Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 4

Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 22.900KR ÁMANN REYKJAVIK SUMMIT ÞYRLUFLUG FREKARIUPPLÝSINGAR OGBÓKANIRÁ INFO@NORDURFLUG.IS Sumar tilbo F oreldrar hennar, þau Anna Haukdal og Brynjar Víkingsson, tilheyrðu stórum vinahópi og Birgitta segir að stemningin á tjaldstæðunum hafi verið dásamleg í denn þar sem hún lék sér í náttúrunni með systkinum og vinum, sumardægrin löng. „Við fjölskyldan ferðuðumst mikið um land- ið en langoftast fórum við í útilegur í Hljóða- klettum, Ásbyrgi og Vaglaskógi. Auðvitað var ekkert um fellihýsi og hjólhýsi á tjaldstæð- unum í þá daga eins og tíðkast í dag. Bara gamaldags tjöld, útilegustólar og prímusar ásamt leikjum og söng,“ segir Birgitta sem hefur fetað í fótspor foreldra sinna og er dug- leg að ferðast um landið með eiginmanninum Benedikt Einarssyni og börnunum þeirra, þeim Sögu Júlíu 4 ára og Víkingi Brynjari 11 ára. „Við förum norður á hverju ári. Börnin elska þessar ferðir og það gerum við líka – gætum eiginlega ekki hugsað okkur sumarið án þeirra,“ segir Birgitta og bætir við að Hljóða- klettar hafi átt sérstakan stað í hjarta hennar alveg frá því hún var barn. „Ég á bara svo dásamlegar minningar um útilegur við Hljóðakletta. Við tókum með okk- ur nesti og fórum í gönguferðir, syntum í fal- lega læknum og svo enduðu dagarnir á hóp- söng og leikjum þar sem fullorðnir og börn tóku saman þátt. Hljóðaklettar eru stórkostleg náttúruperla og ég hef margoft farið með fjöl- skylduna og börnin þangað, ýmist í útilegur eða gönguferðir.“ Uppáhaldsgönguleiðin er um Hljóðakletta Það eru ekki bara góðar æskuminningar sem hafa áhrif á upplifun Birgittu af Hljóða- klettum og umhverfinu þar í kring. Hún segir að þar liggi einhver óútskýranlega góð orka í loftinu. „Ég fyllist alltaf af lotningu þegar þangað er komið og það er engu líkt að tengjast nátt- úrunni á þessum stað.“ Birgitta segir að iðkun núvitundar skipti sig miklu máli og nefnir í því samhengi hversu gott það sé að upplifa hana í faðmi náttúrunnar. „Fyrir mér er núvitund alveg einstaklega mikilvæg fyrir andlega heilsu og ég er orðin voða mikil jógakona. Náttúran og útivist eru besta leið sem hægt er að hugsa sér til að hlaða batteríin og tengjast sjálfum sér. Þegar ég fer í fjallgöngur þá gæti ég þess alltaf að staldra við, taka inn náttúruna og tæma hugann. Það er svo mikilvægt að stoppa. Stundum tek ég líka nokkrar jógateygjur og leyfi börnunum að hlæja að mér á meðan,“ segir hún og skellir upp úr. „Uppáhaldsgönguleiðin mín hefur allt- af verið um Hljóðakletta og sú lengri, þar sem gengið er frá Hljóðaklettum niður í Ásbyrgi, er alveg stórkostleg,“ segir Birgitta. Manndómsvígsla í Ásbyrgi Hún rifjar upp skemmtilega sögu frá Ás- byrgi sem eiginlega mætti líta á sem hálfgerða manndómsvígslu í boði náttúrunnar. „Ég var svona sirka átta ára. Var í útilegu með fjölskyldunni og var þarna eitthvað á vappi þegar ég villtist allt í einu og tapaði al- veg áttum. Í minningunni var ég þarna ráfandi um í gríðarlega stórum og yfirþyrmandi skógi þó þetta sé í raun bara lítill birkiskógur,“ segir hún og hlær. „Ég man að mér leið eins og ég væri föst í völundarhúsi og vissi ekkert í hvaða átt ég átti að fara. Ekki bætti það svo úr skák þegar ég gekk allt í einu að gömlu tófugreni og allt í kring voru nöguð kindabein. Þarna varð ég alveg rosalega hrædd, tók sprettinn og hljóp og hljóp þar til ég rataði til baka. Það eina sem ég sá fyrir mér var Mikki refur og Syntu í læknum og enduðu dag- ana á hópsöng „Í minningunni var það nánast hverja helgi á sumrin sem pakkað var í skottið á bílnum, strax eftir vinnu á föstudög- um, og brunað af stað í útilegur,“ segir Húsvíkingurinn Birgitta Haukdal sem á margar yndislegar æskuminn- ingar úr sveitaferðum í sumarsælu á Norðurlandi. Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com Birgitta Haukdal nýtur lífsins í Geo- sea-sjóböðunum á Húsavík. Birgitta er hér ásamt Sögu Júlíu dóttur sinni.  SJÁ SÍÐU 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.