Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.1989, Side 17

Bæjarins besta - 21.06.1989, Side 17
BÆJARINS BESTA 17 Hreinsunarátak 1989: Góðan daginn gakktu vel um bæinn Höf: Jón F. Bjarnþórsson s AFRAM höldum við leið okkar um bæinn í þeim tilgangi að vekja athvgli á þeirri nauðsyn að ganga bet- ur um. Leið okkar liggur að smábátaskemmunni. I því húsnæði er rekið lítið frysti- hús, eitt hið minnsta á land- inu að sagt er. í fyrrasumar höfðum við tal af eiganda og stjórnanda fyrirtækisins. Sund sf. Við bentum eigandanum á nauðsyn þess að betri um- gengni væri við fyrirtækið. Nokkuð hefur verið unnið að m.a. að flytja til vörubíls- hræ sem stóð við húsið. Enn vantar nokkuð á að um- hverfið verði eins og best verður á kosið. Hins vegar má merkja vilja eigenda til bættrar umgengni. Herslumuninn vantar. Athafnasvæði Pósts og síma. Þarna þarf að fjarlægja rusl, ásamt því að hressa upp á útlit hússins. Hér er um opinbera stofnun að ræða, sem ætti að vera til fyrirmyndar. Bolungarvíkurkaupstaður Umhverf is vernd! Orðsending til fyrirtækja og einstaklinga í Bolungarvík. Af marggefnu tilefni er hér með ítrekað að öll brennsla sorps og ann- arra úrgangsefna er með öllu óheimil í Hólsgryfju. Brennanlegt sorp og úr- gang skal flytja í sorpeyðingarstöðina á Skarfaskeri. Þeir sem verða uppvísir að því að kveikja elda í Hólsgryfju eiga það á hættu að verða krafðir um greiðslu vegna kostnaðar við útkall og vinnu við að slökkva eldana í gryfjunni. Þess er fastlega vænst að hlutaðeig- endur virði þessa sjálfsögðu beiðni bæjaryfirvalda og ekki komi til þess að beita þurfi refsiviðurlögum. Bæjarstjórinn í Bolungarvík Rækjustöðin hf. Við nýbyggingar má gera ráð fyrir einhverju rusli. Hins vegar geta byggingar- aðilar sé svo um að ekki stafi af því mengun eða óprýði. Við ræddum við forstöðu- mann þessa fyrirtækis síðastliðið sumar og fórum þess á leit við hann að um- hverfi fyrirtækisins yrði snyrt. Nokkuð hefur áunnist því merkja má betri um- gengni. Hins vegar vantar enn nokkuð á að viðunandi sé. Um er að ræða fyrirtæki í matvælaiðnaði sem ætti að leggja alla áherslu á snyrti- legt umhverfi. Gera þarf þá kröfu til starfsmanna slíkra fyrirtækja að þeir gangi vel og snyrtilega um athafnar- svæði. Nidursuöu- verksmidjan hf. Síðastliðið sumar áttum við viðræður við forstöðu- mann þessa fyrirtækis. Bent- um við honum á slæma um- gengni, sérstaklega á athafnarsvæði (plani) fyrir- tækisins. Fugl hafði greiðan aðgang að úrgangsrækjuskel sem geymd var við fyrirtæk- ið í opnum körum. Enn er um þetta að ræða. Rækjuskel er geymd í opnum kerjum og stundum má sjá rækjuskel fjúkandi um nágrennið. Hér þarf að ganga betur frá. Við vitum að fyrirtækið hefur mikinn áhuga á fegrun um- hverfisins. Því þarf að fram- fylgja. Bjartmar hf. Á síðastliðnu ári var rætt við forstöðumann þessa fyrir- tækis. Nú hafa nýir eigendur tekið við rekstrinum. Ástæða þykir enn til að benda á, að betur má ganga um við fyrirtækið. Taka þarf til í porti eða grunni við ný- byggingu. I’á þarf að ganga betur um og þrífa við mót- töku hráefnis. Hér er um að ræða fyrirtæki í matvæla- framleiðslu og krafan því mikil varðandi hreinlæti. Við trúum því að hinir nýju eigendur sjáum að svo verði. Nýbygging Verið er að byggja milli Bjartmars hf. og Niðursuðu- verksmiðjunnar hf. Eins og venjulega þegar um nýfram- kvæmdir er að ræða má gera ráð fyrir einhverju rusli. Hins vegar er hægt að tak- marka það eins og kostur er. Bakvið þetta fyrirtæki (við Sundstræti) er kofahróald, opið öllum sem vilja um ganga. Fjarlægja þarf þennan kofa sem er ekkert annað en til óprýði. Þá þarf að fjar- lægja þarna af lóðinni brot af einhverju sem sennilega hef- ur vérið ljósastaur. Töluverð eldhætta getur þarna skapast ef einhverjir óvitar færu þarna með eld. z uNu tölvuvindan veiðir fyrir þig DNG tölvu- vindan er óþreytandi vinnukraftur algjör sjálf- virkni með tölvu stýringu eykur hraða og sparar ómælda vinnu. DNG tulvuvindan er byggð úr seltuþolnu áli og ryðfríu stáli. Stjórnkerfið er þakið plastefni til varnar titringi, höggum og raka. Vindan er þrýstiprófuð í vatni áður en hún fer frá verksmiðju, þannig er tryggt hámarks öryggi og lágmarks viðhald. Þjónustu- aðilum DNG fjölgar sífellt um allt land. Kappkostað er að hafa þjónustuna mjög góða. Það er á færi flestra að eignast það besta, DNG tölvuvindu, því við bjóðum góð greiðslukjör og kaupleigusamninga. Óseyri 4, Akureyri. Pósthólf 157 J

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.