Morgunblaðið - 16.07.2020, Page 6
Fylltir
sveppir
8 sveppir, frekar stórir
1 pakki rjómaostur með
karamelliseruðum lauk
3 sterkar chorizo-pylsur
✽ Pylsurnar skornar í litla bita og
steiktar á pönnu, þá er mesta fitan
sigtuð af þeim og þeim blandað
saman við rjómaostinn. Stöngullinn
tekinn úr sveppunum og þeim velt upp
úr olíu. Þá eru þeir fylltir með rjóma-
ostafyllingunni og grillaðir á miðlungs
til heitu grilli í um það bil 10 mínútur.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
1 dolla mozzarella-perlur
1 askja kirsuberjatómatar
2 msk. basil
1 stk. avókadó
1 stk. maískólfur / 1 dl maísbaunir
góð ólífuolía
salt
✽ Tómatarnir skornir í helm-
inga, avókadóið skorið í litla
bita, maískólfurinn grillaður
og baunirnar skornar af
kólfinum, basilblöðin skorin í
ræmur. Síðan er öllu blandað
saman og smakkað til með
ólífuolíu og salti.
Sumarlegt caprese-salat
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
MARGVERÐLAUNAÐAR
BBQ SÓSUR FRÁ GUY FIERI
Nú líka
fyrir
Buffaló
vængi
1 kg kartöflur
1 krukka Hellmann’s majónes
(800 g)
3 msk. sætt sinnep
1 msk. hunang
safi úr ½ sítrónu
1 rauð paprika
1 rauður chili-pipar
1 rauðlaukur
2 maískólfar
½ dl steinselja smátt skorin
1 pakki beikon, um 250 g
✽ Kartöflurnar soðnar í vel söltu vatni og kældar. Á
meðan er sósan búin til. Majónes, sinnep, hunang,
sítróna og salt hrært saman.
✽ Beikonið er bakað eða steikt þar til það er orðið
stökkt. Best er svo að grilla maískólfana, það gefur
salatinu sérlega gott bragð, en einnig er hægt að
sjóða þá.
✽ Paprika, chili, rauðlaukur, steinseljan og beikonið
skorið smátt, maísbaunirnar skornar af kólfunum.
Kartöflurnar eru einnig skornar, en í stærri bita. Öllu
er þessu blandað saman við sósuna og smakkað til
með salti.
Kartöflusalat Anítu