Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 10
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Þ
etta er í fyrsta sinn sem
við erum að selja stærri
pakka, en við erum þekkt
fyrir að framleiða vind-
urnar og stjórnkerfið
með þeim. Við framleiðum allt stál
á Spáni og vindurnar, en rafmagnið
og stjórnbúnaður er hannaður og
smíðaður í Hafnarfirði,“ svarar
Bjarni Þór Gunnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Naust Marine, er
hann er spurður um samning sem
fyrirtækið gerði nýverið við RK
Lenina í Rússlandi.
Hann segir mikið framfaraskref
fyrir fyrirtækið að vera komið á
þann stað að gera samninga um all-
an dekkbúnað um borð í togara,
ekki síst togara af þessari stærð-
argráðu. „Þetta er langstærsta
verkefni á einum togara sem við
höfum fengið. Þetta er um 800
milljóna króna samningur bara
þetta eina skip, enda stærsti togari
sem hefur verið smíðaður í langan
tíma. Hann er 121 metra langur og
21 metra breiður og við erum með
allar vindur um borð í skipinu
ásamt krönum, ísgálgum, skut-
rennuhlið og blokkum, auk ATW-
togvindustjórnkerfis.
Þá koma tvö önnur íslensk fyrir-
tæki einnig að togaranum, Frost og
Skaginn 3X, en Lenin er hannaður
af finnska fyrirtækinu Wärtsila.
Tíu togarar fyrir Norebo
Verksmiðjutogarinn Lenin er hins
vegar langt frá því að vera fyrsta
stóra verkefni Naust Marine í
Rússlandi. Árið 2017 gerði íslenska
fyrirtækið Nautic samninga við
rússnesku útgerðina Norebo um
hönnun sex verksmiðjutogara sem
eru 81,6 metrar að lengd og 16
metra breiðir, en 43 vindur frá
Naust Marine og togvindustjórn-
kerfi mun vera í hverjum togara
Norebo auk búnaðar frá Frost.
Bjarni Þór segir stefna í að
Naust Marine taki að sér búnað í
fjóra Norebo-togara til viðbótar.
„Það er búið að samþykkja tilboðið,
búið að uppfæra samningana og er
núna beðið eftir að þeir komi und-
irritaðir inn í hús. Þetta eru sem
sagt í heild tíu togarar.
Við erum mikið í Austur-
Rússlandi með mörg verkefni í
gömlum skipum. Enda hefur ekk-
ert verið mikið um nýsmíði und-
anfarin tuttugu ár. Þetta er algjör
sprengja hjá okkur í nýsmíðum, við
erum að koma að ellefu nýsmíða-
verkefnum sem eru fleiri nýsmíðar
en við höfum komið að samanlagt
frá ’93.“
Hægt að bæta við verkefnum
Spurður hvort framleiðsla fyrir-
tækisins sé að nálgast þolmörk
vegna fjölda verkefna segir Bjarni
Þór svo ekki vera. „Þetta verður
afgreitt í lok næsta árs, 2021, í
Lenin. Við erum með mjög stórt
verkefni fyrir Norebo, en þar erum
við með samning upp á sex togara
og erum búnir að skila tveimur, er-
um að skríða í þriðja togarann.“
Hann segir ávallt hægt að bæta
verkefnum við þar sem undir-
verktakar á Spáni og hér á landi
eru til taks þegar þarf að mæta
helstu álagstoppunum. „Þetta er
ekki vandamál og er nú skárra
ástand í dag að fá mannskap en var
fyrir bara einu til tveimur árum.
Metum bara hverju sinni hvort við
bætum við okkur hér eða á Spáni.“
Naust Marine hefur sótt á alla
markaði en Rússland hefur ásamt
Bandaríkjunum verið helstu mark-
aðir fyrirtækisins, segir Bjarni Þór.
Hann bætir við að hann hefði viljað
vera meira í verkefnum á Íslandi,
en þeim hafi fækkað í kjölfar mikils
endurnýjunarfasa íslenska skipa-
flotans þar sem var fjöldi nýsmíða.
„Við höfum meðal annars komið að
togurunum hjá Brimi (Akurey, Við-
ey, Engey) auk Breka hjá Vinnslu-
stöðinni og Páls Pálssonar hjá
Hraðfrystihúsinu Gunnvöru.“
Bjarni Þór segir reynsluna af
rússneska markaðnum góða, en
viðurkennir að einhverjir hnökrar
hafi verið í kringum nýsmíðina.
„Þessir rússnesku togarar eru
smíðaðir í Rússlandi og skipa-
smíðastöðvar þeirra hafa aðallega
verið í smíðum á herskipum. Þetta
er nýtt fyrir þeim en þeim fer
fram.“
Faraldur veldur töfum
Spurður hvort það sé erfitt að
komast inn á rússneska markaðinn
svarar hann: „Já, það er náttúrlega
erfitt að komast á alla markaði, en
við erum orðin frekar þekkt nafn
þar. Við byrjuðum á að selja ein-
göngu stjórnbúnaðinn í eldri skip
og þannig byrjaði nafnið Naust
Marine að verða þekkt í Rússlandi.
Síðan hefur það bara aukist og
mun aukast enn meira með þessum
nýju verkefnum. Rússar eru mjög
tryggir, ef þeir eru ánægðir eru
þeir langflestir ekkert að leita ann-
að.“
Eins og með allar atvinnugreinar
hefur kórónuveirufaraldurinn haft
áhrif á starfsemina og veldur far-
aldurinn töfum. „Það er allt að
seinka vegna þess að menn komast
ekki milli landa til að klára samn-
inga og okkar þjónustufólk getur
ekki mætt á staðinn til að starta
kerfunum, en vonandi breytist það.
Brexit hefur líka áhrif, út af því að
það eru ekki komnir samningar
milli Evrópusambandsins og Bret-
lands um fiskveiðar. Lentum í því
að vera búin að skrifa undir vilja-
yfirlýsingu og það átti allt að fara
að byrja, en þá var það stoppað og
frestað til áramóta út af þessum
samningum.“
Hann segir umfang tafanna
koma betur í ljós þegar fram líða
stundir og útskýrir að erfitt geti
verið að komast inn á skipa-
smíðastöðvar í Rússlandi þar sem
þær hafa almennt verið nýttar til
að smíða herskip og eru því í gildi
strangari aðgangsreglur en við
hefðbundnar stöðvar. „En það á
augljóslega eftir að breytast. Þetta
er þróun sem er hafin.“
Sjá um allan dekkbúnað á Lenin
Naust Marine hefur tek-
ið að sér stærsta verk-
efni í sögu fyrirtækisins
vegna eins togara og
mun sjá um nánast allan
dekkbúnað í rússneska
verksmiðjutogaranum
Lenin fyrir rússneska út-
gerð. Samningur vegna
verkefnisins hljóðar upp
á 800 milljónir króna.
Morgunblaðið/Hari
Bjarni Þór Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Naust Marine.
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
4
1
3
2
4
1
3
2
A
A
B
B
C
C
D
D
E
E
Árangur
í verki
Stuðlum að sjálfbæru samfélagi
www.mannvit.is
Sérfræðingar okkar búa að áratugalangri reynslu á öllum sviðum skipulags-, leyfis- og umhverfismála,
húsbygginga, samgöngumannvirkja og rannsókna. Við bjóðum ráðgjöf á sviði sjálfbærni og innivistar
og leitumst við að lágmarka áhrif á umhverfi og samfélag.
Tröllvaxinn
togari
Finnska fyrirtækið Wärtsilä
var fengið í október 2018 til
þess að hanna nýjan verk-
smiðjutogara fyrir útgerðina RK
Lenina í austurhluta Rússlands.
Rússneska skipasmíðastöðin
Yantar í Kaliningrad mun annast
smíðin og er áætluð afhending
árið 2023.
Skipið þykir einstakt fyrir
margar sakir, en það mun vera
121 metri að lengd, 21 metri að
breidd og er lestin 5.000 rúm-
metrar að stærð. Jafnframt mun
það geta nýtt tvítroll fyrir marg-
ar ólíkar tegundir og nýtir bæði
hefðbundnar vindur og dælur til
þess að koma afla um borð, en
þar verður ekki bara unninn afli
sem Lenin veiðir heldur mun afli
frá öðrum skipum einnig vera
unninn um borð.
Um borð eru 50 vindur frá
Naust Marine ásamt krönum, ís-
gálgum, skutrennuhlið, blokkum
og togvindustjórnkerfi. Um er að
ræða stærsta verkefni Naust
Marine vegna eins togara.
Nýsmíðin er tengd
fjárfestingastefnu rússneskra
stjórnvalda sem ætlað er að
stuðla að endurnýjun rússneska
fiskiskipaflotans.
Lenin mun stunda veiðar að-
allega í Okotshafi sem er í norð-
urhluta Kyrrhafs milli Kams-
jatkaskaga og meginlands Asíu.
Verkmsiðjutogarinn Lenin mun vera
með stærri togurun sem smíðaðir
hafa verið á síðustu árum.