Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 23
beinlínis óskynsamlegt ef hún væri ekki hanskaklædd við þá iðju daginn lon og daginn don. Á dögum heimsfaraldurs hefur auðvitað borið mest á einnota hönsk- um, en sala á hefðbundnum hönskum hefur einnig rokið upp. Þá er fólk að leita sér að léttum og ófóðruðum hönskum, sem unnt er að bera án óþæginda allan daginn ef því er að skipta. Það skiptir miklu máli að leðr- ið sé mjúkt og þjált og andi nægilega til þess að fólk verði ekki þvalt á höndum. Þar eru ýmsir vaskaskinns- hanskar bestir, en þeir eru auk þess þeirrar náttúru að þá má þvo einfald- Tískan breytist ár frá ári og umsumt er erfitt að átta sig á þvíhvernig þeir straumar verða til og breiðast út, magnast og hjaðna. „Tískan er ekkert annað en faraldur af ráðnum hug,“ sagði rithöfundurinn George Bernand Shaw og fleiri hafa auðvitað dregið sömu ályktun, eins og orðið tískufaraldur ber með sér. Ann- að er mönnum ljósara, eins og hvern- ig tískan tekur mið af ytri aðstæðum. Þannig mátti sjá samhengi milli pilsa- síddar liðinnar aldar og efnahags- ástands, hún breyttist töluvert á stríðstímum og þannig mætti áfram telja. Gerbreyttar ef ekki fordæma- lausar aðstæður vegna heimsfarald- urs hafa vitaskuld einnig áhrif á tískuna með ýmsum hætti. Eins og sjá má á liðlega aldargamalli úrklippu úr bandrísku blaði brugðust tískuhús þess tíma við spænsku veikinni árið 1918 með sínum hætti, þótt nytsemin hafi verið umdeilanleg. Nú á dögum heimsfaraldurs af völdum kórónuveirunar hefur tísku- geirinn einnig þurft að bregðast við með ýmsu móti. Hann hefur mjög fundið fyrir honum, þar sem víða hef- ur þurft að loka fataverksmiðjum, af- lýsa hefur þurft helstu viðburðum í greininni og ótryggt efnahagsástand almennt hefur einnig haft sín áhrif. Þar inn í kemur einnig hvað Kínverj- ar hafa sótt í sig veðrið, bæði í vefnaði og fataframleiðslu á undanförnum ár- um, en þeir eru langstærsti útflytj- andi heims á því sviði, en árið 2018 nam sá útflutningur um 275 millj- örðum Bandaríkjadala. Tískuhúsin hafa brugðist við á ýmsan hátt, sum hafa framleitt nýjar flíkur sem miðast við þarfir sund- urgerðarfólks í klæðaburði á meðan plágan gengur yfir, en önnur sneru sér að framleiðslu hlífðarfata og á andlitsgrímum fyrir heilbrigðisgeir- ann. Eins hafa snyrtivörufyrirtæki á borð við L’Oreal og LVMH (Parfums Christian Dior og Guerlain) snúið sér að framleiðslu á handspritti og ámóta vöru fyrir spítala, dvalarheimili og lyfjaverslanir. Sennilega — eða vonandi — verður þessi plágutíska ekki mjög langvinn, en þó er aldrei að vita. Ef heimsfarald- urinn heldur áfram að krauma enn um hríð og bóluefni láta á sér standa er aldrei að vita nema hún festi sig í sessi. Og mögulega verða einnig úr varanlegar samfélagsbreytingar. Þó að Íslendingar hafi (enn) ekki til- einkað sér að bera grímur á götum úti, þá er það orðið alvanalegt í helstu borgum og bæjum bæði í Evrópu og vestanhafs, sem hefði þótt óhugsandi fyrir misseri. Það hefur hins vegar verið alsiða í mörgum Asíulöndum síð- ustu áratugi. Eins má vel vera að fólk fari að bera hanska dags daglega, hvort sem sérstök faraldursviðvörun er eða ekki. Hvort tveggja dregur enda úr líkunum á því að hreppa hvers kyns umgangspestir og hvaða Íslend- ingur vildi ekki fá sjaldnar kvef? Grímur Hátískufyrirtæki eins og Chanel, Sa- int Laurent, Balenciaga, Gucci og Christian Siriano hafa aðstoðað við að svara margfaldri eftirspurn heil- brigðisstarfsmanna eftir N95- andlitsgrímum, en þau og fleiri hafa einnig lagt sitt af mörkum við að framleiða andlitsgrímur fyrir al- menning, sem ekki líta allar út eins og beint úr hryllingsmynd. Sumar þeirra eru hrein merkjav- ara og verðmiðinn eftir því, aðrar gerðar til þess að fara með öðrum flíkum eins og blússum, kjólum eða drögtum, en fyrir herrana má fá vasaklúta og grímur í stíl. Þá er tölu- vert fram komið af grímum, sem eru svo sérstakar og oft skrautlegar, að telja má til listmuna og sækja jafnvel fyrirmyndir í skrautgrímur fyrri alda, jafnvel commedia dell’arte og ættu sumar vel heima á grímudans- leik. Svo er auðvitað kominn fram sægur af alls kyns sniðugheitagrím- um með neðri hluta hauskúpu, teikni- myndafígúrum eða ámóta, þótt fæst af því sé hægt að telja til tískuvöru. Hálsklútar og slæður Áhrifin á tískuna ná þó ekki aðeins til andlitsgrímna, því með þeim hafa vin- sældir rúllukragapeysa með kraga í yfirstærð aukist og eins eru treflar ekki lengur aðeins vetrarflík. Þá er fólk fremur að horfa til silkitrefla og hálsklúta, sem eru notaðir til þess að hylja grímur að einhverju leyti. Sum- ir nota þá jafnvel einvörðungu, en þó að sóttvörnin sé þá ekki hálft jafn- mikil og af góðum grímum, þá er sú vörn miklu skárri en engin. Sömuleið- is hafa slæður selst miklu betur en um áratugaskeið, en þær eru vel til þess fallnar að hylja eða draga at- hyglina frá grímunum, sem fæstar geta talist aðlaðandi, hversu vel sem þær eru hannaðar. Hanskar Sú var tíð að allt heldra fólk gekk með hanska dags daglega, enda óhreinindi og ryk meira þá, að ógleymdum ýmsum sóttkveikjum. Úr henni dró mjög á síðustu öld eftir því sem hreinlæti jókst og ný lyf drógu mátt úr sýkingum. Þó eimdi eftir af henni fram á sjöunda áratug liðinnar aldar, þegar konur tóku loks að leggja hanskana á hilluna. Ekki þó allar, eins og Elísabet II. Englands- drottning er gott dæmi um. Hjá henni er það þó ekki aðeins fastheldni í klæðaburði, heldur ekki síður til þess að vera henni almenn vörn í dag- legu lífi, þar sem hún fer úr einum mannfjöldanum í annan og þarf iðu- lega að taka í hönd annarra, svo hundruðum skiptir á dag. Það væri Tískan og heims- faraldurinn Faraldurinn hefur haft margvísleg áhrif, þar á meðal á tískuheiminn. Sumt er vafalaust dægur- tíska en annað kann að festa sig í sessi. Andrés Magnússon andres@mbl.is WWD Archives Þessi sólgleraugu frá Versace eru bæði hátíska og hálfgildings andlitshlíf. lega með því að vinda þá í vatni og leyfa þeim að þorna yfir nótt. Sólgleraugu Líkt og sjá má í heilbrigðisgeiranum lætur fólk í framlínunni ekki nægja grímur, hanska og hlífðarflöt, heldur notar það einnig andlitshlífar. Það þykir fullmikið af því góða í daglegu lífi, en þó má af tískunni sjá viðleitni í sömu átt. Það er tæplega helber til- viljun að í sólgleraugnatískunni hafa sólgleraugu í yfirstærð mjög rutt sér til rúms í ár, iðulega með tilvísun til sjöunda og áttunda áratugarins. Þau gera auðvitað ekki sama gagn og and- litshlífar, en þau geta samt hlíft aug- unum mikið og allur er varinn góður. Mörg tískuhús hafa spreytt sig á því að gera snotrar og eftirtektarverðar andlitsgrímur, en einnig hafa ýmsir listiðnaðar- menn skemmt sér við að búa til óvenjulegar grímur eins og diskókúlugrímu eða persónulegar grímur, þar sem andlit eig- andans er prentað á þær. Svo hafa sum fyrirtæki eins og hið sænska Airinum, sem upphaflega gerði grímur fyrir hjólreiðafólk og fólk með frjóofnæmi, brugðist skjótt við og hannað grímur sérstaklega með sóttvarnir í huga. Hversdagshanska af þessu tagi má rekja nánast óbreytta aftur til sautjándu aldar, en nú orðið eru þeir helst notaðir með sjakketi við brúðkaup, til aksturs eða þess háttar. En þeir eru fyrirtak í heimsfaraldrinum líka. Þessir eru úr peccary-leðri, sem er unaðslega mjúkt, en þá má fá í ýmsu ódýrara leðri. Nýjasta tískan á dögum spænsku veikinnar 1918. Mikið vafamál er að blæjur sem þessar hafi gert minnsta gagn. 9.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR-LAUSU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.