Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Page 14
Nýjasta málverk Henriks er af Svínafellsjökli og Hrútfjallstindum.
E
ftir að hafa unnið sem leiðsögu-
maður meira og minna síðasta ára-
tuginn og menntað sig í greininni á
meðan ákvað Henrik C. Hlynsson
að venda kvæði sínu í kross árið
2019. „Ég ákvað að fara aftur í háskólanám,“
segir Henrik sem hætti þá í fullu starfi sem
leiðsögumaður.
Henrik vann uppsagnarfrest sinn og ferðað-
ist um í sumarleyfinu sem hann átti inni. Þegar
ferðalögunum var lokið var nokkuð í að námið
ætti að hefjast og vantaði Henrik eitthvað til
að hafa fyrir stafni. „Mér hefur alltaf fundist
gaman að skapa eitthvað. Alltaf að hugsa út í
og pæla í alls konar hlutum. Svo mundi ég að
stóra systir mín átti fullt af málningardóti sem
var í geymslu hjá foreldrum okkar,“ segir
hann. Hann ákvað að spyrja um leyfi hjá henni
til að prófa sig áfram með málningarpensilinn.
Hann stofnaði nýja Instagram-síðu, henrik-
.studio, og setti mynd af hverju verka sinna
þar inn. Þar er hægt að sjá hvernig Henrik
prófar sig áfram með ýmis viðfangsefni þar til
hann virðist finna stíl sinn í einhvers konar ab-
strakt landslagsmálverkum. Hann hefur strax
vakið áhuga bæði kunningja og annarra.
Allt dökk- og mosagrænt
„Ég reyni að mála það sem ég myndi vilja hafa
uppi á vegg hjá mér,“ segir Henrik er við
virðum fyrir okkur eitt málverka hans sem
hanga á veggjum íbúðar hans. „Ég nenni ekki
að mála eitthvað til að gera bara eitthvað. Ég
vil gera eitthvað sem virkilega kallar á mig.“
Við tökum hring um
íbúðina. Málverk af Hrút-
fjallstindum og Svína-
fellsjökli er nýklárað. Þar
notaði Henrik aðeins þrjá
liti; hvítan, svartan og
bláan. „Ég vildi hafa smá-
atriðin alveg á hreinu. Að
ég gæti séð leiðirnar upp
tindana,“ segir Henrik.
„Þetta var útsýnið frá
skrifstofu minni í nokkur ár. Jökullinn er ekki
svona blár á sumrin. Þegar snjólínan er yfir 500
metrum og rigningin skolar snjónum af skrið-
jöklinum getur hann orðið svona blár. Hann er
aðeins hvítari á sumrin og kannski ekki eins að-
laðandi fyrir suma en mér finnst geggjað að fá að
skoða jöklana allan ársins hring.“
Eitt málverk er af Henrik sjálfum, er hann
gengur í kafaldsbyl. „Eitt það skemmtilegasta
sem ég geri er að vera með réttan búnað, í
réttu fötunum, og bara ganga í stormi. Það er
hrikalega gaman.“
Eitt verka Henriks er mynd af Álftavatni og
landslaginu þar í kring. Það er stærsta verk
hans og eitt það nýjasta. „Ég á svo góðar
minningar af því að ganga Laugaveginn. Þetta
er þegar þú ert að ganga niður Jökultungur og
ert að horfa yfir vatnið. Það eru góðar minn-
ingar þaðan,“ segir hann.
„Þegar þú gengur Laugaveginn og ferð yfir
til Álftavatns sérðu litadýrðina breytast. Þú
ert í mjög litríkum fjöllum og labbar svo niður
og þar er allt dökk- og mosagrænt.“
Hræðist bráðnunina
Þar til kórónuveirufaraldurinn setti allt úr
skorðum í ferðamennsku hér á landi vann
Henrik í hlutastarfi sem leiðsögumaður, tók
eina og eina ferð, meðfram námi sínu við Há-
skólann á Bifröst. „Mér finnst rosalega gaman
að fara með fólk um landið. Kynna fólk fyrir
menningunni, náttúrunni og allt þess háttar.
Ég þrífst á því að vita mikið um náttúruna og
söguna og það er mikilvægt í þessum bransa,“
segir hann.
„Mér finnst íslensk náttúra mjög dýrmæt.
Þegar maður er búinn að vera að vinna með fólki
sem er að sjá náttúruna hérna í fyrsta skipti
minnir það mann á hversu mögnuð hún er.“
Henrik hefur farið með hópa yfir bæði fjöll
og jökla sem leiðsögumaður. „Það er ótrúlega
dýrmætt. Maður hafði keyrt ótalmörgum sinn-
um fram hjá þessum jöklum án þess að stíga
fæti á þá. Þegar maður gerði það loks þá opn-
aðist einhver nýr heimur. Það er magnað að
fara á þessa jökla sem eru núna að hopa svo
hratt að það hræðir mann. Það er ótrúlegt hve
mikið hefur breyst síðan ég byrjaði að ganga á
jökla 2014,“ segir Henrik.
„Að sjá þá breytast í návígi. Það er magnað
að upplifa jöklana þannig.“
Smáatriðin heilla
Þessi reynsla litar að stóru leyti málverk Hen-
riks. „Ég hef alltaf haft gaman af málverkum
og ég man eftir því þegar ég var að horfa á mál-
verk af fjöllum eftir að hafa verið leið-
sögumaður í mörg ár. Þá fannst mér alltaf
vanta þessi smáatriði. Að ég gæti séð að ég
gæti farið hingað og þangað og að ég gæti klifr-
að upp þessa kletta og svo framvegis. Það var
það sem kallaði á mig
þegar ég byrjaði að fikta
í þessu. Ég þekki smá-
atriðin svo vel, til dæmis
hvoru megin við fjallið
regnið fellur og veðrar
það. Ég fór að læra inn á
hvernig fjöllin eru í
þessum smáatriðum.
Mér finnst mjög gaman
að taka lítinn pensil og
fikta í þeim,“ segir hann. „Ég get ekki sleppt
smáatriðum,“ bætir hann kíminn við.
„Þegar ég var að byrja var ég að fikra mig
áfram með mismunandi stíla. Ég prófaði að
mála portrettmyndir af vinum. Þær heppn-
uðust svona allt í lagi,“ segir Henrik og hlær.
„Ég var svo smámunasamur að mér fannst
þau ekki alveg vera nógu góð.“
Henrik málaði svo mynd af félögum sínum
og útsýninu er þeir gengu Laugaveginn. „Þá
næ ég að mála þetta fjall og það kallaði svo
mikið á mig. Mér fannst svo ótrúlega gaman að
mála það. Ég einhvern veginn festi mig í því og
hugsaði að það væri gaman að gera nokkrar
þannig myndir. Svo ef ég verð þreyttur á því
er ég með nokkrar aðrar hugmyndir.“
Engin slökun að mála
Ég spyr Henrik út í þennan abstrakt stíl,
hvernig hann hafi þróast. „Það var eitt kvöld
þar sem ég var kominn inn í YouTube-
frumskóginn og var eitthvað að vafra um þar,“
segir Henrik og hlær. „Það endaði á því að ég
fann Bob Ross, þann mikla málningarmeist-
ara.“ Fyrir þá sem þekkja ekki Bob Ross þá
kennir hann fólki að mála í myndböndum sín-
um og hefur orðið frægur meðal netverja fyrir
„Vaknaði oft á
næturnar“
Henrik C. Hlynsson byrjaði að mála um mitt síðasta ár. Frá
þeim tíma hefur hann skapað sér ákveðinn stíl í landslags-
málverkum sem hefur vakið athygli. Hann hefur unnið sem
leiðsögumaður og þekkir því hvern krók og kima á hálendinu
og finnst mikilvægt að hafa smáatriðin á hreinu. Að mála hefur
hjálpað honum að láta athyglisbrest ekki hindra sig.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
’Ég slappa sko ekkert af þeg-ar ég er að mála. Ég svitnastundum við að reyna að náöllum þessu litlu smáatriðum.
En eftir á er þetta eins og að
vera nýkominn úr klakabaði,
ræktinni eða eitthvað slíkt.
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020