Morgunblaðið - 29.08.2020, Síða 16
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ó
hætt er að segja að það
hafi verið gæfuspor fyrir
Fanneyju Björk Friðriks-
dóttur að ákveða að starfa
í sjávarútvegi. Í dag er
hún 27 ára gömul og starfar sem
gæðastjóri hjá fiskvinnslu Brims á
Vopnafirði. „Hér óx ég úr grasi og
ekki fyrr en ég hóf nám við Mennta-
skólann á Akureyri að ég flutti frá
bænum. Á sumrin sneri ég aftur heim
á Vopnafjörð og vann í fiskvinnslunni
sem þá var í eigu HB Granda. Ég
fékk þar verkefni af ýmsu tagi, allt
frá því að tína úr skemmdan fisk og
skola vinnsluna yfir í eftirlit með vél-
um og búnaði,“ segir Fanney. „Það
var í gegnum þessa reynslu að áhugi
kviknaði hjá mér að leggja fyrir mig
nám í sjávarútvegsfræði hjá Háskól-
anum á Akureyri.“
Fanney játar að þrátt fyrir að vera
komin af sjómönnum í a.m.k. fjóra
ættliði þá hafi henni verið mjög í mun
á unglingsárunum að starfa við eitt-
hvað allt annað en sjávarútveg. „Mér
hugnaðist frekar að fara kannski að
vinna í fatabúð eða gerast gullsmiður
– og það er svo sem ekki útilokað að
ég leggi gullsmíðina einhvern tíma
fyrir mig. En viðhorf mitt til grein-
arinnar tók að breytast eftir því sem
ég kynntist sjávarútveginum betur og
sá hvað þetta er tæknivæddur, krefj-
andi og hraður geiri þar sem á sér
stað mikil nýsköpun.“
Gæðastjóra ekkert óviðkomandi
Þá skemmir ekki fyrir hvað atvinnu-
tækifærin eru góð og var Fanneyju
boðið starf á Vopnafirði strax að
loknu fyrsta árinu við HA. „Þau vildu
taka við mér strax og varð því úr að
ég kláraði seinni tvö ár sjávarútvegs-
fræðinámsins í fjarnámi meðfram
vinnu.“
Starf gæðastjórans krefst þess að
Fanney þekki reksturinn út og inn,
fylgist með stóru og smáu og sé alltaf
til taks þegar á þarf að halda. Vinnu-
tíminn getur verið breytilegur eftir
árstímum og t.d. unnið allan sólar-
hringinn í fiskvinnslunni á makríl-
vertíð. „Það getur verið erfitt að lýsa
starfi gæðastjóra og fátt sem er
manni óviðkomandi. Það kemur fólki
oft á óvart hvað það fylgir mikil papp-
írsvinna þessu starfi en kaupendur
gera iðulega mjög ríkar kröfur um að
bæði varan og reksturinn fullnægi
ákveðnum stöðlum. Kemur það m.a. í
hlut gæðastjórans að svara reglulega
löngum spurningalistum og afla ým-
iss konar fylgigagna sem kaupandinn
vill sjá.“
Smitvarnaaðgerðir vegna kór-
ónuveirufaraldursins reyndu á
Brim rétt eins og önnur sjávar-
útvegsfyrirtæki. Þegar faraldurinn
brast á var Franney í fæðing-
arorlofi en var þó vinnuveitanda
sínum innan handar eftir bestu
getu. „Við erum heppin hér á
Vopnafirði því við höfum sloppið við
kórónuveiruna hingað til. Við-
bragðsteymi Brims í Reykjavík
mótaði nýjar reglur sem við fórum
eftir á meðan smithættan var hvað
mest. Hér á Vopnafirði var nóg að
bæta aðskilnað á milli vinnslustöðv-
anna.“
„Markaðurinn stoppar aldrei“
„Ekki reyndist þörf á að gera meiri
háttar breytingar á vaktaskipt-
ingum og hér hélst full vinnsla allan
tímann,“ segir hún. „Vitaskuld hafa
alltaf verið gerðar mjög ríkar kröf-
ur um handþvott og þrif í fisk-
vinnslunum en til að lágmarka
smithættu enn frekar var aukið við
þrif á aðstöðu starfsmanna og
starfsfólk beðið um að spritta á sér
hendurnar oft á dag. Við höfum
haft það hugfast að allir þurfa að
leggja sitt af mörkum
Smám saman er lífið á Vopnafirði
að færast aftur nær eðlilegu horfi.
Markaðurinn fyrir sjávarafurðir er
þó ennþá erfiður og eimir enn eftir
af þeim miklu sveiflum sem ein-
kenndu fyrri helming ársins. Fann-
ey segir ljóst að markaðsfólks
fyrirtækisins bíði ærinn starfi enda
markaðsaðstæður ekki þær sömu
og þær voru fyrir faraldur. „Rask-
anir hér og þar hafa valdið snjóbol-
taáhrifum og við getum búist við
því að eftirkasta faraldursins muni
gæta í langan tíma á eftir,“ segir
hún en er þess jafnframt fullviss að
bæði Brim og íslenskur sjávar-
útvegur eins og hann leggur sig
muni leysa þessa áskorun vel af
hendi. „Við þurfum bara að hafa
það hugfast, nú sem endranær, að
markaðurinn stoppar aldrei og við
þurfum að hafa puttann á púlsinum
og vera í sífelldri þróun því annars
hættum við á að dragast aftur úr.“
Var mjög í mun á
unglingsárunum
að vinna ekki í
sjávarútvegi
Í gegnum fjölbreytt sumarstörf í fiskvinnslu
uppgötvaði Fanney Björk hvað sjávarútvegurinn
er áhugaverð, hröð og krefjandi grein.
„Við þurfum að hafa það hugfast,
nú sem endranær, að markaðurinn
stoppar aldrei og við þurfum að
hafa puttann á púlsinum,“ segir
Fanney Björk Friðriksdóttir.
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020