Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.1989, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 21.06.1989, Qupperneq 6
6 BÆJARINS BESTA Lesendur: Pétur Bjarnason skrifar: Mikið gengur á SMÁAUGLÝSINGAR Flugmenn Helgina 23.-25. júní verður flugkennari staddur á ísafirði vegna PFT-prófa. Þeir flug- menn sem vilja taka próf hafi samband við Hörð Ingólfsson í 0 4400 á daginn og í 04304 á kvöldin. Aríðandi er að þátttaka sé tilkynnt sem fyrst. Mazda 929 Til sölu er Mazda 929, árgerð 1980, skoðaður 1989. verð kr. 60.000,- staðgreitt. Upplýsingar í 0 3673. Túnþökur Til sölu eru túnþökur. Upp- lýsingar í 0 4958. Einbýlishús Til sölu er húseignin að Höfðastíg 14, Bolungarvík. Upplýsingar í 0 7327. Bamavagn Til sölu er Emmaljunga barnavagn ásamt burðar- rúmi. Hægt er að taka burð- arrúmið úr og nota vagninn sem kerru. Upplýsingar í 0 3641. Tangagata 17 Húseignin að Tangagötu 17 er til sölu eða leigu frá og með 1. ágústn.k. Upplýsingar í 0 4676. Tapað - fundið Lyklakippa tapaðist á Eyr- inni. Hún er úr brúnu leðri merkt með bókstafnum A. Finnandi hafi vinsamlega samband í 0 4535. Garðeigendur Get útvegað og komjð heim með góða gróðurmold. Ekk- ert grjót. Upplýsingar í 0 985-28107 ogí0 4107. Riffill Til sölu er Mauser herriffill, caliber 6,5x55 með 3x9 tasco kíki. Uppl. í 0 7383. Tjaldvagn óskast Óska eftir Combicamp tjald- vagni, gömlum eða nýlegum. Upplýsingar í 0 7178. Hveravík, Reykjanesi Shmarhús. Ennþá eru nokkr- ar vikur lausar. Þeir sem hafa áhuga hafi samband sem fyrst. UpplýsingargefurMar- grétí0 7586 ogí0 3963. Einbýlishús Til leigu er 145 m2 einbýlishús í norðurbæ Hafnarfjarðar. Uppl. í 0 7418 e.kl. 19. Ritreiknivél óska eftir að kaupa ritvél og reiknivél. Uppl. í 0 4027. Pabbar og mömmur! Nú er gæsluvöllurinn líka op- inn á morgnana frá kl. 10 til 12. Það er mjög góður tími fyrir 2ja ára börn. Gæslukonur HUGSAÐI ég þegar ég var að lesa blöðin ykk- ar, þar sem rætt er um Reykjanesskóla og veist all harkalega að starfi og starfs- heiðri Skarphéðins Ólafsson- ar, skólastjóra, bæði af við- mælendum og blaðinu sjálfu, án nokkurs eðlilegs rök- stuðnings um þau atriði, sem dylgjað er um. Eg hefi nú um nokkurt ára- bil verið viðloðandi kennslu í grunnskólunum, fyrst á ísa- firði og nú síðast í Reykja- nesi. Eg sé ekki þann mun á þessum skólum, að ég geti komið auga á það agaleysi, sem mest áhersla er lögð á. Skarphéðinn Ólafsson er kurteis og dagfarsprúður maður. Hann er undirmönn- um sínum traustur stjórnandi og segir þeim skilmerkilega fyrir verkum og er alltaf reiðubúinn til aðstoðar ef þörf er á. Nemendum sínum er hann hlýr og umhyggju- samur, sérstaklega þeim yngstu og gætir þess vel að þeir verði ekki fyrir áreitni frá þeim eldri. Námsárangur í skólanum er góður og próf koma vel út. Nemendur eru ánægðir með kennsluna og sáttir við stjórnun skólans undir hand- leiðslu Skarphéðins. Eitt dæmi get ég tekið frá síðast- liðnum vetri, sem sýnir hvað upp á getur borið og hvernig á er tekið. Einn aðalvandinn við slík sambýli, sem hér er, er að varna samgangi milli vista eftir vistum hefur verið lokað á kvöldin og samgangur þar með bannaður til næsta morguns. Forveri Skarphéð- ins hafði leyst þann vanda með þeim einfalda hætti að setja rimla fyrir gluggana og læsa ganghurðum að utan- verðu. Börnin voru því tryggilega inni læst og lokuð til næsta morguns, alla nótt- ma. Þessi umbúnaður hefur nú verið bannaður og tekinn burt og lyklar að gangahurð- um settir í glerkassa á vistar- göngum, svo að vistarbúar geti brotið kassana og náð lyklunum ef hættu ber að höndum t.d. eldsvoða. Þessi ákvörðun opnaði auðvitað þær leiðir, sem áður voru lokaðar og hefðu að öllu eðlilegu útheimt næturvörð á vistarganga. En fjárveitingar til skólans gera ekki ráð fyrir slíkum útgjöldum. Nú gerðist það í vetur að Pétur Bjarnason. nemendur á efri hæð bundu saman lök og fatnað og renndu sér út um glugga og til jarðar. Upp komst um til- tækið og voru þau rekin inn aftur. Að morgni næsta dags voru þau yfirheyrð og gert ljóst að stórkostleg slysa- hætta hefði fylgt þessu til- tæki, auk þess að vera slæmt fordæmi fyrir yngri nemend- ur. Þeir fengu síðan stranga áminningu skólastjóra og var síðan vísað úr skóla um af- markaðan tíma og send til síns heima. Hefur skólastjóri nokkuð annað agavald en að vísa nemanda úr skóla? Um mis- langan tíma eftir eðli afbrota. Hvaða agavaldi er verið að tala um að ekki sé beitt? Hvað hefur upp á sig að ætla að fara leggja hendur á 14-15 ára stráka og ætla að þröngva þeim til hlýðni ef ekki er hægt að tala um fyrir þeim? Má maður ekki þykjast góð- ur að sleppa frá því með kumlað nef? Ég hafði undir höndum í vetur strákana, sem helst var kvartað undan í matsalnum, þ.e.a.s. strákana úr tveimur efstu bekkjum skólans. Ég þurfti ekki að kvarta undan agaleysi. Mæting í tíma var prýðileg og þeir unnu um- yrðalaust hvert það verkefni sem fyrir þá var lagt og tóku allri tilsögn með kurteisi. Aðrir kennarar hér í vetur og fyrravetur hafa sagt sömu sögu. Þeir kvörtuðu ekki um agaleysi. Það er rétt að hér hafa komið upp vandamál, sem fylgja því að vegna kennara- vandræða hér sem annars staðar á landsbyggðinni, hef- ur oft orðið að taka þeim kröftum, sem bjóðast, án þess að eiga nokkuð val. Þetta fólk ber oft með sér vandamál, sem aðallega er að það ræður ekki við verkefn- ið, sem það réði sig til, og leitast svo við að kenna öðr- um um, og hafa nógu hátt, svo að aðrar raddir heyrist ekki. En vandamálin hurfu líka um leið og fólkið fór og þeir, sem við tóku kvörtuðu ekki og tókst með sóma að ljúka skólaári. Undanfarna vetur hefur tekist vel með kennaraval og kennsla gengið vel fyrir sig og vonandi verður svo í framtíð- inni, ef friður gefst til. Ég les að jafnaði blaðið ykkar og finn þar margt gott sem ég hefi ánægju af að lesa. En hún Gróa á Leiti er svo fljót að setja svip sinn á um- hverfið ef henni er ekki hald- ið á mottunni. Og þá fer mann að lysta frá því, sem fram er borið. Reykjanesi 10. júní 1989 Pétur Bjarnason Silfurgötu 2, ísafirði. SMÁAUGLÝSINGAR Cordia Til sölu er Mitsubishi Cordia, árgerð 1983. Góður bíll, gott verð. Upplýsingar í 0 3647 á kvöldin. Herbergi Herbergi er til leigu á Hlíðar- vegi. Aðstaða til eldunar og bað. Upplýsingar í 0 4532e. kl. 17. Barnapía Barnapía óskast fyrir tvö börn 5 og 6 ára. Upplýsingar í 0 4532 e.kl. 17. Bíll óskast Óska eftir að kaupa bíl á 100.000.- gegn staðgreiðslu. Verður að vera í góðu lagi. Upplýsingar í 0 7661. Golfvöllur Vinnukvöld öll næstu mán- udagskvöld. Mætum öll. Golfklúbbur ísafjarðar Daihatsu Cuore Til sölu er Daihatsu Cuore, árgerð 1987. Ekinn 26.000 km. Upplýsingar í 0 3801 eða í 0 4167. íbúð óskast Óskum eftir að leigja 2ja til 3ja herbergja íbúð í eitt ár. Upplýsingar gefurAxeIí0 6218. Atvinna óskast Ungur maður óskar eftir at- vinnu á ísafirði. Allt kemur til greina. Get byrjað strax. Upplýsingar gefur Axel í 0 6218. íbúð til sölu Til sölu er á gjafverði, 2ja herbergja íbúð í Bolungar- vík. Selst á kr. 1.600.000.- Matsverð kr. 2.800.000,- Áhvílandi lán eru um kr. 500.000,- íbúðin er laus strax. Uppl. í 0 96-27262. Einbýlishús til leigu Til leigu er einbýlishús í Bol- ungarvík. Leiguskipti á 3ja- 4ra herbergja íbúð á Reykja- víkursvæðinu kemur til greina. Upplýsingarí 0 7457 eftirkl. 17. Kettlingar Kettlingar fást gefins. Upp- lýsingar í 0 7457 e. kl. 17. Utimarkaður Útimarkaður verður á Silf- urtorgi, föstudag kl. 14.00 Kvennalistinn Opinn fundur Kristín Halldórsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir ' á opnum fundi í Staupasteini, laugardag kl. 11 árdegis. Morgunverður á staðnum. Barnagæsla. Kvennalistinn Golfsett Óska eftir að kaupa hálft golfsett. Uppl. í 0 4244. GARÐSNYRTITÆKIN FRA SKIL ERU BYGGÐ SAMKVÆMT STRÖNGUSTU ÖRYGGIS- OG NEYTENDAKRÖFUM. SLÁTTUORF, KJÖRIN FYRIR LITLA OG ÓJAFNA GARÐA. VIÐURKENND AF RAFMAGNSEFTIRLITI RÍKISINS. PÓLLINN HF VERSLUN SÍMI 3792

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.