Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 14
Nýjasta málverk Henriks er af Svínafellsjökli og Hrútfjallstindum. E ftir að hafa unnið sem leiðsögu- maður meira og minna síðasta ára- tuginn og menntað sig í greininni á meðan ákvað Henrik C. Hlynsson að venda kvæði sínu í kross árið 2019. „Ég ákvað að fara aftur í háskólanám,“ segir Henrik sem hætti þá í fullu starfi sem leiðsögumaður. Henrik vann uppsagnarfrest sinn og ferðað- ist um í sumarleyfinu sem hann átti inni. Þegar ferðalögunum var lokið var nokkuð í að námið ætti að hefjast og vantaði Henrik eitthvað til að hafa fyrir stafni. „Mér hefur alltaf fundist gaman að skapa eitthvað. Alltaf að hugsa út í og pæla í alls konar hlutum. Svo mundi ég að stóra systir mín átti fullt af málningardóti sem var í geymslu hjá foreldrum okkar,“ segir hann. Hann ákvað að spyrja um leyfi hjá henni til að prófa sig áfram með málningarpensilinn. Hann stofnaði nýja Instagram-síðu, henrik- .studio, og setti mynd af hverju verka sinna þar inn. Þar er hægt að sjá hvernig Henrik prófar sig áfram með ýmis viðfangsefni þar til hann virðist finna stíl sinn í einhvers konar ab- strakt landslagsmálverkum. Hann hefur strax vakið áhuga bæði kunningja og annarra. Allt dökk- og mosagrænt „Ég reyni að mála það sem ég myndi vilja hafa uppi á vegg hjá mér,“ segir Henrik er við virðum fyrir okkur eitt málverka hans sem hanga á veggjum íbúðar hans. „Ég nenni ekki að mála eitthvað til að gera bara eitthvað. Ég vil gera eitthvað sem virkilega kallar á mig.“ Við tökum hring um íbúðina. Málverk af Hrút- fjallstindum og Svína- fellsjökli er nýklárað. Þar notaði Henrik aðeins þrjá liti; hvítan, svartan og bláan. „Ég vildi hafa smá- atriðin alveg á hreinu. Að ég gæti séð leiðirnar upp tindana,“ segir Henrik. „Þetta var útsýnið frá skrifstofu minni í nokkur ár. Jökullinn er ekki svona blár á sumrin. Þegar snjólínan er yfir 500 metrum og rigningin skolar snjónum af skrið- jöklinum getur hann orðið svona blár. Hann er aðeins hvítari á sumrin og kannski ekki eins að- laðandi fyrir suma en mér finnst geggjað að fá að skoða jöklana allan ársins hring.“ Eitt málverk er af Henrik sjálfum, er hann gengur í kafaldsbyl. „Eitt það skemmtilegasta sem ég geri er að vera með réttan búnað, í réttu fötunum, og bara ganga í stormi. Það er hrikalega gaman.“ Eitt verka Henriks er mynd af Álftavatni og landslaginu þar í kring. Það er stærsta verk hans og eitt það nýjasta. „Ég á svo góðar minningar af því að ganga Laugaveginn. Þetta er þegar þú ert að ganga niður Jökultungur og ert að horfa yfir vatnið. Það eru góðar minn- ingar þaðan,“ segir hann. „Þegar þú gengur Laugaveginn og ferð yfir til Álftavatns sérðu litadýrðina breytast. Þú ert í mjög litríkum fjöllum og labbar svo niður og þar er allt dökk- og mosagrænt.“ Hræðist bráðnunina Þar til kórónuveirufaraldurinn setti allt úr skorðum í ferðamennsku hér á landi vann Henrik í hlutastarfi sem leiðsögumaður, tók eina og eina ferð, meðfram námi sínu við Há- skólann á Bifröst. „Mér finnst rosalega gaman að fara með fólk um landið. Kynna fólk fyrir menningunni, náttúrunni og allt þess háttar. Ég þrífst á því að vita mikið um náttúruna og söguna og það er mikilvægt í þessum bransa,“ segir hann. „Mér finnst íslensk náttúra mjög dýrmæt. Þegar maður er búinn að vera að vinna með fólki sem er að sjá náttúruna hérna í fyrsta skipti minnir það mann á hversu mögnuð hún er.“ Henrik hefur farið með hópa yfir bæði fjöll og jökla sem leiðsögumaður. „Það er ótrúlega dýrmætt. Maður hafði keyrt ótalmörgum sinn- um fram hjá þessum jöklum án þess að stíga fæti á þá. Þegar maður gerði það loks þá opn- aðist einhver nýr heimur. Það er magnað að fara á þessa jökla sem eru núna að hopa svo hratt að það hræðir mann. Það er ótrúlegt hve mikið hefur breyst síðan ég byrjaði að ganga á jökla 2014,“ segir Henrik. „Að sjá þá breytast í návígi. Það er magnað að upplifa jöklana þannig.“ Smáatriðin heilla Þessi reynsla litar að stóru leyti málverk Hen- riks. „Ég hef alltaf haft gaman af málverkum og ég man eftir því þegar ég var að horfa á mál- verk af fjöllum eftir að hafa verið leið- sögumaður í mörg ár. Þá fannst mér alltaf vanta þessi smáatriði. Að ég gæti séð að ég gæti farið hingað og þangað og að ég gæti klifr- að upp þessa kletta og svo framvegis. Það var það sem kallaði á mig þegar ég byrjaði að fikta í þessu. Ég þekki smá- atriðin svo vel, til dæmis hvoru megin við fjallið regnið fellur og veðrar það. Ég fór að læra inn á hvernig fjöllin eru í þessum smáatriðum. Mér finnst mjög gaman að taka lítinn pensil og fikta í þeim,“ segir hann. „Ég get ekki sleppt smáatriðum,“ bætir hann kíminn við. „Þegar ég var að byrja var ég að fikra mig áfram með mismunandi stíla. Ég prófaði að mála portrettmyndir af vinum. Þær heppn- uðust svona allt í lagi,“ segir Henrik og hlær. „Ég var svo smámunasamur að mér fannst þau ekki alveg vera nógu góð.“ Henrik málaði svo mynd af félögum sínum og útsýninu er þeir gengu Laugaveginn. „Þá næ ég að mála þetta fjall og það kallaði svo mikið á mig. Mér fannst svo ótrúlega gaman að mála það. Ég einhvern veginn festi mig í því og hugsaði að það væri gaman að gera nokkrar þannig myndir. Svo ef ég verð þreyttur á því er ég með nokkrar aðrar hugmyndir.“ Engin slökun að mála Ég spyr Henrik út í þennan abstrakt stíl, hvernig hann hafi þróast. „Það var eitt kvöld þar sem ég var kominn inn í YouTube- frumskóginn og var eitthvað að vafra um þar,“ segir Henrik og hlær. „Það endaði á því að ég fann Bob Ross, þann mikla málningarmeist- ara.“ Fyrir þá sem þekkja ekki Bob Ross þá kennir hann fólki að mála í myndböndum sín- um og hefur orðið frægur meðal netverja fyrir „Vaknaði oft á næturnar“ Henrik C. Hlynsson byrjaði að mála um mitt síðasta ár. Frá þeim tíma hefur hann skapað sér ákveðinn stíl í landslags- málverkum sem hefur vakið athygli. Hann hefur unnið sem leiðsögumaður og þekkir því hvern krók og kima á hálendinu og finnst mikilvægt að hafa smáatriðin á hreinu. Að mála hefur hjálpað honum að láta athyglisbrest ekki hindra sig. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is ’Ég slappa sko ekkert af þeg-ar ég er að mála. Ég svitnastundum við að reyna að náöllum þessu litlu smáatriðum. En eftir á er þetta eins og að vera nýkominn úr klakabaði, ræktinni eða eitthvað slíkt. VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.