Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.08.1989, Page 2

Bæjarins besta - 10.08.1989, Page 2
2 BÆJARINS BESTA Djúphrepparnnir: íhuga að hætta við íbúðarkaup í Hlíf Fengu upplýsingar um hækkun á íbúðaverðunum í síðustu viku i Oddvitar Djúphreppana eru ekki sáttir við að íbúðir þeirra í Hlíf hafa hækkað mikið í verði. REPPSNEFNDIR Djúphreppanna fjog- urra sem aðild eiga að Bsvf. Hlíf funda nú á næstunni um hvort hrepparnir dragi sig út úr félaginu og hætti við íbúðakaup. Ástæðan er sú að sögn Sigmundar Sig- mundssonar oddvita Reykja- fjarðarhrepps að komið hef- ur í Ijós að íbúðirnar eru mun dýrari en samningur segir til um og munar þar mest um fjármagnskostnað sem reiknaður er á íbúðirnar samkvæmt eignarhlutföllum. Djúpmenn voru ekki boðnir á fundinn sem hald- inn var með íbúðakaupend- um fyrir nokkrum vikum og sagt var frá í BB. Þeir fengu að vita endanlegt verð á íbúðunum fyrst í síðustu viku á fundi með Baldri Ólafs- syni, starfsmanni stjórnai Hlífar. Sem dæmi má nefna að verðið á íbúð Nauteyrar- hrepps var áætlað 1,8 millj- ónir en er nú um 5 milljónir. Á fundinum kom einnig fram, að sögn Ástþórs Ágústssonar oddvita Naut- eyrarhrepps, að þrátt fyrir munnlegt samkomulag við Halldór Guðmundsson fyrr- verandi framkvæmdastjóra Hlífar þá sótti stjórnin aldrei um styrk fyrir hreppana hjá Framkvæmdasjóði aldraðra. Samkvæmt reglugerð sjóðsins eiga þeir rétt á framlagi sem nemur 20% af kaupverði og að sögn Ást- þórs taldi hann víst að sótt hefði verið um styrk fyrir Nauteyrarhrepp fyrir löngu. „Framkvæmdasjóðurinn er búinn að láta félagið hafa 5 milljónir króna en við höfum ekki fengið að vita fyrir hvern“ sagði Ástþór. „Bald- ur Ólafsson segir þennan styrk ótilgreindan en við erum allt eins þeirrar skoð- unar að þessi styrkur hafi verið eyrnamerktur okkur og fylgt honum það skilyrði að honum yrði skipt á Djúp- hreppana eftir eignahlutföll- um.“ Baldur Ólafsson sagði í samtali við BB að hann vissi ekki til að sótt hefði verið um fyrir Djúphreppana en þeir gætu sótt um sjálfir. Baldur mun koma aftur til fundar við oddvita Djúp- hreppana í næstu viku og þá verður væntanlega útkljáð hvort þeir hætta við íbúða- kaup eða ekki. ** SJALLINN:* * *■ Feikna fjör Diskótek föstudagskvöld kl. 23 - 3. Diskótek laugardagskvöld kl. 23 - 3. Aldurstakmark18ár. Myndlist: ísfirðingur sýnir í Slunkaríki AUGARDAGINN 12. ágúst kl. 16 opnar Guð- rún Guðmundsdóttir sýn- ingu í Slunkaríki. Þetta er fyrsta sýning Guðrúnar á heimaslóðum, en áður hefur hún haldið tvær einkasýning- ar í Reykjavík og Iowa City. Auk þess hefur hún tekið þátt í þremur stórum sam- sýningum í Bandaríkjunum. Öll verk Guðrúnar á sýning- unni í Slunkaríki eru þrívíðar veggmyndir úr handunnum pappír. Guðrún stundaði nám í Kaupmannahöfn um þriggja ára skeið, en hélt síð- an til Bandaríkjanna og lauk BFA prófi frá háskólanum í lowa sl. vor. í haust hefur hún síðan framhaldsnám í trefjalistum við listaakadem- íuna í Chicago. Sýning Guðrúnar stendur til 27. ágúst og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18. Einherjar-Valkyrjur: Skátar halda til Noregs FJÓRIR skátar úr skáta- félaginu Einherjar-Val- kyrjur halda ásamt 38 öðrum íslenskum skátum til Noregs á föstudag til að taka þátt í landsmóti norskra skáta. Mótið verður haldið dag- ana 5. - 12. ágúst á búgarði Haraldar krónprins Noregs, Skaugum, rétt sunnan við Osló. Á mótinu, sem er flokkamót, munu skátarnir taka þátt í hinum fjölbreytt- ustu skátastörfum og má þar nefna 24 stunda gönguferð þar sem sofið verður undir berum himni. Að afloknu mótinu heldur íslenski hópurinn á heima- slóðir vinasveitar sinnar, skáta frá Lillehammer og ferðast um til 17. ágúst. Pósturinn: Pennavinir óskast ylÐ hér á BB fengum um daginn bréf í póstin- um sem var reyndar ekki stflað til okkar heldur var utanáskriftin „Til 12 ára stelpu á Isafirði, íslandi.“ Þau hjá póstinum töldu ráð- legast að biðja okkur um að koma bréfínu á framfæri og það gerum við: Bréfið er skrifað á ensku og bréfritari er Karin lller- ström frá Katrineholm í Sví- þjóð. Hún vill gjarnan eign- ast pennavin á Isafirði. Hún segist hafa mikinn áhuga á hestum, bæði íslenskum og arabískum, og fer reglulega í reiðtíma. Áhugamálin eru dýr, lestur, og bréfaskriftir. Við vonum að einhver vilji skrifast á við þessa hug- myndaríku sænsku stúlku og heimilisfangið hennar er: Karin Illerström, Malin bodavagen 2, 641 35 Katrineholm, Sverige.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.