Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.08.1989, Side 6

Bæjarins besta - 10.08.1989, Side 6
6 BÆJARINS BESTA Ferðamál: Ferðamenn eru að uppgötva Vestfirði Mun meira að gera hjá Ferðaskrifstofu Vestfjarða í ár en í fyrra. Nýting á ferðaþjónustu bænda byrjaði seint en er að aukast SMÁAUGLÝSINGAR Til sölu Til sölu er húseignin Vallar- gataó, Þingeyri. Upplýsingar í 0 8254. Snjósleði Til sölu Skydoo Snjósleði. Árg. 1981. Upplýsingar í 0 6207. Toyota Carina. Til sölu Toyota Carina .1600 spesial series árg. 1988. Ek- inn 26000 km. Skipti á ódýr- ari kemur til greina. Upplýsingar í 0 4790 og i Vélsm. Þór 0 3711. Orgel Casio hljómborð sk 2100 til sölu og Hammond orgel. Upplýsingar í 0 4790. Rússajeppi Til sölu rússajeppi UAZ69. Bíllinn er yfirbyggður með Perkins Dieselvél (4203), Gírkassa og hásingar úr Scout, vökvastýri og power- bremsum. Upplýsingar í 0 2202. Golfkonur Hittumst allar á golfvellinum öll mánudagskvöld kl 20. Golfklúbburinn. Goíf Minnum á unglingatímana á mánudögum. Golfklúbburínn. Til leigu Til leigu er herbergi með að- gangi að eldunaraðstöðu. Upplýsingar í 0 4304. Hörður. Bolvíkingar Tökum á móti einnota um- búðum, flöskum og dósum. Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl 20 til 22. Björgunarsveitin Ernir. Einbýlishús Til leigu er einbýlishús á fjarðarsvæðinu frá 1. sept. til júní. Upplýsingar í 0 4566 og 3441. Heiðar. Ibúð til leigu Til leigu er 4 herb. íbúð frá 1. september. Upplýsingar í 0 4566 og 3441. Atvinna óskast Smiðuróskareftirvinnu. Allt kemur til greina. Upplýsingar í 0 3764. ísskápur Til sölu er ársgamall Pilco ís- skápur. nánari upplýsingar í 0 3224 frá 9-17 alla virka. daga. Tapað / fundið Hefur einhver séð köttinn minn ? Hún er brún og gul bröndótt með rauða ól, merkt „Dísa, Hraunprýði 2, 0 3794.“ Ef einhver veit um kisu eru upplýsingar vel þegnar. Dísa. ESTFIRÐINGAR kvarta oft undan því að Vestfjarðakjálkinn verði út undan þegar ísland er kynnt ferðamönnum og kenna ýmsu um: Ónógri upplýs- ingaþjónustu syðra, slæmum samgöngum innan fjórð- ungsins og því að Vestfirð ir eru ekki inni í hringvegin- um. Ferðamannastraumur til Vestfjarða í ár virðist þó vera að aukast. Maria Gunter hjá Ferðaskrifstofu Vestfjarða sagði ■ samtali við BB að mun meira væri að gera þar en fyrri ár. Ástæðurnar taldi hún vera einkum tvær og önnur er sú að búið að setja upp tjald- stæði á ísafirði inni í bænum, þ.e. ofan við Menntaskólann og á heimavist hans er full- komin þjónusta við ferða- menn. Þegar aðeins var tjaldstæði í Tungudal átti fólk oft í erfiðleikum með að nálgast ýmsa þjónustu, ná rútum og bátsferðum. Hin er sú að þar sem há- Iendi landsins hefur að mestu verið lokað umferð þar til nú hafa erlendir og ís- lenskir ferðamenn breytt áætlunum sínum og heimsótt Vestfirði í staðinn. Þriðja ástæðan gæti verið sú að Vestfjarðaleið hefur fjölgað rútuferðum og auk þess er búið að tengja þær við ferðir flóabátsins Baldurs. Mikill meirihluti þeirra sem leita eftir þjónustu Ferðaskrifstofunnar yfir sumarið eru útlendingar sem koma aðallega frá Evrópu. Þjóðverjar koma að venju mikið vestur og eins Frakk- ar. Flestir eyða þremur til fjórum dögum á Vestfjörð- um. Hornstrandaferðir og Látrabjargsferðir eru mjög vinsælar og eins og BB sagði frá í síðasta blaði eru allt upp í 100 manns í hverri ferð Fagraness. Hótel ísafjörður Á Hótel ísafirði er svipað að gera og undanfarin sum- ur, en menn telja þó að meira sé um útlendinga en áður á ferðinni. Færri er- lendir ferðahópar hafa kom- ið í sumar en áður að sögn Áslaugar Alfreðsdóttur hót- elstjóra og er ástæðan fyrir því að ferðaskrifstofurnar senda ekki hópa vestur vegna þess að þær telja vega- lengdir of miklar og eins vantar gististaði víðar um Vestfirði sem getur tekið við stórum hópum. Þá segja menn hjá Útivist og Ferðafé- laginu það útbreiddan mis- skilning hjá íslendingum að Hornstrandir séu lokaðar ferðamönnum eins og há- lendið. Þessi félög hafa þurft að fella niður ferðir vegna þess að þátttaka er það lítil. „Þessi neikvæða umræða Vestfirðinga sjálfra um sam- göngur og slæma vegi á ef- laust mikinn þátt í því að ís- lendingar veigra sér við að ferðast um Vestfirði og þeir þurfa að líta í eigin barm hvað þetta varðar“ sagði Ás- laug. „Vegir hafa batnað mjög síðustu árin og vegalengdir styst og því þarf að koma betur á framfæri. Fólk má ekki einblína of mikið á er- lenda ferðamenn. Allir Is- lendingar ættu að heimsækja Vestfirði og við ættum sér- staklega að hvetja burtflutta Vestfirðinga til að heim- sækja æskuslóðirnar en vegna þessarrar neikvæðu umræðu um samgöngurnar þá treysta þeir sér ekki til að koma.“ Aðspurð um verðlagið hjá Hótel ísafirði sagði Áslaug það sambærilegt við önnur hótel og jafnvel ódýrara en á mörgum stöðum. I húsnæði hótelsins í menntaskólanum kostar svefnpokapláss í skólastofu 600 kr., svefn- pokapláss í herbergi með eins manns herbergi 3000 kr. og tveggja manna herbergi með handlaug 4200 kr. Á hótelinu sjálfu kostar gisting í eins manns herbergi 4400 kr. og í tveggja manna her- bergi 5600 kr. Með gistingu í herbergjum er morgunverð- ur innifalinn. Til viðmiðunar má geta þess að gisting í eins manns herbergi kostar 4698 á Flug- leiðahótelunum Loftleiðum og Esju og 5980 í tveggja manna herbergi. Ferðaþjónusta bænda, sem hefur aðalskrifstofu í Bændahöllinni í Reykjavík, er talsvert notuð af ferða- mönnum sem koma til Vest- fjarða en að sögn þeirra bænda sem BB ræddi við byrjaði sumarið seint. Upp- lýsingar um ferðaþjónustuna hér vestra fást hjá Ferða- skrifstofu Vestfjarða og í Bændahöllinni og auk þess liggja yfirleitt frammi bæk- lingar um hana á sjoppum og matsölustöðum víða um land. Ákveðið viðmiðunar- verð er í gildi sem bændur fara eftir. Svefnpokagisting á dýnu kostar 500 krónur yfir nótt- ina, svefnpokagisting í rúmi kostar 750 krónur, uppbúið rúm kostar 1100 krónur og uppbúið rúm með morgun- verði kostar 1550 krónur. Vikuleiga fyrir sex manna sumarhús er 23.000 krónur og fyrir 4 manna sumarhús 19.500 krónur. Svo virðist sem margir hafi standi í þeirri trú að gistirýmin séu í íbúðarhúsum á bóndabýlum en svo er oft- ast ekki heldur eru bændur með sérhús eða viðbygging- ar fyrir ferðamenn. Fimm staðir á Vestfjörðum Fimm staðir veita þessa þjónustu á Vestfjörðum og á Brjánslæk er tjaldstæði í friðlandinu en þó ekki gisti- húsnæði. Ragnar Guð- mundsson á Brjánslæk sagði í samtali við BB að það hefði fremur lítið verið notað í sumar, mun minna en í fyrra. „Umferð hefur verið talsverð en útlendingar tjalda orðið þar sem þeim dettur í hug án þess að fá til þess leyfi“ sagði Ragnar. „Ferðaskrifstofurnar þyrftu að leggja meiri áherslu á það við fólk að ekki er leyfilegt að tjalda hvar sem er.“ Hornstrandir laða margan ferðamanninn til Vestfjarða. Myndin er tekin í Aðalvík. handlaug 1000 kr., gisting í

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.