn er einstaklega notalegur bæði sumar og vetur, með arineldi, skinná- breiðum og yljandi drykk, eða hvers vegna ekki að prófa gómsætt High Tea að breskri fyrirmynd? icelandairhotels.com/is/ hotel/nordurland/ icelandair-hotel-akureyri Hótel Edda Akureyri Höfuðstaður Norðurlands býður upp á flest það sem hugurinn girnist, sögufræg hús, söfn, lystigarð, golf- völl, kaffihús,verslanir og þjónustu. Frá hótelinu er stutt í allar helstu náttúruperlur norðan heiða. Stutt ferjusigling er út í Hrísey og Byggðasafnið á Dalvík geymir m.a. muni Jóhanns Svarfdælings, hæsta Íslend- ingsins. Í Kjarnaskógi er vinsælt útivistarsvæði Akureyr- inga. Hótelið er opið frá 8. júní til 15. ágúst 2020. icelandairhotels.com/is/hotel/nordurland/akureyri Icelandair hótel Mývatn Staðsetning Icelandair hótels Mývatns er frábær og til- valinn dvalarstaður til að skoða Mývatnssveit og ná- grenni. Umhverfi hótelsins er afslappað og gott að slaka á og gera vel við sig í mat og drykk, hvort sem þú kýst að endurhlaða batteríin með samferðamönnum eða hvíla þig í þægilegum herbergjum. Á Mývatnssvæðinu og nágrenni eru margar náttúruperlur sem bjóða upp á einstaka upp- lifun. Staðir eins og Dimmuborgir, Skútustaðir, Hverfjall og Krafla hafa einstakt aðdráttarafl og hafa heillað bæði innlenda og erlenda ferðamenn í gegnum tíðina. icelandairhotels.com/is/hotel/ nordurland/icelandair-hotel-myvatn Upplifun á Norðurlandi Top Mount- aineering. Á ferðavef mbl.is er að finna upplýsingar um spennandi gististaði og afþrey- ingu á Íslandi. Hér er að finna nokkra áhugaverða kosti ef þú ert á ferðinni. Hótel Edda Akureyri. Vogafjós. Icelandair hótel Akureyri. Icelandair hótel Mývatn er ein- stakur staður. Hestasport sumarhús. 2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 Vegahandbókin • Sundaborg 7 • Sími 893 1091 • Uppl. um 3.000 staði • Uppl. um 1.000 menn verur og vætti • Vegakort • Þéttbýliskort • Þjóðsögur • Ítarlegur hálendiskafli • 24 síðna kortabók • Vegahandbókar App • Hljóðbók með þjóðsögum • Hljóðbók með þjóðlögum o.fl. o.fl. Hafsjór af fróðleik um perlur Íslands FULLT VERÐ 4.990- 1.000 kr. afsláttur ef þú kemur með gömlu bókina. Bara í bókaverslunum. Stöðug uppfærsla í 47 ár 1.SÆTI Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Margrét Hugrún margret.hugrun@gmail.com, Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Auglýsingar Berglind Guðrún Bergmann berglindb@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumynd: Jorge Fernandez, Unsplash. Þ að var fjör á okkur vinkonunum þegar við héldum af stað til Siglu- fjarðar á föstudaginn var. Þetta var alls ekki í fyrsta skipti sem við förum saman í ferðalag því á okkar yngri árum vorum við nokkuð hressar. Sem er kannski ekkert skrýtið enda ungar, lausar og lið- ugar og héldum að framtíðarmaka okkar væri að finna á útihátíð- inni Halló Akureyri. Ég mætti mjög vel búin risakæliboxi sem ég fékk lánað hjá foreldrum mín- um. Ég veit reyndar ekki alveg hvað ég ætlaði að geyma í þessu kæliboxi því það var svo stórt að það tók hálft skottið á bílnum mínum og hefði rúmað fol- ald ef það hefði verið meðferðis. Þessa helgi varð allt vitlaust á Akureyri og voru birtar myndir af tjaldstæðinu í öllum fjölmiðlum. Ég man nú reyndar ekki eftir neinum tryllingi en viti menn. Einhver meistari hafði tekið með sér alveg eins kælibox og ég og var það í aðalhlutverki í fréttatímum landsins. Það var mjög einmana á tjaldstæði þar sem tjaldið var fokið og ekkert nema sorp úti um allt. Ég þurfti að nota allan sannfæringarmátt heimsins til þess að koma þeim skilaboðum áleiðis að þetta væri ekki kælibox fjölskyldunnar þarna í öllu ógeðinu. Seinna hafði ég vit á að kaupa mitt eigið kælibox svo ég myndi ekki lenda í þessari vitleysu aftur. Síðan við fórum í þessa Akureyrarferð höfum við farið í nokkur góð ferðalög en ég held að þessi Siglufjarðarferð verði lengi í minnum höfð. Meginmarkmið ferð- arinnar var að rækta vinskapinn án þess þó að vera búnar að skipuleggja hverja einustu mínútu. Í raun var eina planið að prófa veitingastaðinn á Siglunesi sem hafði fengið mikið lof fyrir góðan mat. Á veitingastaðnum ræður marokkóski meist- arakokkurinn Jaouad Hbib ríkjum og verð- ur enginn svikinn af réttunum sem hann töfrar fram. Við enduðum á að panta nán- ast allt af þessum matseðli og hefðum mögulega getað málað bæinn rauðan ef við hefðum ekki verið svona ógurlega saddar. Þegar hægt er að fá eins góðan mat og á Siglufirði er engin ástæða til að taka með sér fullt kælibox af útilegumat. Það var ekki bara góður matur á Siglunesi heldur fengum við geggjaðar pítsur á Kaffi Rauðku, drukkum fram- úrskarnandi kaffi á Frida Chocolate sem rekið er af lista- manninum Fríðu Gylfadóttur. Þar er hægt að fá hand- gerða súkkulaðimola og belgískar vöfflur svo eitthvað sé nefnt. Við vorum einmitt að gæða okkur á þessum töfrandi veitingum, sátum úti í garði, og ég var nýbú- in að segja vinkonum mínum ansi góða sögu þeg- ar landið byrjaði að hristast af fullum krafti. Ég veit ekki hvort þetta voru bara náttúruöflin eða hvort við séum bara orðnar svona göldróttar að þegar við opnum á okkur munninn þá fari allt á hliðina. Eitt er þó víst að ef þið eruð á ferð um Norður- land er lífsnauðsynlegt að prófa þetta allt og svo mæli ég líka með því að þið dansið frá ykkur allt vit á Kaffi Rauðku. Það var nefnilega næstum því jafnmikið stuð þar um helgina og var á Halló Akureyri hérna um árið! Halló Akureyri er víða! Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.