Bæjarins besta - 21.06.1989, Blaðsíða 13
BÆJARINS BESTA
13
ísafjörður:
Sr. Jakob kvaddi
á laugardag
SR. JAKOB Ágúst
Hjálmarsson nýráðinn
Dómkirkjuprestur kvaddi
söfnuð sinn síðastliðinn laug-
ardag kl. 11 í kapellunni í sal
Menntaskólans. Um tvö
hundruð og fimmtíu manns
voru viðstaddir messuna,
heldur færri heldur en höfðu
ætlað sér að vera viðstaddir.
Ástæðan! Eina auglýsing-
in sem birtist um kveðju-
messuna og birtist í Vest-
firska fréttablaðinu var ekki
rétt. Þar stóð að messan yrði
á sunnudag kl. 11 og voru
margir á leið til kirkju þá til
að heyra lokamessu Sr. Jak-
obs, hér á ísafirði.
Sr. Jakob hélt kveðjumessu
sína á laugardag.
Æskulýðsstarf:
„Líf og fjör“
á Tálknafirði
DAGANA 7. til 9. júlí
næstkomandi verður
haldin æskulýðs- og íþrótta-
hátíð á Tálknafirði undir yfír-
skriftinni „Líf og fjör.“ Að
hátíðinni standa tíu sveitarfé-
lög á Vestfjörðum og eiga
þau öll fulltrúa í starfshópi
sem vinnur að undirbúningi.
Nefndin hefur kosið sér
þriggja manna framkvæmda-
ráð sem hefur yfirumsjón
með hátíðinni. Ingibjörg
Guðmundsdóttir íþrótta-
kennari er fulltrúi Tálkna-
fjarðar í nefndinni og sagði
hún í samtali við BB að und-
irbúningur væri langt kom-
Hátíðin fer að mestu fram
á svokölluðu Þinghólstúni.
Þar verða leikir, þrautir,
frjálsíþróttir, hjólarallí, fót-
boltamót, kvöldvökur við
varðeld í umsjá skáta, úti-
dansleikir og ýmis konar
skemmtiatriði. Þá fer einnig
fram sundmót og róðra-
keppni. Unnið er að því að fá
góðar hljómsveitir fyrir dans-
leikina og víst er að einhver
stór nöfn verða á staðnum.
Ingibjörg sagði hátíðina mið-
aða við þátttöku barna og
unglinga en allir væru vel-
komnir.
Rauöi krossinn:
Sumardvöl
fyrir aldraða
RAUÐA kross deildirnar
á Vestfjörðum hafa nú
skipulagt sumardvöl fyrir
aldraða að Eiðum S-Múla-
sýslu. Dvölin er frá 17. ágúst
til 24. ágúst.
Flogið verður frá Þingeyri
beint til Egilsstaða. Farið
verður í ferðir um Austfirði.
Pantanir og allar upplýsingar
fást eftir 20. júní hjá Sigrúnu
G. Gísladóttur, Sólbakka, s.
94-7770 og Helgu Jónasdótt-
ur á Tálknafirði s. 94-2606.
Fréttatilkynning
-NÝ
★ ★ SJALLINN: *
■ i
DONSK
- JÁ ÞAÐ ER RÉTT SEM ÞÚ LEST. HLJÓMSVEITIN
NÝ DÖNSK, SKEMMTIR GESTUM SJALLANS
UM HELGINA.
Föstudagskvöld Laugardagskvöld
frá kl. 23 til 03
Aldurstakmark
16 ár
frá kl. 23 til 03
Aldurstakmark
18 ár
EÆIARINS BESTA A 11 r1
TX7M-PRFNT Allar Serðir af tolvu"
lxNíí rnLnll og límpappír á lager.
Sími 4560
Sláttu-
véla-
markaður
... og bíltækjasýning
Föstudaginn 23. júní verður
kynning á sláttuvélum, vélorfum
og garðhúsgögnum.
Einnig verða sýnd nýjustu
bíltækin frá Pioneer.
Ath. Opið verður frá kl. 13 til 21.
10% kynningarafsláttur.
RAFSJA
Hólastíg 6
BolungarvíkS 7326.