Morgunblaðið - 22.09.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.09.2020, Blaðsíða 10
BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sterkar kröfur samfélags og yfir- valda um öfluga heilbrigðisþjón- ustu í heimabyggð ráða því að hallarekstur í starfsemi Heilbrigð- isstofnunar Vestfjarða á þessu ári er óumflýjanlegur. Veltan í ár er um 2,7 milljarðar króna og þar af eru framlög ríkisins 2,3 milljarðar. Sértekjur eru áætlaðar um 400 milljónir króna en umfang starf- seminnar og kostnaður sem því fylgir valda því að árið verður væntanlega gert upp í halla upp á annað hundrað milljónir króna. Þá eru ekki með í breytunni útgjöld vegna Covid-faraldursins sem verður bættur síðar og sérstak- lega. Þunginn í starfsemi Heilbrigðis- stofnunar Vestfjarða er á Ísafirði. Þar eru 15 rúm á sjúkradeild, fæð- ingarþjónusta, skurðstofa, heilsu- gæsla og þjónusta sérfræðilækna, sem koma reglulega að sunnan. Á sjúkrahúsinu á Patreksfirði eru tvö sjúkrarúm og öll almenn læknis- þjónusta veitt. Á Ísafirði, Patreks- firði, í Bolungarvík og á Þingeyri eru svo rekin hjúkrunarheimili fyr- ir tæplega 60 íbúa. Alls eru um 170 stöðugildi við stofnunina, og um 70% þeirra eru á Ísafirði. 100 veiktust á Vestfjörðum „Kórónuveiran hefur verið mikil áskorun,“ segir Gylfi Ólafsson, for- stjóri stofnunarinnar. „Við þurft- um að bregðast hratt við þegar kórónuveirufaraldurinn fór að láta á sér kræla. Í febrúar og mars hófum við að undirbúa það sem verða vildi og svo kom aldan um mánaðamótin mars-apríl.“ Alls veiktust rúmlega 100 manns á norðanverðum Vestfjörðum af Covid-19. Átta lögðust inn fyrir vestan eða voru sendir til Reykja- víkur eða Akureyrar til sérhæfðari meðferðar. Samfélagslega var þungi faraldursins þó hvergi meiri en í Bolungarvík, þar sem um 6% af 930 bæjarbúum voru veik, á sama tíma og um fjórðungur íbúa var í sóttkví á tímabili. „Sjálfsagt réð tilviljun því að veiran stakk sér svona bratt niður í Bolungarvík. Veruleikinn er samt sá að þegar fólk með veiruna er einkennalaust og fer víða um smit- ast veiran hratt. Þetta er afar lúmskt,“ segir Gylfi. Bætir við að þegar veiran var í algleymingi hafi fólk á öllum póstum íslenska heil- brigðiskerfisins starfað þétt sam- an. Línur voru lagðar á reglu- legum samráðsfundum forstjóra heilbrigðisstofnana landsins með landlækni og fleirum – sem haldnir voru oft í viku á tímabili. Upplýsingar og engin leyndarmál „Heilbrigðiskerfið stóðst mikla þolraun í faraldrinum sem vissu- lega er enn ekki lokið. Reynslan frá þessum dögum í fyrravetur segir okkur sem störfum úti á landi hve mikilvægt er að á heil- brigðisstofnunum sé vel þjálfað starfsfólk, góður tækjabúnaður og geta til að sinna helstu verk- efnum,“ segir Gylfi og heldur áfram: „Stóra lærdóminn af þessu öllu í fordæmalaustu ástandi tel ég ann- ars vera þann hve góð og fumlaus upplýsingamiðlun er mikilvæg. Daglegir fundir þríeykisins í sjón- varpinu, þar sem allt er uppi á borðum, hafa verið afar mikilvægir og bókstaflega haldið þjóðinni saman. Á hverri heilbrigðisstofnun landsins hefur starfsfólki, almenn- ingi og fjölmiðlum verið sagt frá því hver staðan er. Engin leyndar- mál. Samstaðan á þessum tímum hefur líka verið einstök; ég var í reglulegum samskiptum til dæmis við heilbrigðisráðherra, landlækni, bæjarstjóra, lögreglustjóra og ann- að forystufólk meðan mest gekk á. Þá voru falleg orð í bréfi frá for- seta Íslands okkur hér á stofn- uninni mikil hvatning. Við héldum einnig borgarafundi í beinni út- sendingu á Facebook sem lukk- uðust mjög vel við að koma réttum upplýsingum á framfæri og svara spurningum sem auðvitað voru ótalmargar.“ Hallarekstur er óumflýjanlegur  Áskoranir í starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða  Á annað hundrað milljónir í mínus á árinu  Heilbrigðiskerfið stóðst þolraun  Veiran er lúmsk  Umhverfi hefur áhrif á heilbrigði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísafjörður Sjúkrahús og hjúkrunarheimili eru á sama stað, en starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða er fjölþætt og þjónustan víðtæk. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Forstjórinn Á heilbrigðisstofnunum úti á landi er vel þjálfað starfsfólk, góð- ur tækjabúnaður og geta til að sinna verkefnum, segir Gylfi Ólafsson. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020 Gylfi Ólafsson segir skýra kröfu úr samfélaginu á Vestfjörðum að á Ísafirði sé til dæmis skurðþjónusta og fæðingarstofa og að á öðrum stöðum sé boðleg heilbrigðisþjón- usta. Þetta kunni að vera dýrt hlutfallslega miðað við hvað gerist á stærri heilbrigðisstofnunum, en þar komi á móti að sitt kosti að reka samfélag. Núverandi fyrir- komulag sé klárlega þjóðhagslega hagkvæmt. Heilbrigðisstofnanir og þjónusta þeirra ráði hins vegar ekki um heilsu og líðan fólks, enda þótt mikilvægar séu. „Alþjóðlegar rannsóknir sýna að heilbrigðiskerfið er í 6. sæti þegar kemur að áhrifaþáttum heil- brigðis. Tekjur, félagsleg staða, menntun, umhverfi og erfðir ráða miklu um hvernig fólki almennt heilsast. Allt eru þetta þættir sem klárlega eru í góðu lagi hér á Vest- fjörðum – enda skorum við hér vestra hátt í lýðheilsuvísum sem Embætti landlæknis tekur sam- an,“ segir Gylfi og að síðustu: „Sjálfur hef ég til dæmis hvatt fólk til þess að nota reiðhjól til að komast leiðar sinnar í daglegum ferðum, enda aðstæður til þess frábærar til dæmis hér á Ísafirði þar sem byggðin er að mestum hluta á rennisléttri eyri. Og svona eigum við almennt að nýta það sem býðst í nærumhverfi okkar til að efla heilsuna, þótt slíkt sigri auðvitað ekki kórónuveiruna eða kreppuna sem af henni hefur leitt.“ Nýta nærumhverfið til heilsueflingar og útivistar VESTFIRÐIR SKORA HÁTT Í LÝÐHEILSUVÍSUM LANDLÆKNIS Bryndís Pétursdóttir leikkona lést sl. mánu- dag, 21. september, tæplega 92 ára að aldri. Bryndís fæddist 22. september 1928 á Vatt- arnesi í Fáskrúðsfirði en flutti með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur er hún var sex ára. For- eldrar hennar voru Pétur Sigurðsson, bóndi og vitavörður, og Guðlaug Sigmunds- dóttir framkvæmda- stjóri. Bryndís gekk í Verzl- unarskóla Íslands en fór 16 ára í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og útskrifaðist þaðan. Hún steig fyrst á svið undir leikstjórn Lárusar sem Cecilía í Jónsmessudraumi á fá- tækraheimilinu 18. nóvember 1946. Hún sté fyrst leikara á svið í vígslu- sýningu Þjóðleikhússins sem Guðrún í Nýársnóttinni. Í Þjóðleikhúsinu lék Bryndís uns hún lét af störfum fyrir aldurs sakir ef frá eru talin nokkur leikrit hjá Leikfélagi Reykjavíkur auk þess að taka þátt í leikriti hjá Leikfélagi Akureyrar. Á yngri árum fór Bryn- dís á sumrum í margar leikferðir um landið. Meðal minnisstæðra hlutverka Bryndísar við Þjóðleikhúsið eru Rósalind í Sem yður þóknast, Helga í Gullna hliðinu (’52 og ’55), Sybil í Einkalífi, Sigríður í Pilti og stúlku, Leónóra í Æði- kollinum, Ismena í Antígónu Anouhils, Essí í Er á meðan er, Sigrún í Manni og konu, Doris í Brosinu dularfulla, María mey í Gullna hliðinu, Júlía í Romanoff og Júlíu, Helena Charles í Horfðu reiður um öxl, Louise í Eftir syndafallið, Vala í Lausnargjaldi, Enuice í Sporvagn- inum Girnd og Munda í Stalín er ekki hér. Síðast lék hún Helgu í Kaffi eftir Bjarna Jónsson á Litla sviði Þjóðleikhússins árið 1998. Bryndís lék einnig í kvikmynd- um, sjónvarpi og útvarpi. Hún fór m.a. með aðalhlutverk í fyrstu ís- lensku talsettu kvikmyndunum Milli fjalls og fjöru og Niðursetning- unum. Eiginmaður Bryndísar var Örn Eiríksson loftsiglingafræðingur, hann lést 1996. Synir þeirra eru Ei- ríkur Örn, Pétur og Sigurður. Andlát Bryndís Pétursdóttir leikkona

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.