Morgunblaðið - 21.08.2020, Qupperneq 38
Lungamjúkar gerbollur og heitur ostur – góð blanda
með góðri sultu. Virkilega góð uppskrift að gerboll-
um sem má nota á ýmsa vegu í veisluna. Hér einnig
notuð fyrir uppskrift að brauði með míní-hamborg-
urum.
5 b hveiti
5 msk. heilhveiti
2 msk. þurrger
3 msk. sykur
2 tsk. salt
½ l volgt vatn
50 g brætt smjör
1 eggjarauða
Hitið ofn í 180 gráður. Hrærið þurrefnin saman í
skál. Búið til gat í miðjuna og hellið vatni og smjöri
þar ofan í. Blandið saman með sleif til að byrja með
og hnoðið svo í höndunum. Athugið að þetta deig er
frekar blautt og þarf ekki að hnoða það mikið. Látið
hefast í klukkustund.
Að hefingu lokinni skal móta penar bollur. Hér þarf
að hafa hveiti við höndina til að deigið klístrist ekki
allt við mann, hveitistrá hendurnar aðeins fyrir hverja
bollu, en það er þess virði því þær verða mjög mjúk-
ar eftir bakstur.
Takið ostinn sem þið ætlið að hafa í miðjunni og
raðið bollunum í kringum hann. Hafið smá bil á milli
bollanna. Látið bollurnar hefa sig/taka sig aðeins aft-
ur um stund. Fjarlægið ostinn. (Hér er ekki vitlaust að
nota ost sem er í tréumbúðum, Stóri-Dímon, og nota
umbúðirnar allan tímann, baka bollurnar með um-
búðum) Hrærið eggjarauðu og smyrjið á bollurnar.
Stráið birki- eða sesamfræjum yfir þær.
Stingið í ofn og bakið í um 10 mínútur. Takið þá út
og látið ostinn í miðjuna eða ofan í formið. Bakið
áfram í u.þ.b. 10 mínútur eða þar til bollurnar eru
gullnar og osturinn mjúkur.
Ef þið viljið gera hringinn daginn áður skal nota ost
með tréumbúðum eða nota lítið hringlaga form í
staðinn sem má fara í ofn. Baka hann þar til hann er
alveg tilbúinn, um 20 mínútur. Hita þá ostinn þegar á
að bera hann fram og setja hann í formið, ofan í
bolluhringinn. Berið fram og hafið góða sultu og ann-
að ljúfmeti með.
Bolluhringur með mjúkri ostamiðju
É
g fermdist á ósköp
venjulegum sunnudegi
fyrir mjög mörgum ár-
um á Akureyri. Það
var sami dagur og
pabbi minn hafði
fermst á enn fleiri árum áður.
Þetta var rólegheitaferming og
undirbúningur og ég man alveg
þokkalega mikið frá þessum degi.
En aðallega það að veðrið var
rosalega gott og ég var smá svekkt
að komast ekki á skíði með vinkon-
um mínum. Annars finnst mér í
minningunni að mamma hafi svona
að mestu ákveðið hvernig hlutirnir
ættu að vera og allt runnið bara
mjúkt samkvæmt hennar skipu-
lagi.
Mér finnst líka eins og þetta
hafi verið ferming og hefðbundin
veisla eins og tíðkaðist á þessum
tíma. Allt fullorðna fólkið í fjöl-
skyldunni kom saman og fleira til,
og þótt ég hafi ekki velt því mikið
fyrir mér þá hverjir hreinlega
væru þar, þá þykir mér ansi vænt
um það í seinni tíð að allir kæmu
saman þarna heima. Það eru lík-
lega til myndir af öllum sem
mættu og ég man hvað margir
gáfu mér í fermingargjöf. Ég hafði
líka skrifað það skilmerkilega nið-
ur. Það voru peningar, en svo lítið
brot af því sem gengur og gerist,
að krakkar hlæja að því. Svo fékk
ég Adidas-galla, beauty-box, hand-
klæði, myndavél, hring o.s.frv.
Húsgögn í herbergið mitt voru
meðal þess sem ég fékk frá for-
eldrum mínum, sem ég valdi sjálf,
voru pöntuð sérstaklega fyrir mig
og ég hafði valið af kostgæfni.
Kannski voru örlög mín ráðin í
kringum fermingu, án þess að ég
áttaði mig á því.
Það sem ég man þó ekki sér-
staklega eftir að hafa ákveðið eða
velt fyrir mér voru veitingarnar.
Ég var bara ánægð með þær, enda
kökur og sætabrauð, sem mér
þótti gott. Ekkert sérstaklega
hugsað fyrir börn, heldur líklega
meira fyrir þá fullorðnu til að fá
sér með kaffibolla. Svona var þetta
en er alls ekki núna. Síðustu árin
hafa fermingarbörnin miklar og
líklega mestar skoðanir á því, hvað
þau vilja bjóða upp á í veislunni
sinni ef ein slík er haldin. Lea,
dóttir mín, vildi hafa ýmsa smá-
rétti, míní-hamborgara og meiri
partímat, sæta munnbita, smákök-
ur og nammibar. Og þá tók ég
saman uppskriftirnar sem hér birt-
ast. Mér finnst svolítið gaman að
birta þær, því ég get mælt með
þeim við hin ýmsu tilefni, alls ekki
bara fermingar. Fermingarbörn
ársins nákomin okkur nefna sushi,
pizzur og kjúklingasúpu í sína
veislu. Þetta er ansi langt frá þeim
fermingarstíl sem var fermingars-
unnudaginn minn árið 1987. Ég er
svo glöð með það að þau hafi skoð-
anir og líti svo á að veitingarnar
og það hvernig veislan og um-
hverfið er sett upp endurspegli
þau á einhvern hátt. Til hamingju,
öll fermingarbörn!
Uppskriftirnar birtust inni á
www.gottimatinn.is og þar má
finna margar góðar hugmyndir
fyrir fermingarveisluna.
Ef það er eitthvað sem fermingarbörn virðast hafa
skoðanir á og snertir þeirra fermingardag, þá eru það
veitingar sem bera á fram til að fagna áfanganum.
Halla Bára Gestsdóttir | hallabara@hallabara.is
Fæða og ferm-
ing þá og nú!
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Stærðir XS-XL
Margir litir
Verð 10.850,-
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
CURVY RACERBACK
BRALETTE
Úrval af gíturum og bössum
Fiðlur
Heyrnartól
Míkrafónar
í úrvali
Þráðlaus
míkrafónn
GÍTARINN
Stórhöfða 27 • 110 Reykjavík • S. 552 2125 • gitarinn@gitarinn.is • www.gitarinn.is
Hljómborð
MEDELI MC37A
Trommusett
Söngkerfi
í úrvali
Fermingargjafir
Magnarar