Bæjarins besta - 10.08.1989, Page 10
10
BÆJARINS BESTA
TRYGGVIGUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆT11, ÍSAFIRÐI
SÍMI94-3940 OG 94-3244
F asteignaviðskipti
Sólgata 9: I.O.G.T.-húsiö tilboð óskast.
Vantareinbýlishús, raðhús og fjögurraherbergja íbúðirá skrá.
Einbýlishús / raðhús
Hrannargata6: Einbýlishús átveimur
hæöum ásamt bílskúr.
Urðarvegur 62: Endaraðhús á fjórum
pöllum ásamt bílskúr og stórum kjall-
ara.
Heiðarbraut 12: Ca. 200 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt bílskúr.
Skipti á minni eign á ísafirði koma til
greina.
Tangagata 17: 155 m2 einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt kjallara undir
öllu húsinu. Eignarlóð. Skipti á lítilli
íbúð komatil greina. Laus fljótlega.
Fitjateigur 4: Ca. 151 m2 einbýlishús
áeinni hæð ásamt bílskúr.
Hrannargata 4: Einbýlishús á fjórum
hæðum ásamt bílskúr.
3ja herbergja íbúðir
Smiðjugata 9:Ca. 80 m2 íbúð á n.h. í
tvíbýlishúsi.
Fjarðarstræti 29: Séríbúð í austur-
enda ásamt eignarlóð. Mikið endurnýj-
uð.
Sundstræti 27:54 m2 íbúð á efri hæð
í norðurenda.
Brunngata 12: íbúð á efri hæð í
tvibýlishúsi ásamt skúr og helming af
kjallara.
Smiðjugata 8: Ca. 40 m2 íbúð ásamt
kjallara. Varmaveita.
Stórholt 11:75 m2 íbúð í fjölbýlishúsi.
Skipti koma til greina.
Stórholt 13:75 m2 í búð á 3. hæð í fjöl-
býlishúsi.
Brunngata 10: 3 íbúðir á neðri hæð
hússins.
Pólgata 6:55 m2 íbúð í fjölbýlishúsi.
Pólgata 6: fbúð á neðri hæð í fjölbýlis-
húsi.
Seljalandsvegur 102, (Engi): Ný-
byggt einbýlishús á tveimur hæðum,
stórar suðursvalir. Skipti á minni eign
komatilgreina.
4-6 herbergja íbúðir
Túngata 3: Ca 120 m2 4ra herb. íbúð
á tveimur hæðum ásamt risi.
Smiðjugata 9: Ca. 90 m2 4ra her-
bergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi.
Góð greiðslukjör ef samið er fljótlega.
Laus fljótlega.
Mjallargata 1:4 herb. ca. 143 m2 íbúð
á 3. hæð í nýbyggingu. Afhendist til-
búið undir tréverk innan 3ja mánaða.
Mánagata 6:6 herbergja 140 m2 íbúð
á efri hæð í tvíbýlishúsi. Skipti á stærra
húsnæði komatilgreina.
Mjallargata 6:100 m2 íbúð á efri hæð
ásamt háalofti. Skipti á stærri eign
möguleg.
Fjarðarstræti 11: 85 m2 ibúð á éfri
hæð í tvíbýlishúsi.
Mjallargata 6: 100 m2 íbúð á neðri.
hæð í þríbýlishúsi. Skipti koma til
greina á stærri eign.
Mjógata 5 : 150 m2 íbúð á tveimur
hæðum í tvíbýlishúsi. Góðargeymslur
í kjallara og risi.
Hreggnasi 3:70+80 m2 íbúð á e.h. í
tvíbýlishúsi ásamt rislofti og kjallara.
Aðalstræti 15a : 4ra herb. sérbýli á
tveimur hæðum ásamt eignarlóð.
Hreggnasi 3 : ca. 85 m2 íbúð á n.h. í
tvíbýlishúsi ásamt kjallara.
Stórholt 11: ca. 100 m2, 4 herb. íbúð
ásamt bílskúr.
2ja herbergja íbúðir
Aðalstræti 20:91 m2 íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi. Tilbúin undir tréverk.
T úngata 12: Ca. 50 m2 íbúð á jarðhæð
í tvíbýlishúsi.
Aðalstræti 8: Ca. 58 m2 séríbúð í
suðurenda. Nýuppgerð. Skipti komatil
greina.
Sundstræti 29: Ca. 59 m2 íbúð á efri
hæð i fjölbýlishúsi.
Túngata 18: Ibúðá 1. hæð í fjölbýlis-
húsi.
Engjavegur 33: íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi.
Mjógata 5: Ca. 62 m2 íbúð á neðri hæð
í tvíbýlishúsi ásamt kjallara.
Mánagata 2:60 m2 íbúð í norðurenda.
Engjavegur17:62 m2séríbúðáneðri
hæð.
Sundstræti 29: 55 m2 íbúð á neðri
hæð i fjórbýlishúsi.
Ýmislegt
Veiðarfæraskemma á Sundahöfn:
Hálftbilaðsunnanverðu.
Fjarðarstræti 22: 100 m2 lager- og
iðnaðarhúsnæði.
Aðalstræti 35: 308 m2 iðnaðarhús-
næði á neðri hæð. Atvinnuhúsnæði í
hjarta bæjarins.
Túngata 13, Súðavík: 100 m2einbýl-
ishús á einni hæð ásamt bílskúr.
Stigahlíð 2, Bolungarvík: 3ja her-
bergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi.
Sólgata 9 : (I.O.G.T.-húsið) tilboð
óskast.
Eign Bæjarsjóðs ísafjarðar:
Félagsheimilið í Hnífsdal: 818 m2 á
tveimur hæðum ásamt kjallara.
Lesendur:
Um sunnlenskt
latmæli
Pétur Bjarnason skrifar
EGAR ég las blaðið
ykkar um daginn, rakst
ég á sunnlenska latmælið
fiskerí. Hvaðan er e-ið kom-
ið? Ég hefi alltaf heyrt sagt
fiskirí hér fyrir vestan með
greinilegu i-hljóði.
A stríðsárunum var ég um
tíma á togaranum Viðey frá
Reykjavík með Kristjáni
heitnum Kristjánssyni frá
Bolungarvík. Þar um borð
var einnig bróðir hans Guð-
jón Kristjánsson, sem ólst
upp á ísafirði hjá tveimur
Fríðum og var alltaf kallaður
Guji Fríðanna.
Hann var svo einlægur
vestfirðingur í hjarta sínu,
hann Guji, að hann fullyrti í
fúlustu alvöru að steinbítur-
inn væri fegurstur fiska.
Enda kölluðu sunnlending-
arnir steinbítinn vestfirðing.
Það gerir munnsvipurinn
sögðu þeir.
Það eru svo króknaðar á
þeim kjaftólarnar að það
leka út úr þeim latmælin
sagði Guji. Þá heyrði ég
fyrst e-hljóðið í orðinu.
Þegar nýr maður kom í
skiprúm á Viðey átti Guji
það til að taka menn í próf.
Þá rétti hann manni netanál
og sneri oddinum fram. Tæki
maður rétt við nálinni,
þannig að hún snéri rétt til
bætningar, þá brosti Guji og
spurði hvar maður væri
fæddur. Væri maður svo
heppinn að vera fæddur fyrir
norðan Látrabjarg breikkaði,
Guji brosið enn og ef maður
kunni þar ofan á húsganginn
um hann svanga Manga, þá
átti maður vináttu Guja til
langframa.
Ef maður hins vegar tók
vitlaust við nálinni, þá signdi
Guji sig og tautaði Guðsorð
út fyrir Gróttu að minnsta
kosti og skildi ekkert í bróð-
ur sínum að vera að fylla
skipið af suðurnesjalýð.
Eftir að vera fæddur í
Hnífsdal og alinn upp á ísa-
firði og aldrei átt annarsstað-
ar lögheimili, og hafa unnið
með föður mínum frá 10 ára
aldri að viðgerð og uppsetn-
ingu fiskveiðarfæra og síðan
stundað fiskveiðar í 30 ár frá
1934-1964 og síðan unnið við
fiskveiðieftirlit til starfsloka
og sé nú fram á 70 ára kant-
inn, þá minnist ég þess ekki
að hafa mætt þessu orði áður
fyrir norðan Látrabjarg, og
spyr því eins og Guji:
Hvað eruð þið að flækjast
með sunnlenskt latmæli í
ritað mál hér vestur á fjörð-
um?
Með kveðju
Pétur Bjarnason,
Silfurgötu 2
ísafirði
Frá BB:
Fiskin skal
það
Blaðamaður bb
kann Pétri bestu þakkir
fyrir skemmtilegt tilskrif og
þarfa ábendingu.
Ég er reyndar fæddur og
uppalinn Vestfirðingur og
hef kunnað „svanga Manga“
utan bókar frá barnæsku en
mín eina afsökun fyrir þess-
um mistökum er sú að ég bjó
í Reykjavík og starfaði við
yera
hlið latmæltra Sunnlendinga
í rúm þrjú ár.
Það hefur greinilega haft
áhrif á málfarið til hins verra
og hér eftir verða hafðar sér-
stakar gætur á því að sunn-
lensk latmæli þvælist ekki
oftar inn í hið alvestfirska
blað, BB.
Með kveðju
blaðamaðurinn
SMÁAUGLÝSINGAR
Óska eftir íbúð
Óska eftir íbúð á leigu, 3-4ra
herb. Öruggar greiðslur.
Upplýsingar í 0 93 -12867.
Flateyringar- Önfirðingar
Munið eftir dósa- og flösku-
söfnuninni. Gíslitekurámóti
þeim.
Kiwaniklúbburinn Þorfinnur
Til sölu bátur
Til sölu er Færeyingur, 2.2
tonn, í góðu ástandi.
Upplýsingar í 0 3317.
Fyrir börn
Til sölu er Emmaljunga
barnavagn og smábarnabíl-
stóll (0-9 mánaða).
Upplýsingar í 0'3845.
Ánamaðkar
Til sölu ánamaðkar.
Upplýsingarí0 3218.
Reiðhjól
Óska eftir ónýtu kvenmanns-
reiðhjóli. Helst gefins eða á
lágu verði.
Upplýsingar í 0 4178.
Páfagaukur
Gulur og grænn páfagaukur
fæst gefins. Búr fylgir.
Upplýsingar í 0 3002.
íbúð óskast
2ja herbergja íbúð óskast til
leigu fyrir 1. september.
Fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í 0 8291.
Dagmömmur
Dagmamma óskast á Eyrinni
allan daginn frá september,
fyrir 2 1/2 árs stelpu.
Upplýsingar í 0 4568 hs,
4560 og4570 vs.
Vilborg.
Til leigu
Til leigu húsnæði í Bolungar-
vík. og á sama stað er til sölu
Citroen. Upplýsingar í 0
7457 eftir kl 19.
Barnavagn
Til sölu BRIO barnavagn
(notaður af einu barni).
Einnig BRIO barnakerra.
Upplýsingar í 0 3610.
María
Daihatsu Charade
Til sölu er Daihatsu Charade
“81 með ónýtri vél. Nýr kúpl-
ingsdiskur, kúplingspressa
og alternator. Agætis
„boddý“, góð vetrardekk og
ágæt vetrardekk. Upplýsing-
ar gefur Guðrún í 0 7754.
Til sölu
Til sölu Zenith PC með 2
diskettudrifum, 512 K og lita-
skerm. Upplýsingar í 0 94-
4664 og 91 - 641511 ákvöldin.
Tjaldvagn
Óska eftir tjaldvagni á leigu
um helgina.
Upplýsingar í 0 7568.