Bæjarins besta - 04.01.1989, Blaðsíða 13
BÆJARINS BESTA
13
sigldi Guðbjörg ÍS 46 inn í ísa-
fjarðarhöfn í fyrsta sinn í sex
vikur eftir gagngerðar breyting-
ar sem gerðar voru á skipinu
Sichau skipasmíðastöðinni í
Bremerhaven í Þýskalandi.
Helstu breytingarnar sem gerðar
voru á skipinu eru þær að það
var lengt um 11.4 metra, skipt
var um bógskrúfu, og talsverðar
breytingar voru gerðar á milli-
dekki.
Laugardaginn 21. maí var
Menntaskólanum á ísafirði slitið
í 18.sinn. 246 nemendur stund-
uðu nám við skólann um vetur-
inn, þar af 133 í hefðbundnum
dagskóla Menntaskólans. Dux
schoale varð að þessu sinni
Rögnvaldur Daði Ingþórsson frá
fsafirði.
„Grjótið kom yfir bílinn áður
en við vissum af“ sögðu þau
hjón, Guðdís Guðmundsdóttir
og Sigurvin Guðmundsson en
þau hjón urðu fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að fá
grjóthnullunga ofan á bíl þeirra
er þau áttu leið um Óshlíðarveg.
Þau hjón hlutu sem betur fer að-
eins minniháttar meiðsl en litlu
mátti muna að stórslys yrði.
Nýr bátur bættist í flota ísfirð-
inga í lok maímánaðar. Var þar
um að ræða 53 tonna stálbát,
smíðaðan í Svíþjóð. Eigandi
bátsins er Arnór Sigurðsson.
Báturinn er útbúinn sem tog-
veiðiskip og fór á rækju og
hörpudiskveiðar.
Húsmæðraskólinn Ósk hélt
upp á stórafmæli, einnig í lok
maí. Skólinn varð 75 ára, og
voru veisluhöld mikil. Mikið af
gömlum nemendum sóttu skól-
ann heim og rifjuðu upp gamlar
stundir. í tilefni afmælisins sam-
þykkti skólanefnd skólans að
Jón F>. Þór myndi skrásetja sögu
skólans.
Júní
Sjómannadagurinn var hald-
inn hátíðlegur fyrsta sunnudag í
júní. Tvær konur og einn karl
voru sæmd merki sjómannadags-
ins en það voru þau Gréta Jóns-
dóttir, Kristján Jónsson og Sig-
ríður Brynjólfsdóttir.
Sinfóníuhljómsveit íslands var
á tónleikaferðalagi um Vestfirði
í júní. Nokkrir hljómsveitarmeð-
limir komu saman við leiði
Ragnars H. Ragnars ásamt Sig-
ríði J. Ragnar eftirlifandi eigin-
konu Ragnars og öðrum að-
standendum. SigurðurBjörnsson
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar lagði blóm-
sveig á gröf Ragnars og minntist
hans í fáum orðum. Þá lék blás-
arasveit fallegan sálm.
„Það sem var draumsýn fyrir
tíu árum er nú orðið að veru-
leika“ sagði Jón Páll Halldórs-
son við opnun sjóminjadeildar
Byggðasafns Vestfjarða í Turn-
húsinu í Neðstakaupstað. Mikil
hátíðarstemmning var við opn-
unina. Meðal ræðumanna voru
auk Jóns Páls, þeir Steingrímur
Hermannsson, Pétur Kr. Haf-
stein og Haraldur L. Haralds-
son. Karlakórinn Ernir í Bolung-
arvík söng og Harmonikkufélag-
ar léku tónlist við allra hæfi.
Það vakti athygli blaðamanna
BB er þeir áttu leið um Óshlíð
að gríðarlega stórt net var fyrir
ofan veginn. Þegar betur var að
gáð kom í ljós að hér var um að
ræða sérhannað net sem á að
geta komið í veg fyrir meirihátt-
ar grjóthrun yfir veginn. „Þessi
net hafa verið notuð mikið er-
lendis og reynst vel“ sagði Krist-
inn Jón Jónsson hjá Vegagerð
ríkisins í samtali við BB.
Starfsmenn Pólstækni sendu
frá sér, til Reykjavíkur, merkis-
tæki sem þeir kalla freðfiskflaka-
flokkara. Flokkarinn sem sendur
var suður var settur upp í
Granda hf. Það má því með
sanni segja að þar hafi ísfirskt
hugvist farið til Reykjavíkur,
sem og svo oft áður.
Þjóðhátíðardaginn 17. júní
opnaði skemmtistaðurinn Krús-
in á nýjum stað. Krúsin hafði
áður verið til húsa í Ljóninu
Skeiði en var nú komið í „hjarta
bæjarins" í kjallarann í Alþýðu-
húsinu. Steinþór Friðriksson,
Dúi, eigandi Krúsarinnar hafði
tekið allt húsið á leigu, þar með
talið Ísafjarðarbíó.
Félagar í Skógræktarfélagi
ísafjarðar létu hendur heldur
betur standa fram úr ermum í
júní. Þá gróðursettu þeir yfir
3000 plöntur á svæðinu fyrir ofan
Seljalandsveg, rétt hjá afleggjar-
anum að skíðasvæðinu á Selja-
landsdal.
Nokkurra erfiðleika gætti í
rekstri Pólstækni hf í júní, eins
og hjá öðrum fyrirtækjum sem
óbeint byggja á sjávarútvegi í
landinu. Forráðamenn fyrirtæk-
isins ákváðu að „blása í seglin“
og það gerðu þeir með því að
auka hlutafé fyrirtækisins um 20
milljónir króna. Samfara því
keypti Pólstækni 40% hlutafjár í
fyrirtækinu Rekstrartækni hf í
Reykjavík.
Hvert áfallið rak annað hjá
Súgfirðingum sögðum við í frétt í
júní. Meðal þeirra áfalla sem
sveitarfélagið varð fyrir var að
hitaveitan þeirra skilaði ekki því
sem af henni var vænst.
Hin árlega ökuleikni Bindind-
isfélags ökumanna og DV var
haldið sunnudaginn 26. júní á
ísafirði. ísfirðingar stóðu sig vel
í keppninni á landsvísu. Ragnar
Ingólfsson sigraði í karlaflokki
og Oddný Birgisdóttir í kvenna-
flokki.
í júnímánuði varð síðan sú
breyting á dreifingu BB að þá
var blaðið í fyrsta skipti í stuttri
sögu þess dreift um alla Vest-
firði.