Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 2
Vogafjós
Vogabú hefur verið í eigu
sömu fjölskyldu í um
120 ár. Kýr og kindur
voru uppistaðan til að
byrja með, ásamt
nokkrum hænum,
tveimur hestum og
hundi. Árið 1999 var
nýtt fjós byggt og eru
nú um 40 kýr og naut-
gripir í fjósinu. Kaffihúsið
Vogafjós var svo byggt innan
við fjósið. Þar fást ljúffengar
heimagerðar veitingar en þar er
einnig hægt að sjá kýrnar mjólk-
aðar og jafnvel bragða á glænýrri
mjólk beint úr spenanum. Mjólkað
er tvisvar á dag, klukkan 7.30 á
morgnana og 17.30 á kvöldin. Fjár-
húsin hafa að geyma um 120 kindur.
Sauðburður er í maí og ykkur er velkom-
ið að koma og sjá lömbin ef þið eruð á ferð-
inni á þeim tíma.
vogafjosfarmresort.is
Hestasport sumarhús
Í Varmahlíð, í hjarta Skagafjarðar, eru
sumarhús Hestasports. Húsin eru mis-
stór, frá 35 fm tveggja manna stúd-
íóhúsum upp í 85 fm sex manna hús. Húsin
eru ávallt leigð út fullbúin: uppá-
búin rúm, handklæði, baðsloppar
og súkkulaði á koddanum. Þetta er
sjö húsa „örþorp“ í kringum
skemmtilegan, upphlaðinn heitan
pott sem er draumastaður til að
njóta miðnætursólarinnar og út-
sýnis yfir víðáttumikinn fjallahring
Skagafjarðar. Upplifðu fegurð
Norðurlands og fylltu dagana með
fjölbreyttum ævintýrum sem
svæðið hefur upp á að
bjóða. Öll starfsemi
Hestasports byggist á
persónulegri þjónustu
sem endurspeglast í
umönnun húsanna og
innréttingum, tileink-
uðum nokkrum þemum
í sveitinni. Þið eruð ávallt
velkomin að gista í Hest-
húsi, Fjárhúsi eða Fuglahúsi.
riding.is/cottages
Top Mountaineering
Top Mountaineering býður upp á fjölbreytta afþreyingu. Það
má nefna: Kajakferðir fyrir einstaklinga og hópa, allar ferðir
eru með leiðsögumanni. Búnaður er flísundirgalli, þurrgalli,
skór, vettlingar og bjargvesti, kajakarnir eru mjög stöðugir
og öruggir, róið er innan fjarðar með fjöru og notið leiðsagn-
ar í ferðinni um sögu síldarbæjarins Siglufjarðar. Gamlar
minjar og skipsflök skoðuð, brugðið á leik, siglt upp í fjörur
og stokkið af klettum ef aðstæður leyfa. 1 tíma ferð kostar
5.800 kr., 2 tíma ferð kostar 8.500 kr. og er langvinsælust, 3
tíma ferð kostar 13.000 kr. Hægt er að bóka ferðir með smá
fyrirvara. Við bjóðum einnig upp á skipulagðar gönguferðir
um fjöllin hér í kring, 2-7 tímar með einstaklinga eða hópa,
líka er hægt að panta leiðsögn um bæinn. Hægt er að panta
siglingu um fjörðinn á bát eða ferð út á Siglunes.
topmountaineering.is
Circle Air
Circle air er útsýnis- og leiguflugfélag sem er staðsett á
Akureyri. Félagið var stofnað 2016 og tók þá strax í
notkun tvær GippsAero Airvan 8, 8 sæta flugvélar
sem henta einstaklega vel til útsýnisflugs. Okkar
helsta vara er útsýnisflugtúrar frá Akureyri en
einnig leigjum við vélina út í sérferðir hvert á land
sem er. Það hefur færst í aukana að vinahópar og
fjölskyldur leigi vél út hjá okkur og fari í út-
sýnisflug með millilendingu á flugvöllum
á afskekktum stöðum þar sem stoppað
er og jafnvel grillað ofan í mann-
skapinn. Í sumar ætlum við svo að
bjóða upp á sértilboð fyrir Íslend-
inga svo að þeir geti upplifað
okkar undurfagra land frá nýju
sjónarhorni.
circleair.is
Icelandair hótel Akureyri
Á Icelandair hótel Akureyri nýt-
urðu alls hins besta sem Norð-
urland hefur upp á að bjóða.
Vinalegt hótel með fallega inn-
réttuð herbergi. Ríkulegur
morgunverður, frábær stað-
setning og fallegt útsýni auka á
ánægjulega upplifun og þú
skokkar á sloppnum yfir götuna
og skellir þér í sund eftir
skemmtilegan dag. Útsýnið er
til fjalla og skíðaævintýrið
er handan við hornið ásamt
því að hótelið býður upphit-
aðar skíðageymslur. Hót-
elgarðurinn er einstaklega
notalegur bæði sumar og
vetur, með arineldi, skinná-
breiðum og yljandi drykk,
eða hvers vegna ekki að
prófa gómsætt High Tea að
breskri fyrirmynd?
icelandairhotels.com/is/
hotel/nordurland/
icelandair-hotel-akureyri
Hótel Edda Akureyri
Höfuðstaður Norðurlands býður upp á flest það sem
hugurinn girnist, sögufræg hús, söfn, lystigarð, golf-
völl, kaffihús,verslanir og þjónustu. Frá hótelinu er
stutt í allar helstu náttúruperlur norðan heiða. Stutt
ferjusigling er út í Hrísey og Byggðasafnið á Dalvík
geymir m.a. muni Jóhanns Svarfdælings, hæsta Íslend-
ingsins. Í Kjarnaskógi er vinsælt útivistarsvæði Akureyr-
inga. Hótelið er opið frá 8. júní til 15. ágúst 2020.
icelandairhotels.com/is/hotel/nordurland/akureyri
Icelandair hótel Mývatn
Staðsetning Icelandair hótels Mývatns er frábær og til-
valinn dvalarstaður til að skoða Mývatnssveit og ná-
grenni. Umhverfi hótelsins er afslappað og gott að slaka á
og gera vel við sig í mat og drykk, hvort sem þú kýst að
endurhlaða batteríin með samferðamönnum eða hvíla þig
í þægilegum herbergjum. Á Mývatnssvæðinu og nágrenni
eru margar náttúruperlur sem bjóða upp á einstaka upp-
lifun. Staðir eins og Dimmuborgir, Skútustaðir, Hverfjall
og Krafla hafa einstakt aðdráttarafl og hafa heillað bæði
innlenda og erlenda ferðamenn í gegnum tíðina.
icelandairhotels.com/is/hotel/
nordurland/icelandair-hotel-myvatn
Upplifun á Norðurlandi
Top Mount-
aineering.
Á ferðavef mbl.is er að finna upplýsingar um spennandi gististaði og afþrey-
ingu á Íslandi. Hér er að finna nokkra áhugaverða kosti ef þú ert á ferðinni.
Hótel Edda Akureyri.
Vogafjós.
Icelandair
hótel Akureyri.
Icelandair hótel
Mývatn er ein-
stakur staður.
Hestasport
sumarhús.
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Vegahandbókin • Sundaborg 7 • Sími 893 1091
• Uppl. um 3.000 staði
• Uppl. um 1.000 menn
verur og vætti
• Vegakort
• Þéttbýliskort
• Þjóðsögur
• Ítarlegur hálendiskafli
• 24 síðna kortabók
• Vegahandbókar App
• Hljóðbók með
þjóðsögum
• Hljóðbók með
þjóðlögum
o.fl. o.fl.
Hafsjór af fróðleik um perlur Íslands
FULLT VERÐ
4.990-
1.000 kr. afsláttur ef þú
kemur með gömlu bókina.
Bara í bókaverslunum.
Stöðug uppfærsla
í 47 ár
1.SÆTI
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Margrét Hugrún margret.hugrun@gmail.com,
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Auglýsingar Berglind Guðrún Bergmann berglindb@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumynd: Jorge
Fernandez, Unsplash.
Þ
að var fjör á okkur vinkonunum þegar við héldum af stað til Siglu-
fjarðar á föstudaginn var. Þetta var alls ekki í fyrsta skipti sem við
förum saman í ferðalag því á okkar yngri árum vorum við nokkuð
hressar. Sem er kannski ekkert skrýtið enda ungar, lausar og lið-
ugar og héldum að framtíðarmaka okkar væri að finna á útihátíð-
inni Halló Akureyri.
Ég mætti mjög vel búin risakæliboxi sem ég fékk lánað hjá foreldrum mín-
um. Ég veit reyndar ekki alveg hvað ég ætlaði að geyma í þessu kæliboxi því
það var svo stórt að það tók hálft skottið á bílnum mínum og hefði rúmað fol-
ald ef það hefði verið meðferðis. Þessa helgi varð allt vitlaust á Akureyri og
voru birtar myndir af tjaldstæðinu í öllum fjölmiðlum. Ég man nú reyndar ekki
eftir neinum tryllingi en viti menn.
Einhver meistari hafði tekið með sér alveg eins kælibox og ég og var það í
aðalhlutverki í fréttatímum landsins. Það var mjög einmana á tjaldstæði þar
sem tjaldið var fokið og ekkert nema sorp úti um allt. Ég þurfti að nota allan
sannfæringarmátt heimsins til þess að
koma þeim skilaboðum áleiðis að þetta
væri ekki kælibox fjölskyldunnar þarna í
öllu ógeðinu.
Seinna hafði ég vit á að kaupa mitt eigið
kælibox svo ég myndi ekki lenda í þessari
vitleysu aftur.
Síðan við fórum í þessa Akureyrarferð
höfum við farið í nokkur góð ferðalög en
ég held að þessi Siglufjarðarferð verði
lengi í minnum höfð. Meginmarkmið ferð-
arinnar var að rækta vinskapinn án þess
þó að vera búnar að skipuleggja hverja
einustu mínútu. Í raun var eina planið að
prófa veitingastaðinn á Siglunesi sem
hafði fengið mikið lof fyrir góðan mat. Á
veitingastaðnum ræður marokkóski meist-
arakokkurinn Jaouad Hbib ríkjum og verð-
ur enginn svikinn af réttunum sem hann
töfrar fram. Við enduðum á að panta nán-
ast allt af þessum matseðli og hefðum mögulega getað málað bæinn rauðan
ef við hefðum ekki verið svona ógurlega saddar.
Þegar hægt er að fá eins góðan mat og á Siglufirði er engin ástæða til að
taka með sér fullt kælibox af útilegumat. Það var ekki bara góður matur á
Siglunesi heldur fengum við geggjaðar pítsur á Kaffi Rauðku, drukkum fram-
úrskarnandi kaffi á Frida Chocolate sem rekið er af lista-
manninum Fríðu Gylfadóttur. Þar er hægt að fá hand-
gerða súkkulaðimola og belgískar vöfflur svo eitthvað
sé nefnt. Við vorum einmitt að gæða okkur á þessum
töfrandi veitingum, sátum úti í garði, og ég var nýbú-
in að segja vinkonum mínum ansi góða sögu þeg-
ar landið byrjaði að hristast af fullum krafti. Ég veit
ekki hvort þetta voru bara náttúruöflin eða hvort
við séum bara orðnar svona göldróttar að þegar
við opnum á okkur munninn þá fari allt á hliðina.
Eitt er þó víst að ef þið eruð á ferð um Norður-
land er lífsnauðsynlegt að prófa þetta allt og svo
mæli ég líka með því að þið dansið frá ykkur allt
vit á Kaffi Rauðku. Það var nefnilega næstum því
jafnmikið stuð þar um helgina og var á Halló
Akureyri hérna um árið!
Halló Akureyri er víða!
Marta María Jónasdóttir