Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 3
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 3
HEIL VERÖLD AÐ UPPGÖTVA
• Trufflukrem
• Truffluduft
• Trufflusósa
• Trufflu balsamik
• Trufflusmjör
• Truffluolía
Kjúklingabringur
Sojasósa
Sesamolía
Sesamfræ
BBQ-sósa
Græn paprika
Rauð paprika
Ananas
Vorlaukur
Límóna
Tímían
✽ Skerið kjúklingabringurnar niður í munnbitastóra bita. Skerið því næst
paprikurnar og ananasinn niður í sambærilega bita.
✽ Takið vorlaukinn og skerið rótarendann af. Síðan skerið þið um það bil 3
cm langan bita. Reynið að ná tveimur. Geymið afganginn af lauknum.
✽ Skerið límónu í báta.
✽ Byrjið á að marinera kjúklinginn í sojasósu, sesamolíu og sesamfræjum.
Látið standa í góða stund. Ekki er verra að marinera kvöldið áður og láta
standa yfir nótt í kæli.
✽ Þræðið því næst kjúklingabita og grænmeti til skiptis upp á spjót.
✽ Penslið spjótin með bbq-sósunni og sáldrið að lokum sesamfræjum yfir.
✽ Grillið uns tilbúið.
✽ Á sama tíma skal grilla endana af vorlaukunum og límónusneiðarnar.
✽ Berið fram á stórum disk og setjið vorlaukinn neðst, raðið spjótunum of-
an á og skreytið loks með grilluðum límónubátum og fersku tímíani.
Ljósmyndir/Völundur Snær Völundarson
Kjúklinga-
yakitori