Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 22

Morgunblaðið - 29.08.2020, Page 22
Afli íslenskra fiskiveiðiskipa og verðmæti Heildarafli íslenskra fiskiveiðiskipa, þúsundir tonna, fiskveiðiárin 2005/06 til 2019/20* Útflutningsverðmæti sjávarafurða fyrstu 10 mán. hvers fiskveiðiárs 2011/12 til 2019/20, ma.kr. á gengi hvers árs, og gengisvísitala krónunnar Afli íslenskra fiskiveiðiskipa Þúsundir tonna, fiskveiðiárin 2005/06 til 2019/20* * Að ágúst undanskildum Heimild: Hagstofa Íslands og Seðlabanki Íslands 600 400 200 0 Loðna 2005/06 2019/20 400 300 200 100 0 Síld 120 80 40 0 Makríll 350 280 210 140 70 0 Kolmunni 300 200 100 0 Þorskur 120 80 40 0 Ýsa 80 60 40 20 0 Ufsi 80 60 40 20 0 Karfi 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2005/06 2006/07 2007/08 2008/09 2009/10 2010/11 2011/12 2012/13 2013/14 2014/15 2015/16 2016/17 2017/18 2018/19 2019/20 15% 10% 5% 0% -5% -10% 2018 2019 2020 sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní 250 200 150 100 50 0 2010/11 2011/12 2012/13 2013/14 2014/15 2015/16 2016/17 2017/18 2018/19 2019/20 1.202 1.330 1.112 1.098 925 1.028 1.343 1.271 980 1.227 927 1.001 1.166 977 880 Botnfiskafli Uppsjávarafli Heildarafli 442 493 416 431 700 913 Verðvísitala botfiskafurða, 12 mánaða breyting í erlendri mynt, september 2018 til júní 2020 Kórónuveirufaraldur -7,8% -3,9% -2,0% 4,5% Botfiskafurðir: Ferskar Landfrystar Saltaðar Sjófrystar Þorskur Annar botnfiskur og flatfiskur Uppsjávarfiskur Skelfiskur og aðrar sjávarafurðir Gengisvísitala krónunnar 212 50 64 184 33 65 184 232 62 74 232 223 67 68 223 212 229 56 62 229 205 36 60 205 168 38 45 168 189 39 53 189 215 40 62 215 219 35 61 219 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is F iskveiðiárið 2019/2020 sem nú er að líða hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig, öðru nær. Ber hér hæst að nefna loðnubrest og áhrifin af CO- VID-19-faraldrinum. Þó má nú segja að hin fordæmalausa staða sem nú er uppi í heimsbúskapnum hafi sett allt aðra merkingu á hlutina. Þannig að þrátt fyrir að staðan í sjávarútvegi sé vissulega erfið og óvissan óvenjumikil, þá er hún samt allt önnur og betri en í mörgum öðrum atvinnugreinum,“ seg- ir Ásta Björk. Hún segir loðnubrest annað árið í röð hafa ver- ið verulega þungt högg fyrir mörg sjávarútvegsfyr- irtæki með til- heyrandi tekjutapi og afleiddum áhrifum. „Að loðnubresti und- anskildum,var ágætisgangur í sjávarútvegi þar til áhrifa COVID-19 tók að gæta. Slæmt tíðarfar yfir háveturinn torveldaði þó veiðar, en á heildina litið gekk fram- leiðslan ágætlega og ástandið á mörk- uðum var almennt gott. Staðan á mörkuðum umturnaðist á örskömmum tíma um miðjan mars þegar faraldurinn náði sér á strik, enda verður höggið þungt á eftirspurn þegar stór hluti jarðarbúa sætir út- göngubanni og vinnustöðum og landa- mærum er víða lokað. Þar ofan á rask- aði þetta ástand verulega flutningsleiðum afurða til söluaðila, sér í lagi með flugi en einnig sjó- og landleiðina. Það leiddi jafnframt til aukins kostnaðar fyrirtækjanna vegna flutninga á sama tíma og þrýstingur tók að myndast á verðlækkun afurða.“ Samdráttur í magni Fyrstu áhrif kórónuveirufaraldursins birtust í mars og var það sérstaklega auðsjáanlegt hjá fyrirtækjum sem flytja út ferskar afurðir með flugi, að sögn Ástu Bjarkar. „Ferðaþjónustan um allan heim er mikilvægur mark- aður fyrir matvæli og er ljóst að högg- ið er þungt þegar hún leggst nánast af í okkar helstu viðskiptalöndum. Þetta kom mest niður á eftirspurn eftir ferskum og sjófrystum afurðum. Ástandið virðist þó hafa batnað í byrj- un sumars þegar væntingar voru um að veiran væri á undanhaldi og í kjöl- farið fóru mörg ríki að slaka á sótt- varnaaðgerðum og fyrirtæki juku starfsemi sína á nýjan leik. Nú virðist sú bjartsýni hins vegar vera á miklu undanhaldi með aukinni tíðni sýkingar frá því um mitt sumar.“ Áhrif faraldursins á sjávarútveginn eru vel merkjanleg í útflutningstölum Hagstofu Íslands, útskýrir hún. „Far- aldurinn skellur á af fullum þunga um miðjan mars með tilheyrandi áhrifum á útflutning næstu mánuði. Samdrátt í útflutningsverðmætum á þessum tíma má fyrst og fremst rekja til sam- dráttar í útfluttu magni, en einnig verður þó nokkuð snarpur viðsnún- ingur á afurðaverði í erlendri mynt. Á móti vegur talsverð lækkun á gengi krónunnar sem vissulega styður við afkomu greinarinnar í krónum tal- ið enda eru um 98% sjávarafurða flutt út. Viðsnúningur á sér svo stað í júní og í þeim mánuði eykst útflutningur talsvert á milli ára, þá bæði í magni og verðmætum.“ Tafir valda skekkju Ásta Björk segir vísbendingar vera um að samdráttur hafi orðið á ný í júlí. Tekur hún sérstaklega fram að ekki sé hægt að fullyrða að þann samdrátt megi rekja til kórónuveirufaraldursins þrátt fyrir að hann hafi birst víða aftur um þetta leyti. „Hér ber að halda til haga að útflutningstölur fyrir tiltekinn mánuð endurspegla ekki að fullu það sem flutt var út í mánuðinum. Hluti af afurðunum kann að hafa verið fluttur út fyrir einhverju síðan en tafir geta verið á gögnum. Slíkur tímamismunur er algengari vegna gagna um uppsjáv- arafurðir en aðrar sjávarafurðir, en þetta leiðir til þess að erfiðara er að greina ástandið á hverjum tíma.“ Styrkur í skipulaginu Hún segir íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki nú standa frammi fyrir mikilli óvissu vegna kórónuveirufaraldursins og aðstæður kalli á breytingar í rekstri þeirra. Þá sé rekstur sjávar- útvegsfyrirtækja mjög fjölbreyttur og eru því áhrifin mismunandi á milli fyr- irtækja á framleiðslu, sölu og birgða- stöðu. „Í heildina virðist gangurinn í sjáv- arútvegi þó almennt hafa verið betri en á horfðist í fyrstu þegar faraldurinn skall á. Þar skiptir sveigjanleiki ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja og styrkur þess skipulags sem greinin býr við sköpum. Sjávarafurðir eru afar fjölbreyttar, bæði hvað varðar teg- undir og vinnsluafurðir. Ólíkir af- urðaflokkar sömu fisktegunda end- urspegla sveigjanleika, það er að svigrúm sé til tilfærslu á milli af- urðaflokka eftir aðstæðum, eins og þegar skellur kemur á eftirspurn. Áhersla sjávarútvegsfyrirtækja á að sækja á fleiri og ólíka markaði er ekki síður mikilvægur sveigjanleiki, enda er hægara um vik að bregðast við og leita annað þegar viðskiptasambönd eru víðar. Svo er það aflamarkskerfið, sem tryggir fyrirtækjum rétt til veiða á tilteknu aflamagni innan fisk- veiðiársins, ásamt samþættingu veiða og vinnslu og órofinni virð- iskeðju allt til erlendra kaupenda sjávarafurða,“ útskýrir Ásta Björk og bætir við: „Þótt ómögulegt sé að spá fyrir um framhaldið, sem ekki síst ræðst af því hvernig til tekst að ráða niðurlögum faraldursins víða um lönd, munu þessir eiginleikar vafalaust flýta fyrir aðlögun sjávar- útvegs að nýjum aðstæðum, en það hefur sjaldan verið mikilvægara fyr- ir þjóðarbúið en nú.“ Sveigjanleikinn gegnir lykilhlutverki Augljóst er að fiskveiðiárið sem er að líða undir lok hafi verið óvenjulegt fyrir margar sakir. Það þótti því viðeigandi að fá Ástu Björk Sigurðardóttur, hagfræðing Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, til að rýna í þróun mála undanfarna mánuði. Ásta Björk Sigurðardóttir 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.