Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.08.2020, Blaðsíða 16
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ó hætt er að segja að það hafi verið gæfuspor fyrir Fanneyju Björk Friðriks- dóttur að ákveða að starfa í sjávarútvegi. Í dag er hún 27 ára gömul og starfar sem gæðastjóri hjá fiskvinnslu Brims á Vopnafirði. „Hér óx ég úr grasi og ekki fyrr en ég hóf nám við Mennta- skólann á Akureyri að ég flutti frá bænum. Á sumrin sneri ég aftur heim á Vopnafjörð og vann í fiskvinnslunni sem þá var í eigu HB Granda. Ég fékk þar verkefni af ýmsu tagi, allt frá því að tína úr skemmdan fisk og skola vinnsluna yfir í eftirlit með vél- um og búnaði,“ segir Fanney. „Það var í gegnum þessa reynslu að áhugi kviknaði hjá mér að leggja fyrir mig nám í sjávarútvegsfræði hjá Háskól- anum á Akureyri.“ Fanney játar að þrátt fyrir að vera komin af sjómönnum í a.m.k. fjóra ættliði þá hafi henni verið mjög í mun á unglingsárunum að starfa við eitt- hvað allt annað en sjávarútveg. „Mér hugnaðist frekar að fara kannski að vinna í fatabúð eða gerast gullsmiður – og það er svo sem ekki útilokað að ég leggi gullsmíðina einhvern tíma fyrir mig. En viðhorf mitt til grein- arinnar tók að breytast eftir því sem ég kynntist sjávarútveginum betur og sá hvað þetta er tæknivæddur, krefj- andi og hraður geiri þar sem á sér stað mikil nýsköpun.“ Gæðastjóra ekkert óviðkomandi Þá skemmir ekki fyrir hvað atvinnu- tækifærin eru góð og var Fanneyju boðið starf á Vopnafirði strax að loknu fyrsta árinu við HA. „Þau vildu taka við mér strax og varð því úr að ég kláraði seinni tvö ár sjávarútvegs- fræðinámsins í fjarnámi meðfram vinnu.“ Starf gæðastjórans krefst þess að Fanney þekki reksturinn út og inn, fylgist með stóru og smáu og sé alltaf til taks þegar á þarf að halda. Vinnu- tíminn getur verið breytilegur eftir árstímum og t.d. unnið allan sólar- hringinn í fiskvinnslunni á makríl- vertíð. „Það getur verið erfitt að lýsa starfi gæðastjóra og fátt sem er manni óviðkomandi. Það kemur fólki oft á óvart hvað það fylgir mikil papp- írsvinna þessu starfi en kaupendur gera iðulega mjög ríkar kröfur um að bæði varan og reksturinn fullnægi ákveðnum stöðlum. Kemur það m.a. í hlut gæðastjórans að svara reglulega löngum spurningalistum og afla ým- iss konar fylgigagna sem kaupandinn vill sjá.“ Smitvarnaaðgerðir vegna kór- ónuveirufaraldursins reyndu á Brim rétt eins og önnur sjávar- útvegsfyrirtæki. Þegar faraldurinn brast á var Franney í fæðing- arorlofi en var þó vinnuveitanda sínum innan handar eftir bestu getu. „Við erum heppin hér á Vopnafirði því við höfum sloppið við kórónuveiruna hingað til. Við- bragðsteymi Brims í Reykjavík mótaði nýjar reglur sem við fórum eftir á meðan smithættan var hvað mest. Hér á Vopnafirði var nóg að bæta aðskilnað á milli vinnslustöðv- anna.“ „Markaðurinn stoppar aldrei“ „Ekki reyndist þörf á að gera meiri háttar breytingar á vaktaskipt- ingum og hér hélst full vinnsla allan tímann,“ segir hún. „Vitaskuld hafa alltaf verið gerðar mjög ríkar kröf- ur um handþvott og þrif í fisk- vinnslunum en til að lágmarka smithættu enn frekar var aukið við þrif á aðstöðu starfsmanna og starfsfólk beðið um að spritta á sér hendurnar oft á dag. Við höfum haft það hugfast að allir þurfa að leggja sitt af mörkum Smám saman er lífið á Vopnafirði að færast aftur nær eðlilegu horfi. Markaðurinn fyrir sjávarafurðir er þó ennþá erfiður og eimir enn eftir af þeim miklu sveiflum sem ein- kenndu fyrri helming ársins. Fann- ey segir ljóst að markaðsfólks fyrirtækisins bíði ærinn starfi enda markaðsaðstæður ekki þær sömu og þær voru fyrir faraldur. „Rask- anir hér og þar hafa valdið snjóbol- taáhrifum og við getum búist við því að eftirkasta faraldursins muni gæta í langan tíma á eftir,“ segir hún en er þess jafnframt fullviss að bæði Brim og íslenskur sjávar- útvegur eins og hann leggur sig muni leysa þessa áskorun vel af hendi. „Við þurfum bara að hafa það hugfast, nú sem endranær, að markaðurinn stoppar aldrei og við þurfum að hafa puttann á púlsinum og vera í sífelldri þróun því annars hættum við á að dragast aftur úr.“ Var mjög í mun á unglingsárunum að vinna ekki í sjávarútvegi Í gegnum fjölbreytt sumarstörf í fiskvinnslu uppgötvaði Fanney Björk hvað sjávarútvegurinn er áhugaverð, hröð og krefjandi grein. „Við þurfum að hafa það hugfast, nú sem endranær, að markaðurinn stoppar aldrei og við þurfum að hafa puttann á púlsinum,“ segir Fanney Björk Friðriksdóttir. 16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.