Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020 LESBÓK Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin, Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi með súkkulaðibragði MÁLMUR Corey Taylor, söngvari málmbandanna Slipknot og Stone Sour, sendir frá sér sína fyrstu sóló- plötu, CMFT, í byrjun október. Í samtali við finnsku sjónvarpsstöðina Kaaos TV kveðst hann ekki hafa haft nein áform um að gefa út sólóefni en þar sem bæði blaðamenn og aðdáendur hafi þráspurt sig um slíkt verkefni hafi hann farið að spá í það. „Því fleiri sem spurðu um þetta, þeim mun meira fór ég að velta fyrir mér hvernig sólóplata frá mér myndi hljóma. Svo áttaði ég mig á því að ég á helling af lögum sem ég hef samið gegnum árin sem falla ekki að neinu sem ég hef verið að gera. Fín lög en hljóma hvorki eins og Slipknot né Stone Sour,“ segir Taylor og bætir við að hann sé þegar farinn að leggja drög að annarri sólóplötu. Sólóplata frá Taylor Corey Taylor á sviði með Stone Sour. AFP VIGT „Samfélagið er búið að spyrða saman mjótt og gott. Mjótt er sama og gott, feitt er sama og vont. Í þessu felst mikil eyðilegging og er satt best að segja ógnvekjandi,“ segir bandaríska leikkonan Beanie Feldstein í samtali við breska blaðið The Indep- endent. Svo langt gekk það einu sinni að Feld- stein þurfti að rita grein til að biðja fólk að hætta að hrósa sér þegar hún losnaði við nokkur kíló vegna hlutverks sem hún var að leika. Hún fékk mikil viðbrögð við greininni, meðal annars frá fólki sem var í raun og veru veikt en hafði eigi að síður verið hælt á hvert reipi á samfélagsmiðlum fyrir að missa einhver kíló. AFP Ian Gillan, söngvari Deep Purple. Fjólublátt áfram ELJA Þremur árum eftir að þeir hrintu af stokkunum tónleikaferð- inni „Kveðjan langa“ hafa gömlu rokkbrýnin í Deep Purple engin áform um að leggja upp laupana, eins og frystihúsin forðum. Þetta kom fram í samtali vefmiðilsins Cleveland.com við söngvara bands- ins, Ian Gillan. „Fyrir nokkrum árum var þrýst á okkur að gera eins konar útgöngu- áætlun – við höfðum allir verið í betra formi líkamlega þannig að við féllumst á kveðjutúr,“ sagði Gillan sem orðinn er 74 ára. „En lykilorðið í þessu er „langur“, svo já, mjög langur. Við eigum eftir að fara ein- hvern spöl enn. Það gerist auðvitað ekkert að sinni en þegar það verður óhætt geri ég ráð fyrir að við mun- um skemmta okkur aðeins á ný.“ Hann sleppti sér gjörsamlegaog varð eldrauður í framan.Okkur krossbrá. Ég beið eftir að Ellen skakkaði leikinn. „Slak- aðu á, Ed, ekki tala með þessum hætti.“ En veistu hvað hún gerði? Hún flissaði. Hún krosslagði bara fæturna í sæti sínu og sagði: „Ég býst við að allir þættir þurfi sinn snata.“ Upp frá því vissum við að Ed myndi verða geltandi hundur – hundurinn hennar. Það hvítnuðu allir upp. Við erum fagfólk, fullorðið fólk. Við þurf- um ekki hund til að skipa okkur að vinna vinnuna okkar. Hún var sú eina sem flissaði.“ Þannig komst Hedda Muskat, fyrrverandi framleiðandi við spjall- þátt Ellenar DeGeneres, að orði í samtali við fjölmiðilinn The Wrap í vikunni, þegar hún lýsti upplifun sinni af samskiptum Eds Glavins, að- alframleiðanda þáttarins, og óbreytts starfsmanns. Þetta er bara ein af fjölmörgum sögum sem sagðar hafa verið um Ell- en DeGeneres og andrúmsloftið við gerð spjallþáttar hennar í Bandaríkj- unum að undanförnu og ríma illa við þá mynd sem flestir áhorfendur hafa haft af konunni sem virkar hvers manns hugljúfi á skjánum og gefur gestum í sal gjafir á bæði borð áður en hún klykkir út með frasanum „verið almennileg hvert við annað“. Fallið hefur hratt á glansmyndina og fjölmiðar beggja vegna Atlantsála velta nú fyrir sér hvort Ellen sé Fellur á glansmyndina Öll spjót standa á spjallþáttadrottningunni Ellen DeGeneres þessa dagana eftir ásakanir um yfir- gang og dónaskap hennar og framleiðenda þáttar hennar í garð starfsmanna og jafnvel gesta. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Dakota Johnson svaraði Ellen fullum hálsi. AFP Ellen DeGeneres hefur sætt gagnrýni úr mörgum áttum á undanförnum misserum. Hinsegin samfélagið hefur til dæmis legið henni á hálsi fyrir vináttu hennar og George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir þær sakir að hann hafi á sinni tíð verið andvígur hjónaböndum samkynhneigðra. Þá fékk hún skömm í hattinn úr sömu átt þegar hún lagði til að spé- fuglinn Kevin Hart yrði endurráðinn til að kynna óskarsverð- launahátíðina eftir að hafa orðið ber að fordómum í garð samkynhneigðra. Ellen, sem sjálf er samkynhneigð, svaraði því í báðum tilvikum til að hún gæti vel átt vini án þess að deila skoðunum með þeim. „Við erum öll ólík og stundum held ég að við höfum gleymt því að það er allt í lagi að vera ólík,“ segir hún og bætir við að við eigum að vera al- mennileg við alla, ekki bara þá sem deila sömu grundvall- arskoðunum og við. Skömmuð af hinsegin fólki George W. Bush Bandaríska leikkonan Be- anie Feldstein. Mjótt er gott og feitt er vont

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.