Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Blaðsíða 24
Hinsegin dagar verða hafðir í háveg- um í Ríkissjónvarpinu um helgina, bæði að kvöldi laugardags og sunnu- dags, Stolt í hverju skrefi – hátíðar- dagskrá Hinsegin daga nefnist skemmtiþáttur á laugardagskvöldið í tilefni af 20 ára afmæli Gleðigöng- unnar þar sem flutt verður tónlist og fólk tekið tali. Kynnar eru Sigurður Gunnarsson og Ingileif Friðriks- dóttir og Ragnar Eyþórsson stjórn- aði upptöku. RÚV framleiðir þáttinn í samstarfi við Hinsegin daga. Á sunnudagskvöldið er svo á dag- skrá heimildarmynd Hrafnhildar Gunnarsdóttur, Fjaðrafok, sem fjallar um tuttugu ára sögu Gleði- göngunnar. „Fyrstu gleðisporin voru tekin frá Hlemmi árið 2000, nú tuttugu árum síðar er við hæfi að líta um öxl. Fjaðrafok fjallar um sýni- leikann, saumsporin, skipulagn- inguna, þróun og þroska Gleðigöng- unnar – Hinsegin daga og áhrifin sem hún hafði á okkur öll,“ segir í dagskrárkynningu. Engin Gleðiganga fer fram á Hinsegin dögum vegna kórónuveirufaraldursins en Ríkissjónvarpið verður með dagskrá tileinkaða hátíðinni um helgina. Gleðin flyst yfir á skjáinn Páll Óskar og félagar voru í miklu stuði í Gleðigöng- unni í fyrra. Engum blöðum er víst um þaðað fletta að árið 2020 er þaðundarlegasta sem flest okkar hafa upplifað. Fjöldatakmarkanir, samkomubönn, tveggja metra regla, andlitsgrímur og enginn bumbubolti vikum saman. Eitt hefur þó ekki verið bannað – sjónvarpsgláp, og það hefur fólk vítt og breitt um heiminn fært sér í nyt. Ný bresk rannsókn hefur leitt í ljós að meðal-bretinn varði 40% af sínum vökustundum fyrir framan sjónvarpið meðan heimsfaraldurinn náði hápunkti þar um slóðir í vor og sumar. Hafa ber í huga að Boris Johnson gekk mun lengra en Katrín Jakobsdóttir í varúðaraðgerðum sín- um og Bretar þurftu um tíma að sæta útgöngubanni. Fyrir þá sem ekki eru með stígvél eða þrekhjól í vaskahúsinu er fátt annað í boði við þær aðstæður en gamla góða bókin eða sjónvarpið. Og það síðarnefnda gerði gott mót en ef marka má téða rannsókn, sem þar til gerð eftirlits- stofnun með fjölmiðlum, Ofcom, gerði þá vörðu okkar bestu George og Georgina heilum sex klukku- stundum og 25 mínútum í sjónvarps- gláp á dag meðan þau sættu út- göngubanni í apríl. Ekki fylgir sögunni hvað þau skötuhjú lásu löngum stundum enda hefur Ofcom mun minni áhuga á því. Þetta er tæplega þriðjungi meiri tími en George og Georgina vörðu í sömu iðju í apríl í fyrra, þegar þau lágu að- eins í hálfan annan tíma á dag yfir sjónvarpinu. Nú eða sátu. Það liggja ekki allir yfir sjónvarpinu enda þótt það sé alltaf freistandi og þægilegt, ekki síst ef menn eru vel sófaðir. Samkvæmt rannsókninni hefur streymisveitum á borð við Netflix, Amazon Prime Video og Disney+ vaxið fiskur um hrygg á þessu ári og setja rannsakendur það í beint sam- hengi við ástandið í heiminum. Hefð- bundnar sjónvarpsstöðvar bjóði upp á takmarkað efni og fyrir vikið hafi alþýða manna þurft að róa á önnur mið til að gyrða fyrir almenna sút og lífsleiða. Í könnuninni kemur fram að áhorf meðal-bretans á streymisveitur losi nú rúma klukkustund á dag og í ald- urshópnum 16 til 25 ára fari sá tími upp í tvær klukkustundir. Tólf m. bættu við sig veitu Rannsókn Ofcom sýnir að tólf millj- ónir Breta bættu við sig streymis- veitu meðan á útgöngubanni stóð. Um 7 milljónir þeirra voru þegar með streymisveitu fyrir, um 2 millj- ónir voru hættar með þá þjónustu en tóku hana upp aftur og 3 milljónir tryggðu sér aðgang að streymisveitu í fyrsta sinn á ævinni. Disney+ hefði ekki getað hafið göngu sína á betri tíma, 24. mars, daginn eftir að breska þjóðin fékk fyrirmæli um að halda sig heima. Á undraskömmum tíma er þessi nýja streymisveita komin með bronsið, á eftir Netflix og Amazon Prime Vid- eo. Hefur sumsé reykspólað fram úr bæði BBC iPlayer og Sky Now TV. Skýringin liggur svo sem í augum uppi; skólar voru lokaðir og eitthvað urðu foreldrar að finna handa ómegðinni að gera á meðan. „Það blasir við að þetta hafa verið nær fullkomin skilyrði fyrir allar helstu streymisveiturnar,“ segir Richard Broughton, hjá greiningar- fyrirtækinu Ampere, við breska dagblaðið The Guardian. „Meðan á útgöngubanninu hefur staðið hefur verið skortur á valkostum þegar kemur að afþreyingu; fólk má hvorki hitta vini sína og kunningja né fara í kvikmyndahús, veitingastaði, klúbba og ölstofur. Þar sem fjölbreytnin í hefðbundnu sjónvarpi er til þess að gera takmörkuð var fólk óðum að verða uppiskroppa með efni til að horfa á.“ Þetta staðfestir rannsóknin en hefðbundnir miðlar á borð við BBC, ITV, Channel 4 og fleiri tóku til að byrja með kipp eftir útgöngubann en sú sæla reyndist vera skamm- vinn. Frestun stórviðburða á borð við Evrópumeistaramótið í knattspyrnu og Ólympíuleikana hefur að vonum komið sér illa fyrir hefðbundnar sjónvarpsstöðvar sem áttu réttinn á því vinsæla efni. Þá liggur fram- leiðsla á nýjum þáttum, svo sem hin- um geysivinsælu Love Island, niðri meðan á faraldrinum stendur og áhorfendur taka því ekki þegjandi og hljóðalaust að boðið sé upp á endursýningar á Coronation Street og Eastenders í staðinn. Með fullri virðingu fyrir þeim ól- seigu og ágætu þáttum. Allt fram streymir ... Eins og heimsfaraldurinn kemur illa við marga þá blómstra streymisveitur á borð við Netflix og Amazon Prime Video sem aldrei fyrr enda hefur fólk meiri tíma til að horfa á sjónvarp en áður. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Þættirnir um Joseph „Joe Exotic“ Maldonado, tígrana hans og ævintýri þeirra hafa slegið rækilega í gegn á Netflix. Þessi vinsæla efnisveita hefur styrkt stöðu sína til muna á markaðnum meðan á heimsfaraldrinum hefur staðið á árinu. AFP Það getur verið lífsspursmál fyrir heimili þessa heims að hafa aðgang að vönd- uðu barnaefni á þessum síðustu og verstu tímum, svo sem Disney+. AFP 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020 LÍFSSTÍLL Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.