Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.08.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.8. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.40 Dóra og vinir
09.05 Tappi mús
09.10 Mæja býfluga
09.25 Adda klóka
09.50 Zigby
10.00 Mia og ég
10.25 Lína Langsokkur
10.50 Latibær
11.10 Lukku-Láki
11.35 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Friends
13.55 Nei hættu nú alveg
14.35 Katy Keene
15.20 Drew’s Honeymoon
House
16.05 Moonlight Sonata:
Deafness in Three
Movements
17.30 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.47 Sportpakkinn
19.00 Bibba flýgur
19.25 Who Wants to Be a
Millionaire
20.20 Mystery 101
21.45 Rebecka Martinsson
22.35 Pennyworth
23.30 Queen Sugar
00.15 The Sandhamn Mur-
ders 7
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Að vestan
20.30 Uppskrift að góðum
degi á Norðurlandi
vestra – Fjórði þáttur
21.00 Að norðan
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Mannamál
20.30 Eldhugar: Sería 1
21.00 21 – Úrval
21.30 Bærinn minn
Endurt. allan sólarhr.14.30 90210
15.15 Carol’s Second Act
16.05 Survivor
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is Us
19.05 Einvígið á Nesinu 2020
20.00 The Block
21.00 The Act
21.55 Godfather of Harlem
22.55 City on a Hill
23.50 Love Island
00.45 Hawaii Five-0
01.30 Blue Bloods
02.15 Seal Team
03.00 The Affair
04.00 Black Monday
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Tónlist í straujárni.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta á Suð-
urnesjum.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Bítlatíminn.
15.00 Hnallþóran.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Kínverski draumurinn.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Söguþula sögð af einu
fífli.
20.35 Vegur að heiman er
vegur heim.
21.15 Kvöldvaka: Sagnaþætt-
ir.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.46 Hrúturinn Hreinn
07.53 Klingjur
08.04 Lalli
08.11 Stuðboltarnir
08.23 Nellý og Nóra
08.30 Robbi og Skrímsli
08.52 Hæ Sámur
08.59 Unnar og vinur
09.22 Ronja ræningjadóttir
09.45 Sammi brunavörður
09.55 Þvegill og skrúbbur
10.00 Af fingrum fram
10.50 Venjulegt brjálæði
11.30 Átta raddir
12.05 Pricebræður bjóða til
veislu
12.35 Treystið lækninum
13.25 Tónstofan
13.50 Landakort
14.00 Íslandsmótið í golfi
17.30 Hinseginleikinn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Í fremstu röð
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Sumarlandinn
20.20 Fjaðrafok
21.30 Löwander-fjölskyldan
22.30 Íslenskt bíósumar:
María
24.00 Hljóðrás: Tónmál tím-
ans – Geimkapp-
hlaupið
00.40 Dagskrárlok
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
DJ Dóra Júlía sagði
frá breska dans-
aranum og
skemmtikraftinum
Austyn Farrell í ljósa
punktinum en hann
hefur aldeilis létt
lundina hjá nágrönn-
um sínum í sumar.
„Á meðan fólk í
Bretlandi hélt sig
mestmegnis heima fyrir stóð Farrell úti á miðri götu í
nágrenni sínu þar sem hann sýndi hinar ýmsu dans-
rútínur klæddur í glæsileg föt og hælaskó. Tók hann
meðal annars „Proud Mary“ eftir Tinu Turner sem féll
vel í kramið hjá fólki í kring en hann kallar eftirhermu
sína „Quarantina Turner“, eða „sóttkvíar Tinu Tur-
ner“,“ sagði Dóra á K100.
Sjáðu sóttkvíar Tinu Turner á K100.is.
Sóttkvíar-Tina Turner
slær í gegn
Hver man ekki eftir vísitölu-fjölskyldunni geðþekku,Ozzy, Sharon, Kelly og
Jack, sem birtist heiminum í öllu
sínu veldi í hinum vinsælu sjónvarps-
þáttum The Osbournes á MTV-
sjónvarpsstöðinni frá 2002 til 2005?
Einn, tveir, þrír … Já, allir. Þið
megið setja hendurnar niður núna.
Færri vita þó líklega að einn fjöl-
skyldumeðlim vantaði; elstu dóttur
þeirra Ozzys mykrahöfðingja og
Sharonar, Aimée. Hún var átján ára
á þessum tíma, hafði metnað til að
verða söngkona og gat ekki hugsað
sér að taka þátt í sprellinu með for-
eldrum sínum og systkinum. Það
gekk raunar svo langt að hún flutti út
af heimilinu til að tryggja sér skjól
frá myndavélunum.
„Faðir minn var býsna þekktur
meðan ég var að vaxa úr grasi og ég
mat einkalíf mitt alltaf mikils innan
fjölskyldunnar,“ sagði Aimée í sam-
tali við bandarísku útvarpsstöðina
Q104.3 í New York á dögunum.
Hún gerði strax ráð fyrir því að
þættirnir myndu vekja mikla athygli
og gat ekki hugsað sér að verða
þekkt fyrir að vera unglingur á þessu
óvenjulega heimili sem myndi svo
loða við hana um aldur og ævi. „Það
rímaði ekki við þá sýn sem ég hafði á
framtíðina. Þetta kom augljóslega
vel út fyrir hina í fjölskyldunni en ég
hefði aldrei getað íhugað af neinni al-
vöru að taka þátt í þessu,“ sagði hún í
viðtalinu.
Aimée gat ekki hugsað sér að
rugla saman opinberu lífi og einkalíf-
inu; hún þurfti einfaldlega meira
næði en foreldrar hennar gátu boðið
henni upp á. Ákvörðun hennar um að
halda sig alfarið frá þáttunum reyndi
líka á fjölskylduna og Sharon hefur
margsagt að val Aimée hafi verið
þungbært.
„Elsta dóttir mín, Aimée, fór ung
að heiman; gat ekki búið í húsinu
vegna þess að sjónvarpsupptökurnar
gerðu hana brjálaða,“ sagði hún í
samtali við sjónvarpsþáttinn Talk
Talk. „Hún vildi ekki alast upp í
mynd. Hún þoldi ekki þá hugmynd,
hafði raunar ímugust á henni. Þannig
að hún fór og ég iðrast þess á hverj-
um einasta degi.“
Gagnrýndi þættina
opinberlega
Ekki bætti úr skák að Aimée lét sér
ekki nægja að vera til hlés heldur
gagnrýndi hún hegðun foreldra
sinna opinberlega meðan þættirnir
voru sýndir. Virtist hreinlega
skammast sín fyrir þá. Það flækti svo
málið enn frekar að Sharon veiktist
af krabbameini á þessum tíma og
Ozzy týndi hér um bil lífi í slysi. Þá
glímdu bæði Kelly og Jack við fíkni-
efnavanda.
Aimée þreifaði fyrir sér í tónlist og
árið 2015 stofnaði hún hljómsveitina
ARO (upphafsstafir hennar, Aimée
Rachel Osbourne). Sú ágæta sveit
liggur býsna langt frá málminum
sem faðir hennar er þekktur fyrir og
skilgreina mætti hana sem svuntu-
popp. ARO gaf út þrjár smáskífur á
árunum 2015 og 2016 en fyrsta stóra
platan hefur látið á sér standa. Fyrr
á þessu ári kom þó nýtt lag, Shared
Something With the Night, þannig
að biðin gæti verið að styttast. Hlé
hefur verið á tónleikahaldi um skeið
en Aimée hyggst ráða bót á því um
leið og aðstæður leyfa. „Það verður
draugalegt og ljóðrænt í senn með
neónljósum og geislum sem grípa
munu öll skynfærin.“
Aimée Osbourne
fæst við söng eins
og faðir hennar.
AFP
HVER ER AIMÉE OSBOURNE?
Huldudóttir
Myrkrahöfðingjans
Osbourne-fjölskyldan í banastuði að vanda; Sharon, Jack, Ozzy og Kelly.
AFP