Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Side 2
Hvernig hefur sumarið verið hjá ykkur?
Þetta er auðvitað búið að vera mjög sérstakt sumar. Það var
eiginlega ekkert að gera framan af, svona í maí og framan af
júní. Þegar kom inn í júlí fór að vera meiri traffík og auðvitað
meira af Íslendingum á ferðinni og dálítill kraftur í þessu.
Menn hafa verið saman í því að gera þetta að skemmtilegu
Íslendingasumri; lækkuðu verðin og reyndu að halda niðri
kostnaði til að taka vel á móti Íslendingunum. Svo núna
þegar líður inn í ágúst kemur þessi seinni bylgja.
Þú finnur áhrif af fleiri smitum og hertu
samkomubanni strax?
Já, um leið og þetta kom upp aftur fann maður að það fór að
verða samdráttur í bókunum og fólk fór að verða smeykara
við að hreyfa sig.
Hvernig hefur hlutfall íslenskra og erlendra
ferðamanna verið?
Í júlí hefur það bara verið bland sem er óvanalegt fyrir
þetta svæði. Það einkennir Mývatnssveitarsvæðið að
það eru yfir 90% seldra gistnátta seldar til útlend-
inga. Bandaríkjamenn og fólk sem kemur í
gegnum Bandaríkin er mjög hátt hlutfall hjá
okkur. Nú er enginn að koma þá leiðina.
Er einhver munur á íslenskum og
erlendum ferðamönnum?
Útlendingarnir eru kannski meira komnir til
að skoða sem mest og eru þar af leiðandi
meira úti að tikka í boxin. Íslendingarnir eru
kannski meira að slaka á í sumarfríinu. En að
öðru leyti er fólk að leita eftir því sama.
Hvernig lítur haustið og veturinn út?
Það verður náttúrulega miklu miklu rólegra en
hefur verið, ég held að það liggi fyrir. Sumarleyfin
eru að klárast hjá okkur og eftir verslunarmanna-
helgi er einhvern veginn komið haust bara. Við höf-
um verið að fá marga erlenda ferðamenn sem hafa
dekkað september og október og maður sér á flug-
framboðinu og því sem er að gerast að það verður
mjög lítið í ár.
HELGI HÉÐINSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020
t í næsta
óteki
Kemur sem hentugur úði en honum er spreyjað yfir augnlokin þ.e. á lokuð augun.
Úðann má nota með farða og augnlinsum.
Fæs
Ap
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Við fengum þá Ólympíuleika eftir allt saman á þessu undarlega ári; all-tént að því marki að uppáhalds-„keppandi“ okkar flestra á mörgumundanförnum leikum, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, var dreginn á
flot í sérstökum upprifjunarþáttum í Ríkissjónvarpinu, kvöld eftir kvöld. Er
það gríðarlega vel.
Eins og við þekkjum þá hefur Sigurbjörn svitnað meira við sjónvarpslýs-
ingar á Ólympíuleikum en allir keppendur okkar til samans, rétt eins og Jón
Arnar Magnússon staðfesti í einum þættinum þegar hann var spurður hvort
ekki væri erfitt að keppa í tugþraut.
Svarið var eitthvað á þá leið að það
væri hreinn barnaleikur samanborið
við það sem Sigurbjörn legði á sig í
þularklefanum. Einnig kom fram að
Sigurbjörn hefði verið svo örmagna
eftir að hafa lýst keppni í stangar-
stökki kvenna á leikunum 2004 að
hann hreinlega sofnaði í klefanum að
lýsingu lokinni. Vakti það mikla kát-
ínu meðal erlendra kollega hans og
breska ríkissjónvarpið ræsti Sigur-
björn og dreif kappann svefndrukk-
inn í viðtal.
Sigurbjörn hefur að vonum farið mikinn í þáttunum og margt fróðlegt
komið fram, til dæmis að Örn Clausen tugþrautarkappi hafi misst af leik-
unum í Helsinki 1952 vegna þess að hann tognaði fljótlega eftir komuna á
staðinn þegar hann ætlaði að lyfta töskunni sinni upp í rúm. Þetta hafði ég
aldrei heyrt og lagðist í frekari rannsóknir. Og, jú, jú, Örn staðfesti þetta
sjálfur í samtali við Atla Steinarsson í Morgunblaðinu 22. júlí 1952. Hann
hreinlega sleit vöðva við gjörninginn. „Ég skil ekki sjálfur hvernig þetta at-
vikaðist,“ sagði Örn. „Ég var kominn í íbúð okkar í Olympíubænum á sunnu-
dagskvöldið. Töskur mínar lágu á gólfinu, en ég var að koma mér fyrir. Einni
töskunni hugðist ég lyfta upp í rúmið, þreif til hennar harkalega – og þetta
þoldi handleggurinn ekki. Ég var viðþolslaus af kvölum fyrstu tvo dagana og
fyrri daginn gat ég ekki farið úr fötunum á eigin spýtur.“
Hugsið ykkur seinheppnina! Að æfa eins og skepna í fjögur ár og forfallast
svo með þessum hætti. Sannarlega einhver óvenjulegustu íþróttameiðsli sem
maður hefur heyrt um. En þegar hugsað er út í það þá hefur taska Arnar
auðvitað verið þung, með kúluna, kringluna og jafnvel spjótið innanborðs.
Það var líka gaman að sjá gamla sportlýsendur aftur á skjánum í þátt-
unum, svo sem Ingólf „kossvör“ Hannesson, Samúel Örn Erlingsson, Adolf
Inga Erlingsson og Arnar Björnsson, en fram kom að sá síðastnefndi er enn
svo lúinn eftir leikana 1988 að hann hefur ekki treyst sér til að fara aftur.
Tognaði við að lyfta
tösku upp í rúm
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Ég var viðþolslaus afkvölum fyrstu tvodagana og fyrri daginngat ég ekki farið úr föt-
unum á eigin spýtur.
Lára Didriksen
Hlusta á tónlist.
SPURNING
DAGSINS
Hvað gerir
þú til að
slaka á eftir
erfiðan
dag?
Telma Rut Gunnarsdóttir
Chilla, horfi á þætti og eitthvað.
Hreiðar Hreiðarsson
Er slakur heima bara.
Reynir Bergmann
Fer í Playstation.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Helgi er framkvæmdastjóri
Dimmuborgir Guesthouse
sem leigir út gistingu til ferða-
manna við Mývatn.
Íslendingasumar