Morgunblaðið - 21.08.2020, Síða 40
Amerískar smákökur
Það þarf að setja sig í spor fjórtán
ára barna þegar sett er saman
fermingarveisla og heyra það á
þeim hvað þau vilja hafa og hvað
þeim þykir gott. Amerískar smá-
kökur, cookies, er eitthvað sem
margir myndu nefna. Hér er ein
ekta uppskrift sem klikkar ekki.
1 b. mjúkt smjör
1 b. púðursykur
1 egg
1 ½ tsk. vanilludropar
2 b. hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 ½ b. Smarties eða M&M
Hitið ofn í 180 gráður. Hrærið
saman smjör og sykur þar til létt
og ljóst, bætið þá eggi saman við
og hrærið ásamt vanilludropum.
Setjið þurrefnin saman við og
hrærið þar til allt hefur blandast
vel saman og þá Smarties eða
M&M. Hrærið varlega svo nammið
brotni ekki allt.
Gott er að stinga deiginu í ís-
skáp í um hálftíma, móta þá litlar
kúlur og setja á bökunarplötu. At-
hugið að deigið má geyma í ís-
skáp yfir nótt. Þrýstið létt ofan á
kúlurnar með fingrunum. Bakið í 8-
10 mínútur ef þið viljið hafa þær
mjög mjúkar að innan en 12-14
mínútur ef þið viljið hafa þær
stökkar.
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Úr á mynd
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA
ERNA Skipholti
12.500
6.900
19.500
Pierre Lannier
armbandsúr í úrvali
Fermingargjöfin
fæst í ERNU
In Hoc Signo Vinces /
Undir þessu merki
sigrar þú.
Stórt
Lítið
Fylgið okkur á Facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
GLÆSIKJÓLAR
Í ÚRVALI
Ekta brownie sem öllum þykir
góð. Þessi hverfur fljótt í boðum.
Einn Marsbiti fer í hvern kökubita.
250 g smjör
250 g súkkulaði
1 ½ b. hveiti
1 ½ b. sykur
1 ½ tsk. lyftiduft
3 egg
3 Mars-stykki
Hitið ofn í 160 gráður. Bræðið
saman smjör og súkkulaði í potti.
Látið blönduna kólna svolítið.
Hrærið þurrefni saman í skál.
Hellið súkkulaðiblöndunni saman
við þurrefnin og brjótið eggin eitt
af öðru út í. Hrærið vel en varlega
og ekki of lengi.
Skerið Mars-stykkin í um hálfs
sentimetra þykka bita. Hellið
kökudeiginu í aflangt form, leggið
Mars-bitana í þrjár til fjórar raðir
ofan á deigið og alla leið niður.
Bakið í um 30 mínútur eða þar til
kakan er orðin bökuð að ofan en
mjög mjúk í miðjunni. Stingið í
hana með bökunarprjóni og hann
skal koma örlítið óhreinn út. Gæt-
ið að því að baka kökuna alls ekki
of lengi þá missir hún mýktina
sem skiptir öllu máli. Kælið og
skerið í litla bita þannig að einn
Mars-moli sé í hverri sneið. Raðið
fallega á bakka, stráið flórsykri
eða kakói yfir.
Brownie
með Mars-
bitum
Míní-hamborgarar
borgarann. Laukinn má gera dag-
inn áður.
Bearnaise-sósa:
Fyrir þá sem svo kjósa má gera
heimalagaða sósu á hamborg-
arana. Hins vegar er mælt með
því að kaupa vandaða kalda be-
arnaise-sósu sem má fá víða ef
um mannmarga veislu er að
ræða.
Samsetning:
Skerið brauð í tvennt. Smyrjið
sósu á báða hluta, ekki spara
hana því brauðin drekka svolítið í
sig. Leggið heitan borgara á neðri
hlutann, sem er með osti og beik-
oni, og setjið lauk þar ofan á. Lok-
ið með efra brauðinu. Gott er að
stinga tannstöngli eða pinna í
gegnum borgarann og raða á
bakka. Það er þægilegra fyrir
gesti að þeir detti ekki í sundur
þegar þeir sækja sér á disk.
í ísskáp í a.m.k. klukkustund áður
en þeir eru steiktir. Þetta má gera
daginn áður og sömuleiðis má
steikja þá daginn áður og geyma í
kæli.
Áður er borgaranir eru bornir
fram skal setja á þá þykka sneið
af cheddar-osti og strá smátt söx-
uðu og stökku beikoni yfir. Á þann
hátt er gott að geyma þá og
stinga þeim svo beint inn í heitan
ofn sem er á grilli áður en þeir eru
bornir fram.
Rauðlaukur í ediki - meðlæti
1 rauðlaukur, sneiddur örþunnt
1 msk. hvítvíns- eða rauðvínsedik
1 tsk. sykur
1 tsk. salt
Hrærið allt hráefnið saman og
látið standa í a.m.k. klukkustund
áður en laukurinn er settur á ham-
Heimalagaðir míní-hamborgarar
eru girnilegir á vel framsettum
matarbökkum og laða marga að.
Þessir eru bornir fram með
cheddar-osti, stökku beikoni,
ediklöguðum rauðlauk og kaldri
bearnaise-sósu.
Hamborgarar
500 g vandað nautahakk
3 msk. steinselja, söxuð
3 msk. estragon/tarragon, smátt
saxað
3 msk. brauðmylsna
4 msk. rifinn parmesanostur
1 msk. dijon hunangssinnep
1 egg
Sjávarsalt og svartur pipar
cheddar-ostur, skorinn í sneiðar
stökksteikt beikon, smátt saxað
Hrærið allt hráefnið saman.
Mótið litla hamborgara og geymið