Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.01.1989, Qupperneq 8

Bæjarins besta - 04.01.1989, Qupperneq 8
BB: 8 BÆJARINS BESTA F réttaannáll 1988 Enn eitt árið er gengið í garð og enn eitt árið er liðið í aldanna skaut. A tímamótum sem þessum er algengt að birt sé yfirlit yfir hitt og þetta. Yið hér á BB birtum hér fréttaannál ársins 1988. Annáll þessi er byggður á fréttum sem birtust í blaðinu á síðasta ári. Janúar í fyrstu forsíðufrétt ársins greindum við frá því að Félags- heimilið í Hnífsdal hefði verið slegið bæjarsjóði ísafjarðar á 5.1 milljón króna. Mikill hasar var á uppboðinu, og mikið boðið, og endaði með því að bæjarsjóði var slegin eignin eins og áðuf sagði. Pá greindum við einnig frá því að áramótin 1987-1988 mörkuðu viss tímamót í verslunarsögu ísa- fjarðarkaupstaðar, því þá var síðustu nýlenduvöruverslun kaupstaðarins, þar sem kaup- maðurinn afgreiddi sjálfur yfir borðið, lokað. Þegar heiðurs- maðurinn Jónas Magnússon lok- aði verslun sinni eftir 45 ára starf. Fyrsta barn ársins hér vestra fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði þann 4. janúar. Það var stúlka sem vó rúmar 16 merkur og var 55 sentímetrar. Foreldrar barnsins eru Guðfinna Steingrímsdóttir og Steinþór Ingi Gunnarsson. „Bíðum í ofvæni eftir snjón- um“ sagði Bergmann Ólafsson formaður Skíðaráðs ísafjarðar í viðtali við blaðið um miðjan jan- úar en þá voru skíðamenn farnir að örvænta um að snjór yrði á Dalnum á þeim vetrinum. En sem betur fer, fyrir þeirra hönd, kom snjórinn þannig að hægt var að halda öll þau mót sem voru á dagskrá vetrarins. Fimmtudaginn 7. janúar fór fram í kapellunni í Menntaskól- anum á ísafirði útför heiðurs- borgara ísafjarðarkaupstaðar, Ragnars H. Ragnar sem lést á aðfangadag jóla 1986. Bæjar- stjórn ísafjarðar annaðist útför heiðursborgarans í virðingar- og þakklætisskyni fyrir ómetanleg störf Ragnars að tónlistar- og menningarmálum í kaupstaðn- um um áratuga skeið. „Er kúfiskur það sem koma skal?“ hljóðaði fyrirsögn í blað- inu 20. janúar. Þar greindum við frá tilraunum Súgfirðinga við kúfiskveiðar sem gáfu góða raun er það var skrifað. Miklar vonir bundu Súgfirðingar við þessar tilraunir þótt engar niðurstöður væru komnar fram svona í upp- hafi veiðanna. í janúar var einnig fyrsti tal- kennarinn ráðinn til Vestfjarða. Það var Helga Ingibergsdóttir fóstra sem var ráðin en sárlega hafði vantað talkennara til starfa fyrir Fræðsluskrifstofu Vest- fjarða. Þá var einnig stofnuð nefnd um framhaldsnám á Vest- fjörðum á vegum Fjórðungssam- bands Vestfirðinga. Starf nefnd- arinnar var að safna gögnum um framhaldsnám á Vestfjörðum og koma með hugmyndir um nám þetta í framtíðinni. „Finnst við hæfi að kalla samninginn sólskinssamning“ sagði Pétur Sigurðsson í samtali við blaðið er hann undirritaði nýjan kjarasamning á milli Al- þýðusambands Vestfjarða og Vinnuveitendafélags Vestfjarða og Vinnumálasambands sam- vinnumanna. Kjarasamningur þessi var sá fyrsti sem gerður var á landinu og væntu menn þess að hann yrði fyrirmynd þeirra samn- inga sem næst yrðu gerðir á land- inu. Febrúar í byrjun febrúar sögðum við m.a. frá að Saleha Rahal frönskukennari við Menntaskól- ann á ísafirði hefði ákveðið að gefa bæjarbúum kost á tungu- málanámi gegn vægu gjaldi. Og á meðan Sahela leiðbeindi fs- firðingum, tapaði rökræðulið Menntaskólans fyrir Garðbæing- um í mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna. Það var ekki nema von að ísfirðingarnir töpuðu því þeirra hlutverk var að tala með því að rekstur kjarn- orkuvera yrði leyfður á íslandi. Aldraðir ísfirðingar komu saman í byrjun febrúar á Hótel ísafirði og drukku sólarkaffi aldraðra. Mikið af öldruðu fólki sótti samkomuna sem þótti takast vel, það vel að ákveðið var að halda annað sólarkaffi að ári. Sponsið, æskulýðsmiðstöð ís- firðinga, átti eins árs afmæli í Mikill kraftur færðist í atvinnulífið í Bolungarvík í apríl. Með- al annars kom Sólrún að landi með um 100 tonn af rækju eftir 20 daga túr að verðmæti um 10.5 milljónir króna.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.