Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
V
ið sjáum að í öllum megin-
atriðum gengur þetta
ágætlega miðað við þá
miklu óvissu sem er
undirliggjandi bæði í
greininni sjálfri, á mörkuðum og
sömuleiðis í stöðu fiskistofnanna
okkar,“ segir Kristján Þór og bætir
við að helsta áhyggjuefnið hafi ver-
ið að markaðir myndu hreinlega
hverfa vegna kórónuveirufaraldur-
sins og að verðhrun myndi eiga sér
stað. Kveðst ráðherrann feginn að
svartsýnustu spár hafi ekki gengið
eftir í þeim efnum. „Íslenskur sjáv-
arútvegur sýndi gríðarlega aðlög-
unarhæfni í þessum krefjandi að-
stæðum, meðal annars þegar
eftirspurn eftir ferskum afurðum
hrundi á nokkrum sólarhringum.
Þannig að þetta ástand hefur um
leið varpað ljósi á styrkleika ís-
lensks sjávarútvegs.“
Ráðgjöf ávallt umdeilanleg
„Svo fáum við ráðgjöf fyrir komandi
fiskveiðiár, þar sem við erum að sjá
breytingar aðeins í mati Hafrann-
sóknastofnunar á stofnunum, sem
gefur töluverða hækkun á aflamarki
í ýsu og síðan lækkun í aflamarki
þorsks. Þetta eru engar katastrófur
en það eru vonbrigði að sjá þorsk-
inn ekki halda áfram á sömu leið
eins og hann hefur verið núna í all-
langan tíma. Samt sem áður er
ástandið á stofninum betra heldur
en það var fyrir alllöngu,“ segir
Kristján Þór. „Ég held að það sé
hollt fyrir okkur, þrátt fyrir sveiflur
í afkomu árganga, að hverfa ekki
frá þessu verklagi sem byggist á því
að hafa sjálfbærni að leiðarljósi við
stjórnun fiskveiða við Ísland. Við
höfum sem betur fer fylgt ráðgjöf
okkar færustu vísindamanna ágæt-
lega í mörg ár,“ bætir hann við.
Spurður hvort hann sé sammála
sjónarmiðum um að nú, þegar efna-
hagsþrengingar eru annars vegar,
sé tilefni til að auka útgefið afla-
mark, svarar Kristján Þór: „Í þess-
um efnum verðum við að hugsa
þetta allt saman til langs tíma og
ekki undir neinum kringumstæðum
megum við láta einhverja skamm-
tímahugsun ráða för þegar kemur
að nýtingu á auðlindum sjávarins.
Það er bara þannig. Við getum alltaf
bætt okkur og það er ekkert skrýtið
þó að ýmis atriði séu umdeilanleg
varðandi fiskveiðistjórnunina og
ráðgjöfina, það hefur alltaf verið
þannig og verður alltaf þannig.
En það er óumdeilt að fiskveiði-
stjórnunarkerfið okkar hefur verið
að flestu leyti mjög gott. Það er vel
þekkt að íslenskur sjávarútvegur
skarar fram úr á mörgum sviðum og
við erum með sjálfbæra nýtingu
fiskistofna, við erum með (efnahags-
lega) sjálfbæran útveg sem ekki
þarf ríkisstuðning, hann skapar al-
veg gríðarlega mörg afleidd störf og
svo framvegis.“
Einkennist af sveiflum
Nokkur högg hafa dunið á greininni
á fiskveiðiárinu og segir Kristján
Þór meðal helstu áfallanna vera
stöðu loðnustofnsins. „Hann hefur
átt undir högg að sækja. Ljósi
punkturinn í því er að Alþjóða-
hafrannsóknarráðið hefur lagt til
170 þúsund tonn í samræmi við
gildandi aflareglu.“ Þá séu miklar
vonir bundnar við að loðnuleiðangur
í næsta mánuði skili jákvæðum nið-
urstöðum sem gefa vísbendingar
um betra ástand stofnsins þannig
að umtalsverðar veiðar geti orðið á
næstu vertíð, að sögn ráðherrans.
Þá er einnig ástæða til að hafa
áhyggjur af humarstofninum að
mati Kristjáns Þórs sem bendir á
að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
sé núll og að það muni líklega taka
langan tíma fyrir stofninn að ná sér
á strik.
„Svo er ekki hægt að horfa
framhjá því að það eru miklar
breytingar varðandi göngur makríls
í ár og ekki fyrirséð hvernig það
mun þróast,“ segir hann. „Það eru
alltaf blikur á lofti í sjávarútvegi
hvar sem er í veröldinni. Því, hvort
sem okkur líkar það betur eða verr
að heyra það, þekkjum við ganginn
í lífríki sjávar ekki nægilega vel
heilt yfir. Og sveiflur í náttúrunni
geta verið mjög breytilegar milli
ára án þess að menn kunna á þeim
viðhlítandi skýringar. Þetta er ein-
faldlega eðli þessarar atvinnugrein-
ar að hún er sveiflukennd. Viðbragð
stjórnvalda við þessari óvissu verð-
ur að vera að fjárfesta enn frekar í
öflugum hafrannsóknum.“
Munur á niðursveiflunum
Spáð er að verð sjávarafurða á
mörkuðum kunni að fara að lækka í
samræmi við mögulegan efnahags-
samdrátt erlendis og tilheyrandi
samdrátt í kaupmætti. Spurður
hvort hann hafi áhyggjur af því
hvað þetta kunni að hafa í för með
sér fyrir þjóðarbúið nú þegar önnur
útflutningsgrein, ferðaþjónustan,
hefur orðið fyrir verulegu höggi
vegna ástandsins, svarar Kristján
Þór: „Já, vissulega. Það er alveg
augljóst að samkeppnin á erlendum
mörkuðum mun aukast vegna þess
að það dregur úr eftirspurn eftir til-
teknum tegundum af sjávarafurð-
um.“
Munurinn á milli niðursveifl-
unnar nú og ársins 2009, þegar tölu-
verð niðursveifla varð í sjávar-
útvegi, er sá að fyrirtækin eru sem
betur fer betur í stakk búin til að
takast á við áföll. Þegar við erum að
horfa upp á það að við flytjum út 98
til 99% af þeim afla sem við drögum
úr sjó og samkeppni á mörkuðunum
harðnar, hlýtur maður á sama tíma
að horfa til þeirra rekstrarskilyrða
sem atvinnugreininni eru búin hér
heima. Þetta verður alltaf einhvern
veginn að spila saman. Mikilvægi
sjávarútvegsins í afkomu þjóð-
arbúsins er óumdeilt og oftar en
einu sinni hefur þessi atvinnugrein
komið þjóðinni í gegnum brimskafla
efnahagsmála sem hafa verið að
skella á henni.“
Strandveiðar gengið vel
Tilkynnt var 18. ágúst að strand-
veiðar yrðu stöðvaðar frá og með
20. ágúst. Hefur verið gagnrýnt að
margir strandveiðimenn hafi þurft
að hætta veiðum með þriðjung
veiðidaga eftir og að ekki hefur ver-
ið veitt leyfi til að nýta ónýttar
heimildir frá veiðunum 2019. En
aflaheimildir til strandveiða voru
auknar um 720 tonn í júlí.
„Umræðan um strandveiðarnar
ber keim af því að það eru kapp-
samir menn á ferð og ætla kannski
ráðherra þessa málaflokks meiri
völd en hann hefur. Það er Alþingi
sem setur lögin um fiskveiðistjórn-
unarkerfið sem sjávarútvegi er ætl-
að að vinna eftir. Auðvitað förum
við eftir þeim ákvæðum sem gilda,“
segir Kristján Þór. „Það var mjög
góður afli strandveiðibáta og afla-
heimildir í þessum hluta fisk-
veiðistjórnunarinnar hafa aldrei
verið meiri, aflamagn og aflaverð-
mæti hefur aldrei verið meira.
Nefni sem dæmi að heildarafli í
strandveiðikerfinu árið 2018 var
9.781 tonn en var 11.841 tonn árið
2020. Það er hækkun milli þessara
tveggja ára um rúm 2.000 tonn eða
um 17%.
Og þegar krafan er um það að
færa aflaheimildir til í þessu kerfi
þá verða menn líka að horfast í
augu við það að þá erum við sömu-
leiðis að færa til atvinnu fólks,
enda hlýtur það að koma annars
staðar niður. Jafnframt þarf að
hafa hugfast að ég hef þegar ráð-
stafað öllum ónýttum aflaheim-
ildum í 5,3% kerfinu svokallaða til
strandveiða,“ segir hann og bendir
á að 720 tonnum hafi verið bætt við
strandveiðarnar í júlí.
Þá telur Kristján Þór tilefni til
þess að fara yfir þær breytingar
sem gerðar hafa verið á strand-
veiðikerfinu undanfarin ár, þar
með talið að aflaheimildum sé ekki
lengur skipt niður á landsvæði eða
tímabil.
Frumvarp lagt fram sem fyrst
Starfshópur um atvinnu- og
byggðakvóta skilaði í febrúar
skýrslu sinni um endurskoðun á
meðferð og ráðstöfun 5,3% afla-
heimilda til ráðherra í febrúar.
Lagði starfshópurinn til að mynda
til að úthlutun byggðakvóta yrði
gerð markvissari með skjalfestum
markmiðum þar sem til að mynda
vinnsluskylda færi eftir aðstæðum
á hverjum stað. Jafnframt lagði
hann til að línuívilnun yrði færð í
auknum mæli til þeirra staða þar
sem hún er talin skila sem mestum
árangri.
Spurður hvort væntanleg séu
frumvörp í samræmi við tillögur
starfshópsins, svarar Kristján Þór
því játandi. „Ég hef óskað eftir því
að haldið verði áfram á grunni
þeirrar vinnu sem þar var unnin og
það er unnið að gerð frumvarps
sem byggist á þeim tillögum sem
þarna voru lagðar fram.“ Hann
kveðst ekki geta spáð því hvenær
slíkt frumvarp verði lagt fram en
segist vona að það verði tilbúið
„sem fyrst með haustinu“.
Bætir ráðherrann við að
áherslur haustsins verði svipaðar
og hafa verið á árinu, að lágmarka
neikvæð áhrif kórónuveirufaraldur-
sins „en um leið skapa öfluga við-
spyrnu þegar þetta ástand er geng-
ið yfir“.
Morgunblaðið/Eggert
„Það eru alltaf blikur á lofti í
sjávarútvegi hvar sem er í ver-
öldinni. Því, hvort sem okkur lík-
ar það betur eða verr að heyra
það, þekkjum við ganginn í líf-
ríki sjávar ekki nægilega vel.“
Skammtímahugsun megi ekki
ráða för við auðlindanýtingu
Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra,
kveðst ekki svartsýnn
þrátt fyrir þær að-
stæður sem skapast
hafa á undanförnum
misserum og reynst
hafa mörgum krefjandi.
Hann segir þó liggja fyr-
ir að fiskveiðiárið sem
sé að líða hafi verið sér-
stakt á margan hátt.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum