Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Ekta súrdeig
579kr/stk
Char broil pizzasteinn
5.599kr/stk
GERÐU GÓÐA PIZZU
ENN BETRI MEÐ
CHAR BROIL
PIZZASTEININUM
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Avókadó-kóríander-
sósa
1 avókadó
5 msk. grísk jógúrt
2 tsk. chili flögur
1 límóna, börkur og safi
3 msk. kóríander
1 hvítlauksgeiri
salt
Allt sett saman í matvinnsluvél og
maukað saman, smakkað til með
salti. Best er að borða þessa strax.
Salsa blanca-sósa
850 g Hellmanns mayo
2 msk. sykur
1 dolla sýrður rjómi 18%
6 hvítlauksgeirar, zestaðir eða
pressaðir
½ msk. chili flögur
½ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. cayenne pipar
½ tsk. salt
1 tsk. oregano
2 msk. sriracha-sósa
½ límóna, safinn
1 dl mjólk
Öllu blandað saman og látin
standa í ísskáp í 3 klukkutíma áður
en hún er borðuð.
Chimichurri-sósa
4 hvítlauksgeirar
3 msk. steinselja
3 msk. ferskt oregano
1 msk. timían
½ msk. cayenne-pipar
1 msk. kúmínduft
1 msk. reykt paprika
1 msk. salt
2 msk. balsamedik
3 stk. vorlaukur
1½ bolli ólífuolía
Allt skorið mjög smátt og síðan
marið saman í mortéli. Hún er best
ef hún fær að bíða í 2-3 tíma áður
en hún er borðuð.
Tzatziki-sósa
1 dolla grísk jógúrt
1 msk. dill
1 gúrka
2 hvítlauksrif
½ krukka dalafetaostur og olía
½ sítróna, börkur
salt
pipar
Gúrkan skorin í fernt á lengdina
og vatnsmesti parturinn er skorinn
úr. Síðan er allt saman sett í mat-
vinnsluvél og smakkað til með salti
og pipar.
Kryddmikil salsasósa
6 meðalstórir tómatar
½ rauðlaukur
1 dl kóríander
1 pakki spicy salsa mix
Tómatarnir, laukurinn og kóríand-
er skorið smátt og sett í skál, þá er
spicy salsa-mixinu blandað saman
við og salsað er tilbúið.
Trufflu chili bernaise
1 dl eggjarauður, gerilsneyddar
500 g smjör
1 tappi bernaise-essens
(tappinn af essensflöskunni)
2 tsk. estragon
1 tsk. sriracha sósa
½ tsk. truffluduft
Salt
Eggjarauðurnar þeyttar þar til
þær eru léttar, ljósar og þykkar.
Smjörið brætt á lágum hita. Síðan
er smjörinu hellt rólega saman
við rauðurnar og hrært í
á meðan. Þá er sósan
krydduð með ess-
ensinum, estragon-
inu, sriracha-
sósunni og trufflu-
duftinu og smökkuð
til með salti.
Grillsósur