Morgunblaðið - 29.08.2020, Side 14
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
A
ukin tæknivæðing og styrk-
ing félagsins í veiðum og
vinnslu á bolfiski hefur
hjálpað Loðnuvinnslunni á
Fáskrúðsfirði að takast á
við áskoranir undanfarinna missera.
Tæknin hefur gert starfsemina skil-
virkari og bolfiskurinn rennt fleiri
stoðum undir reksturinn og gert
hann sveigjanlegri.
Þetta segir Friðrik Mar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar. „Með tæknivæð-
ingu síðustu þriggja ára höfum við
náð að auka afkastagetu bolfisk-
vinnslunnar um 100% með óbreyttum
fjölda starfsmanna og samhliða því
styrkt okkur í þorskkvóta. Makríllinn
heldur þó áfram að vera mikilvægur
fyrir okkur, sem og kolmunni og
loðna,“ útskýrir hann.
Síðasta almanaksár var það besta í
sögu félagsins og nam LVF þá um
tveimur milljörðum króna. „Það ár
gekk hér um bil allt upp. Brestur varð
í loðnuveiðum en
við áttum birgðir
af loðnuhrognum
frá árinu á undan
og vorum þeir
einu í heiminum
sem gátu þjónað
markaðinum.
Aldrei hefur fallið
úr dagur hjá okk-
ur því bolfisk-
urinn hefur fyllt
upp í skarðið þeg-
ar uppsjávartegundirnar skortir,“
segir Friðrik og undirstrikar að það
virðist ekki annað ganga í dag en að
bæði nýta möguleika tækninnar eins
og frekast er unnt og hafa starfsem-
ina fjölbreytta svo að sveiflur innan
tegunda og breytilegar aðstæður á
erlendum mörkuðum séu auðveldari
viðfangs.
„Þetta viðhorf stangast á við það
sem markaðssérfræðingar vilja
stundum halda fram; að fyrirtæki eigi
að sérhæfa sig sem mest og ná sem
bestum árangri á afmörkuðu sviði, en
í sjávarútvegi þurfa fyrirtæki þvert á
móti að vera í sem flestu til að geta
mætt sveiflunum,“ segir hann. „Nið-
urskurður og kjarnastarfsemi eru
voðalega flott orð og eiga kannski við
í rekstri banka, en ekki í okkar
grein.“
Til að lifa af þarf
að nota nýjustu tækni
Loðnuvinnslan rekur í dag fiskimjöls-
verksmiðju, síldarsöltun, uppsjáv-
arfrystihús og bolfiskfrystihús og
gerir út þrjú skip: flottrolls- og nóta-
veiðiskipið Hoffell SU 80, togarann
Ljósafell SU 70 og línubátinn Sand-
fell SU 75 en að auki á útgerðin tæp-
an helmingshlut í krókaveiðibátnum
Hafrafelli SU 65. Félagið er það eina
á Íslandi sem framleiðir saltaða síld.
Mælt í magni er kolmunni fyrirferð-
armesta tegundin í starfseminni og
hefur LVF á undanförnum árum að
jafnaði tekið á móti 30 til 50.000 tonn-
um af kolmunna til bræðslu ár hvert.
Samanlagt hefur LVF fjárfest í
nýjum vinnslutækjum fyrir um það
bil milljarð króna á undanförnum
þremur árum. Eignaðist fyrirtækið
m.a. fullkominn sjálfvirkan pökk-
unarbúnað og tvær vatnsskurðar-
vélar frá Völku. Í haust bættust síðan
við nýjar flæðilínur.
Friðrik segir að með bættri tækni
sé ekki aðeins verið að auka afköst
heldur einnig auka gæði og nýtingu.
Fullkominn vinnslubúnaðurinn
myndgreinir hvert flak og sker af ná-
kvæmni til að búa til bita af þeirri
stærð og gerð sem kaupandinn óskar
eftir þannig að sem minnst fari til
spillis. „Markaðurinn er með alls kon-
ar óskir um þykkt, lengd, breidd og
þyngd fiskbitanna og hægt að full-
nægja öllum þessum þörfum á ein-
faldan hátt með nýju vélunum.“
Segir Friðrik ekki hægt að segja til
um hversu fljótt fjárfestingin borgar
sig. „En í okkar geira er ekki hægt að
lifa af öðruvísi en að nýta sér nýjustu
tækni á hverjum tíma.“
Markaðurinn að leita
aftur í eðlilegt horf
Kórónuveirufaraldurinn setti strik
í reikninginn í daglegri starfsemi
LVF og þurfti strax í mars að
skipta starfsfólki í aðskildar vaktir.
„Þetta voru mjög erfiðir tímar fyrir
okkur öll, og gott þegar ástandið
varð aftur eðlilegt í júní,“ segir
Friðrik.
Á sama tíma urðu sviptingar á
mörkuðum og nefnir Friðrik að
þegar verst lét hafi orðið 90% sam-
dráttur í sölu á ferskum hnökkum
og verð lækkað um 15%. Skýrist
það af því að víðast hvar þurftu
veitingastaðir að skella í lás og
stórmarkaðir lokuðu fiskborðum
Geta betur
mætt sveiflum
með fjölbreyttri
starfsemi
Sú áskorun sem íslenskur sjávarútvegur stendur
frammi fyrir í dag er annars eðlis en í fjármála-
kreppunni fyrir röskum áratug.
Hoffell á leið til veiða. Friðrik segir
árið hafa verið krefjandi en að
sjávarútvegurinn muni þrauka.
Friðrik Mar
Guðmundsson
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is - postur@maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
KEILIR RESTEINUNN SF 10 FROSTI ÞH 229
NORIS vélaeftirlitskerfi
STAMFORD rafalar
VULKAN ástengi
SCANTROL autotroll
YANMAR aðalvélar
FINNÖY niðurfærslugírar
Allt fyrir nýsmíðina
Rafmagns togvindur Rafstöðvar og ljósavélarAðalvélar - Hjálparvélar Niðurfærslugírar
NORIS vélaeftirlitskerfi
VULKAN ástengiYANMAR aðalvél YANMAR aðalvélar
REINTJES niðurfærslugírar
VULKAN ástengi
AQUAMETRO eyðslumælar