Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 10.08.1989, Blaðsíða 12
A.E.G. síðsumarstilboð. Brauðrist kr. 2098 Þeytivinda kr. 13900 Kæliskápar kr. 38900 mn straumur hf Silfurgötu 5 S 3321 Ráðherrafundurinn: Utanríkisráðherrar Norðnrlanda Ma á ísafirði í næstu viku Ráðherrarnir fara í skoðunarferðir og á skak á milli funda RÁÐHERRAR utanrík- ismála Noregs, Dan- merkur, Islands, Svíjijóðar og Finnlands funda á Isafirði í næstu viku í Stjórnsýslu- húsinu. Fundurinn hefst á mánudag og heldur áfram þriðjudag og miðvikudag. Ráðherrarnir og samstarfs- fólk þeirra gista á Hótel Isa- firði og á heimavist Mennta- skólans, alls 55 manns. Einnig er von á hópi fjöl- miðlafólks vestur vegna fundarins. Til stóð að ráð- herrar þróunarmála kæmu einnig til fundarins en hætt hefur verið við það. Á þessum fundi, sem er hefðbundinn haustfundur ráðherranna, verða rædd þau mál sem tekin verða fyr- ir á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna síðar á árinu. Veisla verður haldin fyrir hópinn og fleiri gesti í boði bæjarstjórnar ísafjarðar á Hótel Isafirði á mánudags- kvöld og er búist við um 80 manns í mat. Meðal þess sem boðið verður upp á verða blandaðir sjávarréttir með kryddsósu, lambabuff- steik, regnbogaís, konfekt og ýmsar tilheyrandi guða- veigar. Á hádegi á þriðjudag gera ráðherrarnir hlé á fundi til þess að heimsækja Bolvík- inga, fara í skoðunarferð og sitja veislu í boði bæjar- stjórnarinnar þar. Um kvöldið býður Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra síðan til veislu á Hótel ísafirði. Að morgni miðvikudags fara ráðherrarnir síðan á fæt- ur í bítið til þess að fara á skak frá ísafirði. Hvort þeim tekst að veiða sér í hádegis- matinn skal ósagt látið en eftir veiðiferðina verður fundinum framhaldið og síð- an slitið og að því loknu fer allur hópurinn með Fagra- nesinu í heimsókn út í Vigur. Flópurinn heldur síðan heimleiðis á miðvikudags- kvöld. Héraðsskólinn í Reykjanesi: Skólastjórinn braut rúðu - til að komast inn í eldhúsið eftir að hótelstjórinn skipti nm lás Lögreglan: Stótar við stýrið Lögreglan fer að sekta vegna brota á iögum um belta- og Ijósanotkun á næstunni ÞRÍR ökumenn voru teknir af lögreglunni grunaðir um ölvun við akstur um helgina. Einn var tekinn á Flateyri og tveir á ísafirði. Þá voru tveir menn um tví- tugt teknir ofurölvi um helg- ina við þá iðju að sparka nið- ur og skemma ruslakassa í bænum. Þeim var stungið í fangageymslur yfir nóttina. Lögreglan lét vel af öku- mönnum um verslunar- mannahelgina og sagði belta-og ljósanotkun nánast 99,9%. Einn próflaus öku- maður var stöðvaður. Rad- armælingar komu vel út um i helgina og fáir brutu reglur | um hámarkshraða. Á næstunni mega menn I búast við átaki hjá lögregl- unni hvað varðar sektir vegna rangstöðu bifreiða og ef menn ekki nota ljós og belti. Sekt fyrir að nota ekki | belti eða ljós er 1000 krónur. Lögreglan er nú útbúin sekt-1 arbókum og getur því skilið sektarmiða eftir á bílum ef þeim er lagt þar sem það er | bannað. Reykjanes: Enn eigast við skólastjóri Héraðsskólans og fyrrum bryti hans sem nú er hótelstjóri sumarhótelsins. Þ,Að voru brögð að því að menn fóru inn í éíáhúsið að nóttu til og opn- uðu með lyklum sem skóla- stjórínn hafði dreift þannig að ég skipti einfaldlega um lás. Menn geta komið hér inn frá því kl. 7 á morgnana og til miðnættis og ég sá ekki að menn ættu erindi hér inn á öðrum tímum“ sagði Heið- ar Guðbrandsson hótelstjóri og fyrrum bryti í Reykjanesi í samtali við BB í vikunni. Vegna þessarar ákvörðunar Heiðars tók skólastjóri Hér- aðsskólans það til bragðs í síðustu viku að brjóta rúðu í hurð til að komast inn í eld- húsið. Heiðar segir að skóla- stjórinn hafi þó lykla að framdyrunum og geti alltaf komist þá leiðina að eldhús- inu. Heiðar lýsir atburðinum þannig: „Skólastjórinn kom hér að bakdyrum eldhússins og þegar hann komst að því að lyklar hans pössuðu ekki lengur þá hafði hann ekki fyrir því að banka heldur tók upp kílósþungan stein og lét vaða í gegnum rúðuna af færi. Steinninn endasentist eftir ganginum, í kælishurð og inn í kjötvinnsluna. Síðan opnaði hann innan frá, kom inn og fór strax aftur. Ég hringdi á lögregluna og hreppstjórinn kom á staðinn og kannaði vettvang. Ég tel mig vera í fullum rétti að skipta um lás því að skólastjórinn hafði afhent hinum og þessum lykla að eldhúsinu, m.a. starfsmönn- um laxeldisstöðvanna, fólki sem átti ekki erindi hér inn“ sagði Heiðar. BB náði ekki tali af skólastjóra héraðsskólans í Reykjanesi vegna þessa máls, en hann er staddur í Reykjavík þessa dagana.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.