Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
S
igríður Þóra býr í Noregi í bænum Moss.
Hún hefur búið þar í átta ár með fjölskyldu
sinni og starfar sem hjúkrunarfæðingur í
heimahjúkrun.
Hún og Símon Darri Steinarsson eigin-
maður hennar eiga þrjú börn saman, þau
Söru Lind sem fermdist í fyrra, Jónínu Björk og Hilmar
Darra.
Fjölskyldan heldur sterka tryggð við fólkið sitt á Ís-
landi.
„Við eigum frábæra fjölskyldu á Íslandi. Ég er ættuð
frá Ólafsfirði þar sem foreldrar mínir búa ennþá ásamt
yngsta bróður mínum og fleiri ættingjum en ég á einn
bróður á Akureyri og einn í Reykjavík. Maðurinn minn
er ættaður frá Dalvík og Ólafsfirði en uppalinn á Ólafs-
firði og stór hluti af ættinni hans býr á Dalvík en for-
eldrar hans búa í Reykjavík ásamt tveimur systrum
hans. Hann á einnig tvö önnur systkini hérna í Noregi.“
Fjölskyldan heimsækir Ísland á hverju ári en á einnig
stóran hóp í kringum sig í Noregi.
„Fjölskyldur okkar eru líka duglegar að heimsækja
okkur út til Noregs. Sara Lind hefur einnig farið einu
sinni ein til Íslands yfir sumarið til að vinna sér inn pen-
ing og vera með ömmum og öfum. Það heppnaðist rosa-
lega vel þannig að í sumar munu öll þrjú börnin fara án
okkar til Íslands til að vera með fjölskyldunni þar, en
okkur finnst mjög mikilvægt að börnin tengist þeim og
viðhaldi tungumálinu og kynnist landinu okkar.“
Fermingin kallaði á mikið samstarf
Sigríður Þóra segir að ferming Söru í fyrra hafi
heppnast einstaklega vel.
„Fermingin kallaði á mikið samstarf við fólkið okkar á
Íslandi, en undirbúningurinn gekk vel enda gerðum við
allt með miklum fyrirvara. Sara Lind fékk að ákveða
hvort hún vildi fermast heima á Íslandi eða bíða eitt ár
og fermast með bekkjarfélögum í Noregi. Í Noregi
fermast börn einu ári seinna. Það var engin spurning í
hennar huga, hún vildi fermast á Íslandi. Hún sótti
fermingarfræðslu í Ósló, í íslenska söfnuðinum þar. Við
vorum afar fegin þeirri ákvörðun þar sem fermingar eru
frábært tækifæri til að fá ættingja og vini saman á einn
stað til að fagna merkum áfanga. Hún fermdist í Ólafs-
fjarðarkirkju. Presturinn okkar þar, séra Sigríður Jóns-
dóttir, skírði Söru á sínum tíma. Við foreldrarnir vorum
bæði fermd í Ólafsfjarðarkirkju og giftum okkur þar
líka árið 2016. Einnig eru hin börnin okkar, Jónína
Björk og Hilmar Darri, skírð í þessari kirkju. Enda er
hún afar sérstök fyrir okkur og einstaklega falleg.“
Einstaklega ljúfur og yndislegur unglingur
Sigríður Þóra segist þakklát fyrir Söru Lind, ferming-
arbarnið, enda sé hún einstaklega ljúf og yndislegur
unglingur.
„Hún er hógvær og róleg en á sama tíma með stórt og
gott skap, sem er nauðsynlegt. Hún er listræn, sam-
viskusöm, vinmörg og afar heimakær.
Fermingarveislan var haldin í safnaðarheimilinu á
Dalvík. Okkur fannst gaman að geta tengt bæði Ólafs-
fjörð og Dalvík við ferminguna en brúðkaupsveisla okk-
ar hjónanna var einmitt haldin þar líka þannig að við
þekktum vel til á staðnum. Þar er æðislegur salur fyrir
veislur með góðri aðstöðu og aðeins 15 mínútna keyrsla
frá Ólafsfirði til Dalvíkur.
Veislan fór vel fram með góðri mætingu þó svo að
margir kæmust ekki sem eðlilegt er enda eigum við ætt-
ingja og vini frá öllum landshlutum og margir eru hér í
Noregi. Fermingarbarnið fékk að ráða ferðinni í sam-
bandi við veisluna og hún vildi hafa lambapottrétt sem
vakti mikla lukku og kaffi og kökur á eftir.
Sara valdi klæðnaðinn sjálf og fann sér kjól hjá H&M
og jakka frá New Yorker. Skóna keypti hún á Nelly-
Sara ákvað að bregða á leik í fermingarmyndatökunni.
Draumurinn að
fermast á Íslandi
Sigríður Þóra Hilmarsdóttir og fjölskylda létu draum dóttur sinnar
Söru Lindar verða að veruleika þegar þau héldu skemmtilega ferm-
ingarveislu á Íslandi í fyrra. Fjölskyldan býr í Noregi en náði að láta
allt ganga upp með aðstoð fagfólks innan fjölskyldunnar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Falleg lýsing, litir og góður matur er lykillinn að
góðri veislu að margra mati.
Sara fékk að ráða þema, lit og veitingum í veislunni.
Fjölskyldan fékk mikla aðstoð frá fólkinu
sínu á Íslandi.
Sigríður Þóra Hilmarsdóttir og
Símon Darri Steinarsson ásamt börn-
um sínum þremur þeim Söru Lind,
Jónínu Björk og Hilmari Darra.
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR
Fabrikkusmáréttir
í fermingarveisluna
HEITaR lundir
Heitar kjúklingalundir (1 kg.)
Bornar frammeð gráðostasósu
og hotwings sósu.
BBQ lundir
BBQ kjúklingalundir (1 kg.)
Bornar frammeð hvítlaukssósu
og BBQ sósu.