Bæjarins besta - 04.01.1989, Page 9
BÆJARINS BESTA
9
febrúar. Unglingarnir héldu upp
á daginn með mikilli hátíð sem
stóð í tvo daga. Meðal annars
skemmti Bjartmar Guðlaugsson
unglingunum og svo var bökuð
stærsta afmælisterta sem sögur
fara af á Vestfjörðum.
Ástand símakerfisins hér á
svæðinu var mikið til umræðu í
febrúar. Á mestu álagstímunum
var ástandið stundum þannig að
ógjörningur var aö fá línu og svo
vildu símtöl stundum slitna fyrir-
varalaust. Ástandið var orðið
það slæmt að bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur sá ástæðu til að sam-
þykkja ályktun um símamálin
þar sem m.a. sagði „að við ríkj-
andi ástand yrði ekki lengur
unað“. Umdæmisstjóri Pósts &
Síma sagði ástandið ekki eins og
best yrði á kosið en vænta mætti
breytinga á næstunni.
Einnig greindum við frá því að
fasteignagjöld á norðanverðum
Vestfjörðum væru hæst á ísafirði
en lægst í Súðavík svo og að
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf
hefði skrifað undir samning um
nýsmíði fyrir Sandgerðinga. Var
þar um að ræða skip svipað
Sigga Sveins mb. sem stöðin
smíðaði fyrir Rækjuverksmiðj-
una hf í Hnífsdal.
Forsvarsmenn útgerðarfyrir-
tækisins Hrannar hf gengu í febr-
úar frá samningum um lengingu
á aflaskipinu Guðbjörgu við
Vestur- Þýskti skipasmíðastöð-
ina Sichau í Bremerhaven. Til-
boðið hljóðaði upp á 44 milljónir
króna.
Mennt er máttur og það er
leikur að læra. Kennarar eru oft-
ast nær í hlutverki kennarans
eða leiðbeinandans eins og þeir
heita nú margir hverjir í dag en í
febrúar síðastliðnum snerist
dæmið við því þá settust kennar-
ar á Vestfjörðum á skólabekk
yfir eina helgi í Reykjanesi. Á
námskeiðinu var farið yfir ýmiss-
konar nýjungar í kennsluháttum
auk þess sem kennurunum var
kennd gerð leikbrúða og notkun
þeirra við kennslu.
Súgfirðingar eignuðust sinn
snjóbíl í febrúar. Bíllinn sem er
sömu gerðar og snjótroðarinn
sem notaður er á Seljalandsdal
kostaði tæpar þrjár milljónir
króna og er hlutverk hans fyrst
og fremst hugsað sem öryggis-
tæki.
Staða fiskvinnslunnar var
slæm í febrúar sem endranær,
kannski verri, því þá sáu for-
svarsmenn fiskvinnslunnar á
Vestfjörðum sig knúna til að
kalla sína þingmenn heim í hér-
að til skrafs og ráðagerða. Rætt
var um hin ýmsu vandamál
greinarinnar og m.a. samin á-
lyktun sem beint var til ríkis-
stjórnarinnar.
Leikfélag Flateyrar frumflutti
„Fimm konur“ í félagsheimilinu
á Flateyri þann 27. febrúar undir
leikstjórn Oktavíu Stefánsdótt-
ur. Og þann 23. febrúar var
Martha Jörundsdóttir var kjörin Ungfrú Vestfirðir 1988 í veit
ingahúsinu Uppsölum í mars.
Sumardagurinn fyrsti var stór dagur í líf vistmanna Bræðrat-
ungu. Þá fengu þeir að gjöf frá Svæðisstjórn um málefni fatl-
aðra á Vestfjörðum, Renault Traffic, sendiferðabíl, útbúinn
hjólastólalyftu.
vöruhöfn við Sundahöfn form-
lega tekin í notkun. Fyrirhugað
hafði verið að hafa athöfn á
höfninni sjálfri og átti Júlíus
Geirmundsson ÍS 270 að leggjast
að henni kl. 16 og með því að
vígja hana. Sökum hvassviðris
gat ekki af því orðið.
Mars
f byrjun mars var undirritaður
samningur á milli Álftfirðings hf
í Súðavík, útgerðarfélags Bessa
ÍS 410 og norsku skipasmíða-
stöðvarinnar í Flekkefjord um
smíði á nýjum Bessa. Átta tilboð
bárust í verkið, það lægsta uppá
190 milljónir króna en það hæsta
480 milljónir. Áætlað er að nýr
Bessi komi haustið 1989.
Fjölmennur fundur var haldin
á Hótel ísafirði um jarðgöng á
Vestfjörðum að tilstuðlan Fjórð-
ungssambands Vestfirðinga.
Meðal fundarmanna voru sveit-
arstjórnarmenn víðsvegar af
ÁLFABRENNA
Álfabrenna verður á
íþróttavellinum við
Hreggnasa í
Bolungarvík
föstudagskvöldið
7.janúarl989
kl. 20.00