Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020 LÍFSSTÍLL BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 Samba einingasóf i horntungusófi / 275x233 cm / kr. 387.800 -- margar stærðir og útfærslur í boði Flestir íþróttamenn eiga sérmarkmið sem þeir vinna aðdag og nótt. Það getur verið að komast á Ólympíuleika, vinna þar til verðlauna, verða heimsmeist- ari eða í raun hvað sem er. Íþróttamennirnir sjá fyrir sér að ná takmarki sínu og halda að þá muni þeir loksins verða ánægðir; allt verði gott viti þeir að markmið- inu er náð. En raunveruleikinn er oftast ekki eins og við ímyndum okkur hann. Tyson Fury varð heimsmeistari í þungavigt í hnefaleikum árið 2015 þegar hann varð fyrstur til að sigra Vladimir Klitschko, 27 ára að aldri. „Ég var búinn að hafa þetta sem markmið síðan ég var krakki,“ sagði Fury í hlaðvarpsþætti Joe Rogan seint á árinu 2018. Í kjölfar sigursins sökk Fury í djúpt þunglyndi. „Það var eins og ég hefði ekkert annað við líf mitt að gera,“ sagði hann. Hann sagði við sjálfan sig: „Af hverju vaknaði ég í morgun? Þetta kemur frá manni sem hafði allt: Peninga, frægð, titla, konu, börn, allt. Mér leið eins og ég hefði ekkert. Eins og það væri stór hola.“ Þessa holu reyndi Fury að fylla með vímuefnum, partístandi og kvennafari. Hann segist aldrei hafa notað eiturlyf fyrr en hann varð 27 ára og varð heimsmeistari. „Mér var sama um allt. Mig langaði bara að deyja,“ sagði hann. „Allir gáfust upp á mér.“ Bara árangurinn skipti máli Á dögunum frumsýndi HBO klukkutímalanga heimildarmynd sem ber nafnið The Weight of Gold. Sundkappinn Michael Phelps, sigursælasti ólympíufari sögunnar, er einn framleiðenda myndarinnar. Phelps talar einnig yfir myndina en hún fjallar um þunglyndi og aðra andlega kvilla sem ólympíufarar þurfa að glíma við. Meðal þeirra sem koma fram í myndinni eru Shaun White snjó- brettakappi, Sasha Cohen listskaut- ari, Lolo Jones spretthlaupari, Apolo Ohno skautahlaupari og fleiri. Mörg þeirra hafa unnið til verðlauna á Ólympíuleikum en vilja opna umræðuna um andleg veikindi íþróttamanna. Phelps gagnrýnir bandaríska Ól- ympíusambandið fyrir að styðja ekki nægilega við bakið á íþrótta- mönnum sínum nema það sé í þeim tilgangi að þeir nái árangri inni í íþróttinni. „Í hreinskilni sagt, þegar ég lít til baka yfir ferilinn minn, held ég að enginn hafi í raun viljað hjálpa okkur,“ segir Phelps í mynd- inni. „Ég held að enginn hafi stokk- ið til og spurt hvort það væri í lagi með okkur. Svo lengi sem við vor- um að standa okkur í íþróttinni, held ég að ekkert annað hafi skipt máli.“ „Ég er mannlegur“ Í september 2017 birtist viðtal í New York Times við Phelps og Grant Hackett, annan gull- verðlaunahafa í sundi á Ólympíu- leikunum. Hackett hafði þá nýverið brotnað niður vegna vanlíðunar og vímuefnanotkunar og Phelps og kona hans, Nicole Johnson, tóku hann að sér og studdu hann í gegn- um erfiðleikana. Ástralinn Hackett var á sínum tíma dáður líkt og um stórstjörnu í fótbolta væri að ræða í heimaland- inu þar sem sundmenn eru í háveg- um hafðir. „Það er erfitt þegar þú hefur gert eitthvað sem mörgum finnst vera ótrúlegt, en sem mann- eskja ertu það ekki,“ sagði Hackett í viðtalinu. „Það er eins og þú sért aðskilinn fjöldanum. Þú ert að reyna að vaxa sem manneskja og finna út úr því hver þú ert í mjög erfiðum aðstæðum. Undir smásjá.“ Phelps ræddi hræðslu margra við að stíga fram og viðurkenna erfið- leika sína. „Ég vil geta stigið fram og sagt, „Já, ég hef gert þessa frá- bæru hluti í lauginni en ég er líka mannlegur“,“ sagði Phelps en við- talið fór fram á veitingastað. „Ég er að ganga í gegnum sömu erfiðleika og margir hérna inni.“ Vill ekki fleiri sjálfsmorð Íþróttamenn eru oft hræddir við að ræða andlegar áskoranir sínar því þá gætu þeir virst veikburða og ekki nægilega sterkir andlega til að keppa í sinni íþrótt. „Við þurfum að kenna fólki að andleg heilsa er ekki veikleiki,“ segir Katie Uhlaender, annar ólympíufari sem kemur fram í The Weight of Gold. Uhlaender hefur keppt á fjórum vetrarleikum á eins manns sleða og segir þörf á því að íþróttamenn geti leitað sér hjálpar án þess að fara í gegnum íþróttaþjálfara eða aðra sem meta hæfni þeirra til að keppa. Ekki sé nóg að hafa aðgang að íþróttasálfræðingi sem geri fólk ein- ungis tilbúið til að takast á við áskoranir þegar komið er í keppni. Í myndinni eru nokkrir ólympíu- farar sem fallið hafa fyrir eigin hendi eftir baráttu við þunglyndi nefndir. Jeret Peterson, silfur- verðlaunahafi í skíðafimi með frjálsri aðferð, framdi sjálfsmorð árið 2011. Steven Holcomb bob- sleðakappi lést árið 2017 af of stórum skammti af svefntöflum og áfengi eftir langa baráttu við þung- lyndi. Kelly Catlin hjólreiðakappi féll fyrir eigin hendi í fyrra og Pavle Jovanovic, annar bob- sleðakappi, fór sömu leið fyrr á þessu ári. „Ég vil ekki sjá fleiri sjálfsmorð,“ segir Phelps í myndinni. Komst aftur á toppinn Eftir um það bil tveggja og hálfs árs baráttu við þunglyndi og fíkni- vanda var Tyson Fury orðinn um 180 kíló. „Ég var týndur þegar ég var ekki að berjast,“ sagði hann í hlaðvarpsþættinum. En eitt kvöldið breyttist eitthvað. Hann ákvað að verða heimsmeistari aftur. Hann setti sér það markmið. Til þess að dragast ekki niður í þunglyndið aftur setti Fury sér lítil markmið. „Ég setti mér það mark- mið að losa mig við aukakílóin. Ég setti mér markmið um að léttast um 5 kíló og svo þegar ég náði því setti ég mér markmið um að léttast um önnur 5 eða 10 kíló.“ Hann sagði að þegar hann hafi komist af stað, hreyft sig og unnið að sínum markmiðum, þjáðist hann ekki af andlegum kvillum. Skömmu eftir hlaðvarpsviðtalið mætti Sígaunakonungurinn, eins og hann er kallaður, í hringinn gegn Deontay Wilder. Þeir börðust um heimsmeistaratitilinn en dóm- ararnir dæmdu bardagann jafntefli að 12 lotum liðnum. Tæpum 15 mánuðum seinna, í febrúar á þessu ári, sigraði Fury Wilder í öðrum bardaga og varð þar með aftur heimsmeistari eftir allt það sem á undan var gengið. Hægt er að sleppa úr prísundinni. „Langaði bara að deyja“ Ný heimildarmynd með Michael Phelps beinir kastljósinu að andlegri heilsu ólympíufara sem getur oft verið ábótavant. Talsvert hefur verið um að íþróttafólk svifti sig lífi síðustu árin. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Tyson Fury eftir að hafa endurheimt heimsmeistaratitil sinn með sigri á Deontay Wilder í febrúar. AFP Michael Phelps heldur ræðu fyrr á þessu ári. Hann hefur verið iðinn við að láta í sér heyra varðandi andlega heilsu íþróttamanna síðan hann hætti að synda. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.