Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Síða 29
hreinlega búin að vera sem þátta-
stjórnandi í sjónvarpi.
Segja má að vandræði Ellenar hafi
hafist í nóvember í fyrra þegar hún
átti mjög vandræðalegt samtal við
leikkonuna Dakotu Johnson í þætti
sínum. Ellen byrjaði sem frægt er á
því að upplýsa að Johnson hefði ný-
lega fagnað þrítugsafmæli sínu og
spyrja hvernig samkvæmið hefði ver-
ið. „Mér var ekki boðið.“ Í stað þess
að hlæja bara og drepa málinu á dreif
svaraði Johnson Ellen nokkuð óvænt
fullum hálsi. „Það er ekki rétt, ég
bauð þér en þú mættir ekki.“ Ellen
brá í brún en kannaðist ekki við að
hafa verið boðið. „Spurðu bara Jonat-
han, framleiðandann þinn,“ svaraði
Johnson og á daginn kom að hún
hafði í raun og sann boðið Ellen í þrí-
tugsafmælið sitt.
Hlaut leikkonan unga mikið lof fyr-
ir að standa fast á sínu og láta Ellen
ekki slá sig út af laginu.
Þetta samtal varð til þess að ein-
hverjir fóru að velta fyrir sér hvort
Ellen væri ekki öll þar sem hún er
séð. Og skyndilega rak hver sagan
aðra. Hollenski förðunarmeistarinn
Nikkie Tutorials talaði um að Ellen
hefði verið „köld og fjarlæg“ þegar
hún heimsótti þáttinn, auk þess sem
„úrillur lærlingur“ hefði tekið á móti
henni og að hún alls ekki mátt nota
næsta náðhús, þar sem það var frá-
tekið fyrir Jonas-bræður.
Þá rifjaði ástralski útvarpsmað-
urinn Neil Breen upp að allir hefðu
tiplað á tánum í kringum Ellen þegar
þátturinn kom í heimsókn til Ástralíu.
„Heyrðu, Neil. Enginn má tala við
Ellen. Þú talar ekki við hana, þú nálg-
ast hana ekki, þú yrðir ekki einu sinni
á hana,“ var honum tjáð af starfs-
manni þáttarins.
Í maí síðastliðnum ræddi Tom
Majarek, fyrrverandi lífvörður Ell-
enar, hegðun hennar við Fox News.
„Hún er mjög köld og slóttug og
kemur ómerkilega fram við alla nema
þeir tilheyri hennar innsta hring.
Þetta truflaði mig árum saman. Hún
virkar vel upplýst, jákvæð og æðisleg
og allir elska hana og virða en það er
alls ekki málið þegar maður hittir
hana. Eftir að hafa haft bein sam-
skipti við hana sé ég að henni er slétt
sama um alla aðra svo lengi sem hún
fær sínu framgengt.“
Nú síðast stigu leikararnir Brad
Garrett og Lea Thompson fram og
sögðust þekkja marga sem Ellen
hefði komið illa fram við og að það
væri á allra vitorði í Hollywood.
Þessar umsagnir eru þó hjóm hjá
þeim ásökunum sem hópur fyrrver-
andi starfsmanna við þáttinn lagði
fram í tveimur greinum á vefmiðl-
inum BuzzFeed News í júlí. Fyrst
ræddu tíu fyrrverandi starfsmenn
um að andrúmsloftið við gerð þátt-
anna væri eitrað og að fólki væri sagt
upp störfum af minnsta tilefni, eins
og til dæmis fyrir að taka sér frí til að
vera við útfarir. Einn starfsmaður
sagði að slökkt væri á almennileg-
heitunum um leið og myndavélunum.
„Þetta er allt sýndarmennska.“
Þátturinn sætir rannsókn
Síðan sökuðu 36 fyrrverandi starfs-
menn aðalframleiðendur þáttarins
um kynferðislega áreitni og aðra mis-
beitingu valds. Fullyrtu þeir að Ellen
sjálfri væri fullkunnugt um þá hegð-
un en að hún leiddi hana hjá sér.
Í millitíðinni hrinti fyrirtækið sem
framleiðir þáttinn, WarnerMedia, í
framkvæmd rannsókn á ásökununum
og þegar hefur komið fram að breyt-
ingar verði gerðar í ljósi þess að sam-
töl við starfsmenn hafi leitt í ljós að
pottur sér brotinn við daglega stjórn-
un þáttarins.
Sjálf hefur Ellen DeGeneres sent
samstarfsfólki sínu bréf og beðist vel-
virðingar á því að grunngildi þátt-
arins um hamingju og vellíðan hafi
ekki verið í heiðri höfð. Í því sam-
bandi bendir hún þó aðallega á aðra
en sjálfa sig. „Sem manneskja sem
var dæmd og missti hér um bil allt
fyrir að vera bara ég sjálf skil ég
mætavel og hef djúpa samúð með öll-
um sem litnir hafa verið hornauga
eða illa hefur verið komið fram við,
ekki sem jafningja, eða – sem verra
er – sýnd lítilsvirðing. Að einhverjum
ykkar hafi liðið þannig er hræðilegt
frá mínum bæjardyrum séð,“ segir
Ellen í bréfinu.
Næsta sería af þættinum á að fara í
loftið 9. september og hefur Warner-
Media enn sem komið er staðið við
bakið á Ellen. Leitin að arftaka henn-
ar er þó hafin í fjölmiðlum ytra og er
enski háðfuglinn James Corden oft-
ast nefndur í því sambandi en hann
hefur slegið í gegn í þættinum The
Late Late Show á CBS.
Ellen DeGeneres hefur
stjórnað geysivinsælum spjall-
þætti í sjónvarpi frá 2003.
AFP
9.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
MÁLMUR Bandaríska málmbandið
Trivium hefur fest kaup á risastóru
flugskýli í Orlando. Ekki eru uppi
áform um flugrekstur, heldur ætla
Matt Heafy og félagar að breyta
húsnæðinu í æfingarými, hljóðver
og geymslu fyrir búnað sinn. Í sam-
tali við bresku sjónvarpsstöðina
Rock Sound segir Heafy einnig
koma til greina að efna þar til tón-
leika þegar fram líða stundir.
Aðdáendur Trivium hafa verið dug-
legir að stinga upp á nöfnum á skýl-
ið, t.a.m. St. Hangar.
Festu kaup á flugskýli
Matt Heafy í essinu sínu á tónleikum.
AFP
BÓKSALA Í JÚLÍ
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Vegahandbókin 2020 Ýmsir
2 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
3 Þerapistinn Helene Flood
4 Tíbrá Ármann Jakobsson
5
Handbók fyrir ofurhetjur
– fimmti hluti
Elias og Agnes Våhlund
6 Þögli sjúklingurinn Alex Michaelides
7 Þess vegna sofum við Matthew Walker
8 Sumar í París Sarah Morgan
9 Kortabók Örn Sigurðsson
10 Risasyrpa – frægð og frami Walt Disney
11 X leiðir til að deyja Stefan Ahnhem
12 Hálft hjarta Sofia Lundberg
13 Þrír tímar Anders Roslund
14 Hittu mig á ströndinni Jill Mansell
15 Hafnargata Ann Cleeves
16 Í vondum félagsskap Viveca Sten
17 Ættarfylgjan Nina Waha
18 Þorpið Camilla Sten
19 Pabbastrákur Emelie Schepp
20 Sjáðu mig falla Mons Kallentoft
Allar bækur
Ég viðurkenni að þegar ég var beð-
in um að skrifa nokkur orð um þær
bækur sem ég er að lesa hélt ég að
verið væri að gera grín að mér. Ég
er nefnilega enginn lestrarhestur
og hef aldrei verið. Sem góður
námsmaður hef ég auðvitað lesið
heilan helling mér til gagns en ynd-
islestur lærði ég ekki. Ég hef gert
ótal tilraunir til þess að bæta úr
þessu og byrjað á bókum sem vel
lesið fólk mælir með en fæstar hef
ég klárað. Í mörg ár hef ég skamm-
ast mín fyrir þetta
og verið ansi grimm
við sjálfa mig – ég
meina hversu erfitt
er að lesa bók frá
byrjun til enda?
Þetta á ekki að vera
flókið.
Fyrir um það bil tveimur árum
varð ég síðan fyrir uppljómun. Ég
var á leiðinni utan og ákvað að
kaupa mér bók í fríhöfninni. Ég
hugsaði með mér að nokkrar
klukkustundir í flugvél væru kjörið
tækifæri til þess að pína mig í gegn-
um bók í stað þess að horfa á kvik-
myndina Notebook í milljónasta
skipti. Bókin sem ég valdi var This
Changes Everything: Capitalism
vs. The Climate eftir
Naomi Klein. Í fyrsta
skipti á ævi minni
upplifði ég það sem
aðrir höfðu svo oft
lýst – ég varð heltek-
in af bókinni og gat
ekki lagt hana frá
mér. Ég kláraði rúm-
lega 500 blaðsíðna bók á nokkrum
dögum! Þá áttaði ég mig á því að
bækur eru auðvitað ekki bara bæk-
ur og fólk er ekki annaðhvort les-
arar eða ekki. Alveg eins og með
kvikmyndir þá hefur fólk ólíkan
smekk og fjölbreytt áhugasvið. Ég
var alltaf að rembast við að lesa
skáldsögur mér til skemmtunar en
áttaði mig þarna á því að raunveru-
leikinn væri mun áhugaverðari.
Eftir þessa örlagaríku flugferð hef
ég lesið hverja bókina á fætur ann-
arri, þar standa upp úr; No Logo:
No Space, No Choice, No jobs; No
is Not Enough: Resisting Trumṕs
Shock Politics and
Winning the World
We Need (einnig
skrifaðar af Naomi
Klein); Scattered
Minds: The Origins
and Healing of At-
tention Deficit Dis-
order eftir dr. Gabor Maté og svo
bókin Down Girl: The Logic of
Misogyny eftir heimspekinginn
Kate Manne.
Núna er ég að lesa
magnaða bók um
það hvernig manns-
heilinn starfar og býr
til tilfinningar. Hún
heitir How Emo-
tions are Made: The
Secret Life of the
Brain og er skrifuð af sálfræð-
ingnum og taugavísindamanninum
Lisu Feldman Bar-
rett. Ég mæli mikið
með þessari bók,
hún er svo upplýs-
andi og skemmti-
lega skrifuð.
Næst á dagskrá er
svo að lesa nýjustu
bók heimspekings-
ins Kate Manne sem ber heitið En-
titled: How Male Privilege Hurts
Women en hún kemur út 11. ágúst
næstkomandi.
SVALA HJÖRLEIFSDÓTTIR ER AÐ LESA
Bækur ekki bara bækur
Svala Hjörleifs-
dóttir er
grafískur
hönnuður.