Morgunblaðið - 22.09.2020, Síða 1
Nýliðun hefur verið góð í Mývatni
síðustu ár og eru fjórir „býsna góð-
ir“ árgangar á leiðinni, að sögn
Guðna Guðbergssonar, fiskifræð-
ings á Hafrannsóknastofnun. Hann
segir að rannsóknaleiðangur um síð-
ustu mánaðamót hafi lofað góðu og
gert sé ráð fyrir auknum veiðum á
silungi á næsta ári.
Veiðin gæti farið úr 2-2.500 sil-
ungum eins og algengt hefur verið
síðustu ár í 5-10 þúsund fiska á
næsta ári. Til samanburðar var
meðalveiði á árunum í kringum 1970
um 30 þúsund silungar árlega.
Guðni segir að veiðistjórnun og
verndunaraðgerðir á síðustu árum
hafi greinilega skilað sér, en farið
var í aðgerðir 2011 til að byggja
bleikjustofninn upp í kjölfar alvar-
legrar niðursveiflu. Þá hefur fæðu-
framboð verið stöðugt síðustu ár.
Hann leggur áherslu á að stofninn
verði nýttur af skynsemi og sjálf-
bærni verði höfð að leiðarljósi.
aij@mbl.is »6
Fjórir góðir árgangar eru á leiðinni
Bleikjan í Mývatni hefur tekið við
sér eftir verndaraðgerðir síðustu ára
Ljósmynd/Árni Einarsson
Mývatn Bleikjuhrygna á riðabletti á hrygningartímanum. Hún hefur
hreinsað mölina og lætur hrognin falla á milli steina þegar þar að kemur.
Stofnað 1913 222. tölublað 108. árgangur
Þ R I Ð J U D A G U R 2 2. S E P T E M B E R 2 0 2 0
TÓNLIST SEM
LYFTIR ANDA
MANNSINS
LÉTU SÉR HVERGI BREGÐA
BRONSLIÐIÐ
KEMUR Í HEIM-
SÓKN Í KVÖLD
FUGLALÍF VIÐ LANDFYLLINGU 11 ÍSLAND MÆTIR SVÍÞJÓÐ 27BEETHOVEN Í 250 ÁR 28
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það greinir kórónuveirukreppuna
frá kreppunum 1988-95 og 2008 að
kaupmáttur launa hefur haldist.
Hins vegar er hagkerfið ekki talið
standa undir því til lengdar, án þess
að til komi ný verðmætasköpun.
Kreppurnar voru bornar saman í
skýrslu kjaratölfræðinefndar.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur SI, tekur undir með nefndinni að
renna þurfi fjölbreyttari stoðum
undir gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins.
„Við höfum tiltölulega skamman
tíma og við þurfum að gera þetta
strax,“ segir Ingólfur.
Henný Hinz, fyrrv. deildarstjóri
hagdeildar ASÍ, segir að þótt kaup-
máttur reglulegra launa sé að aukast
horfi margir fram á minni tekjur.
„Kaupmáttur ráðstöfunartekna
hefur í mörgum tilfellum dregist
verulega saman á heimilum þar sem
dregið hefur úr atvinnu, eða fólk
misst vinnuna,“ segir hún. Miklu
skipti að halda verðbólgu niðri.
Yngvi Harðarson hagfræðingur
segir leiðandi hagvísi Analytica
benda til „að botninn í niðursveifl-
unni sé ekki alveg í augsýn“. Kaup-
máttur geti ekki til lengdar verið
ónæmur fyrir núverandi stöðu efna-
hagsmála. „Samkvæmt greiningu
okkar í ágúst virtist hagvísirinn vera
að þróast í takt við hagvísa erlendis.
Síðasta greining bendir hins vegar
til að það sé ekki alls kostar rétt. Ný
bylgja kórónuveirunnar og ferðatak-
markanir sem af henni leiða hafa
talsvert að segja.“ segir Yngvi.
Veiran dekkir horfurnar
Kaupmáttur eykst í kórónuveirukreppunni, þvert á kreppurnar 1988-95 og 2008
SI segja lítinn tíma til stefnu til að verja kaupmáttinn Veiran lækkar hagvísi
MHöfum lítinn tíma … »12
enda eru aðgreindir eftir svæðum. Einnig mæta nemendur á
ólíkum tímum til kennslu. Enn aðrir sitja fyrir framan tölvuna
heima við og sinna námi sínu með hjálp fjarkennslu.
Hér má sjá þá Jón Arnór Styrmisson og Sveinbjörn Skúla
Frá og með gærdeginum þurfa allir nemendur í menntaskóla
að bera grímur innan veggja skóla á höfuðborgarsvæðinu.
Viðverunni er ólíkt háttað eftir skólum. Sums staðar er notast
við aðgreiningu innan veggja skólans þannig að hópar nem-
Óðinsson bregða á leik í hæfilegri fjarlægð í kennslustund í
ljósmyndun í Borgarholtsskóla í Grafarvogi. Óvíst er hve
lengi tilmæli sóttvarnayfirvalda koma til með að gilda og mun
það fara eftir þróun smita á landinu. »4
Grímurnar setja svip sinn á skólastarf í menntaskólum
Morgunblaðið/Eggert
Grímuskylda í framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu
Gunnar Jóhann Gunnarsson, sem
ákærður er fyrir að hafa orðið hálf-
bróður sínum, Gísla Þór Þórarins-
syni, að bana í Mehamn í Noregi að-
faranótt 27. apríl í fyrra, kveðst hafa
orðið viti sínu fjær af sorg og bræði í
kjölfar þess að hafa orðið þess
áskynja að fyrrverandi eiginkona
hans og hálfbróðir hans væru orðin
svo náin sem raun bar vitni. Þetta
kom fram fyrir héraðsdómi í Vadsø
við upphaf aðalmeðferðar málsins í
gærmorgun. Gunnar segist ekki hafa
ætlað sér að ganga svo langt sem
raun bar vitni, fyrir honum hefði ein-
ungis vakað að skjóta Gísla Þór
skelk í bringu. Hann neitaði að hafa
myrt bróður sinn að yfirlögðu ráði en
játaði morð af gáleysi. Gunnar játaði
sök í öllum öðrum ákæruliðum. »2
Viti sínu
fjær af sorg
Héraðsdómur Réttað er yfir Gunn-
ari Jóhanni í Vadsø í Noregi.
Aðalmeðferð hafin
í Mehamn-málinu