Bæjarins besta - 10.08.1989, Side 7
BÆJARINS BESTA
7
Tjaldstæðið á lóð Menntaskólans er til mikilla bóta fyrir
ferðamenn sem koma til ísafjarðar.
í Breiðuvík við Látrabjarg
hefur mikið verið að gera í
júlí. Þar er gistirými fyrir 40
manns í gömlu skólahúsnæði
og boðið upp á fæði ef pant-
að er með einhverjum fyrir-
vara. Hægt er að fá veiðileyfi
í Stæðarvötnum og Vaðli og
nokkuð er um að ferðamenn
nýti sér það. Flestir gestir
eru frá hinum ýmsu löndum
Evrópu en einnig hafa kom-
ið Ameríkanar í gegnum
Ferðaskrifstofu hersins á
Keflavíkurflugvelli.
Fleiri
útlendingar
en áður
í Alviðru í Dýrafirði hefur
verið rekin ferðaþjónusta
síðan 1987 og sagði Helgi
Árnason bóndi þar að sér
sýndist að gestagangurinn
væri svipað mikill og í fyrra
en dreifðist öðruvísi yfir
sumarið. Rólegt var í júní,
töluvert var um bókanir í júli
en nokkrir dagar féllu þó úr.
Þar er gistirými í tveimur
húsum. Annað er með sex
rúmum og eldunaraðstöðu
og ætlað sem sumarhús. Það
er leigt viku í senn. í hinu
húsinu eru 14 rúm en hægt er
að taka stærri hópa með því
að einhverjir fái svefnpoka-
pláss.
Helgi sagði meira um út-
lendinga í ár en áður og
meira um ungt fólk sem hef-
ur einhverja peninga á milli
handanna og pantar bæði
morgun- og kvöldverð.
Margir útlendinganna eru á
bílaleigubílum eða eigin bíl-
um. Flestir gestanna eru
Þjóðverjar og Frakkar og
talsvert hefur aukist að Am-
eríkanar frá Keflavíkurflug-
velli gisti í Alviðru á leið
sinni um landið. ítalir eru
einnig farnir sjást að oftar en
áður.
íslendingar hafa einnig
notað sér ferðaþjónustuna í
Alviðru og til dæmis var Fé-
lag mjólkurfræðinga með
sumarhúsið á leigu í viku fyr-
ir skömmu þriðja árið í röð.
Félagið átti áður eigin or-
lofshús en kaus að selja þau
og nota þessa þjónustu í
staðinn til þess að geta farið
víðar um landið. Mest er
ásóknin í sumarhúsið um
miðjan júlí og neita þurfti
um bókanir í það.
Sumarhús í
Grænuhlíð
„Það hefur verið mjög lít-
ið að gera hér í júní og fram í
miðjan júlí en er að aukast
núna. Umferðin hófst mun
seinna í ár en í fyrra“ sagði
Halla Hjartardóttir í samtali
við BB en hún rekur ferða-
þjónustu í Grænuhlíð við
Arnarfjörð.
Þeir sem komið hafa fyrri
hluta sumars hafa aðallega
verið útlendingar en núna
eru flestir ferðamennirnir ís-
lenskir, einkum Austfirðing-
ar og jafnvel frá Skagafirði
en þar hefur viðrað mun bet-
ur í sumar en hér vestra. í
Grænuhlíð er boðið upp á
sex rúm í sérhúsi með eldun-
araðstöðu og bæði er hægt
að leigja húsið í vikutíma
eða í skemmri tíma. Að sögn
Höllu er töluvert meira í
sumar um að að fólk bóki
heilar vikur og nú er allt
uppbókað fram í miðjan
mánuð,
Náttúrufegurð
í Skálavík
Að Meiribakka í Skálavík
er sumarhús fyrir sex manns.
Þar geta þó fleiri gist í senn
með því að sofa í svefnpok-
um á gólfi. Umsjón með
sumarhúsinu hafa þau
Gunnar Leósson og Guð-
björg Stefánsdóttir en þau
búa í Bolungarvík. Tólf kíló-
metrar eru á milli og því hafa
þau tekið þann kostinn að
leigja húsið aðeins út til
þeirra sem vilja taka það í
vikutíma. Lítið hefur verið
að gera í sumar og kvaðst
Guðbjörg kenna því aðal-
lega um að sumarið byrjaði
seint og heiðin því ekki mok-
uð fyrr en seint í júní og
einnig að fólk teldi veginn í
Skálavík það slæman að
hann væri ekki fær fólksbíl-
um. Sú er ekki raunin lengur
þar sem búið er að laga veg-
inn mikið í sumar. Á meðan
á gerð vegarins upp á Bola-
fjall stóð á vegum N.A.T.Ó.
skemmdist afleggjarinn út í
Skálavík mjög vegna grjót-
hruns og var aðeins fær jepp-
um en nú er ástand hans
mun betra.
Þeir sem komið hafa í
sumar eru bæði innlendir og
erlendir ferðamenn og sagði
Guðbjörg mjög mikið spurt
um svefnpokapláss í 1-2 næt-
ur en því miður væri það
hvergi fáanlegt í Bolungar-
vík og hún yrði því að vísa
fólki á gistiheimilið við
Austurveg á ísafirði eða hót-
elið.
Þeir sem gist hafa að
Meiribakka eru mjög ánægð-
ir með veruna, að sögn Guð-
bjargar, og kunna vel að
meta náttúrufegurðina og
friðsældina.
Italir í Armúla
Gerður Kristjánsdóttir í
Ármúla við Kaldalón hefur
rekið ferðaþjónustu þar und-
anfarin þrjú ár í húsi sem
hefur verið gert mikið upp
og er búið 12 rúmum. Hægt
er að fá mat hjá Gerði en
eldunaraðstaða er í gistihús-
næðinu.
Þetta fjórða sumar sagði
hún vera svipað og í fyrra en
júní og fyrsta vikan í júlí
hefðu verið heldur dræm.
Nú er gestagangurinn hins
vegar nokkuð að aukast og
töluvert meira um erlenda
ferðamenn en áður. Flestir
útlendinganna sem koma í
Ármúla eru ítalir og Frakkar
en mjög margir kjósa einnig
að tjalda inn við Lón, eink-
um Þjóðverjar og þeir eru
einnig oft betur útbúnir en
aðrir.
Talsvert er um að fólk sem
er á leið í frí frá ísafirði gisti
eina nótt í Ármúla.
Það er því greinilegt af
þessu að ferðaþjónusta
bænda er þörf atvinnugrein
sem á framtíð fyrir sér. Bæði
erlendir og innlendir ferða-
menn nýta sér hana töluvert
og með meiri kynningu á
henni má eflaust auka ferða-
mannastraum til Vestfjarða
mjög mikið.
NÝJAR
MYNDIR
VIKULEGA
DEAD OR ALIVE
Hörkumynd með Kris
Kristofferson í aðalhlut-
verki. Myndin fjallar um
hóp strokufanga sem ræna
veitingastað. Löggæslu-
maður staðarins ásamt
bónda úr grendinni veita
þeim eftirför en verða þess
fljótt varir að flokkur
hausaveiðara er á hælum
þeim. Uppgjör milli
þessara þriggja hópa er
óumflýjanlegt og það
verður þeim öllum
örlagaríkt.
KANSAS
Tveir ókunnugir, ungir
menn hittast fyrir tilviljun
um borð í flutningarlest.
Wade er saklaus, ungur
maður í ævintýraleit.
Doyle er aftur á móti
hættulegur geðsjúklingur,
en persónutöfrar hans
leyna vel ofbeldinu, sem
hann býr yfir. Þeir koma til
lítils bæjar í Kansas og þá
sér Wade hvaða mann
Doyle hefur að geyma...
JR-VIDEO
VIÐ NORÐURVEG
S 4299
Mánagata 3
Til sölu eða leigu,
Mánagata 3, ísafirði.
Laust15.ágúst.
Verð kr. 4 miiljónir.
Upplýsingar gefur
Bernharð í síma
91-28782.