Morgunblaðið - 22.09.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 2020
Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur ritar pistil um völd og áhrif
lífeyrissjóðanna á mbl.is. Hann
bendir á að stærð sjóðanna sé gríð-
arleg og að þeir séu í lykilhlutverki
á íslenskum hluta-
bréfamarkaði með
um helming alls
hlutafjár í Kauphöll-
inni og að auki yfir-
gnæfandi á skulda-
bréfamarkaði. „Þó
að fjárfestingar
þeirra eigi fyrst og
fremst að taka mið
af ávöxtun til að tryggja sjóðs-
félögum sínum lífeyri í ellinni virð-
ast margir freistast til að líta á þá
sem valdatæki til að ná fram póli-
tískum markmiðum sínum,“ segir
Sigurður.
Hann heldur áfram: „Það erhægt að taka undir með þeim
sem gagnrýna Fjármálaeftirlitið
fyrir að hafa ekki brugðist við og
tekið á þessum skuggastjórnendum
sem birtust með heldur augljósum
hætti í aðdraganda útboðs Ice-
landair. Nema eftirlitið kjósi að taka
þetta ekki alvarlega í ljósi þess að
viðkomandi séu hvort sem er lítt
marktækir! Það hlýtur að kalla á
sérstaka rannsókn að stjórn Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna skyldi ekki
taka þátt í útboðinu, sérstaklega
þegar horft er til fjölda sjóðsfélaga
hjá félaginu og mikilvægi þess fyrir
atvinnulíf í landinu. Það eitt kallar
ekki á þátttöku en hjásetan þarf að
byggja á málefnalegum for-
sendum.“
Afskipti forystumanna í verka-lýðshreyfingunni af lífeyris-
sjóðunum er alvarlegt vandamál
sem nauðsynlegt er að tekið sé til
skoðunar. Um leið gefur það ástæðu
til að endurmeta hve hátt hlutfall
sparnaðar fer í hefðbundinn skyldu-
lífeyrissparnað, eins og Sigurður
bendir á. Eðlilegt er að skoða hvort
ekki sé ástæða til að stærri sneið
fari í séreignarsparnaðinn.
Sigurður Már
Jónsson
Misnotkun kallar
á endurskoðun
STAKSTEINAR
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Til stendur að rífa hús í Hafn-
arbyggð 16 á Vopnafirði sem hann-
að var af Sigvalda Thordarson arki-
tekt. Samþykkt var
deiliskipulagsbreyting þess efnis á
sveitarstjórnarfundi nýverið.
Fulltrúar minnihluta úr Samfylk-
ingu settu sig upp á móti breyting-
unni í bókun og vilja að húsinu sé
fengið nýtt hlutverk í ljósi þess að
um menningarverðmæti sé að ræða
þar sem byggingin sé „menning-
arvarða um horfinn listamann“.
Fimm manna meirihluti Fram-
sóknarflokks og Ð-lista Betra Sig-
túns samþykkti breytingarnar.
Húsið stendur á svæði þar sem
Brim hefur starfsemi og er talið
hafa áhrif á aðkomu starfsmanna að
vinnustaðnum.
Fram kemur að óskað var eftir
umsögnum um skipulagsbreyt-
inguna. Segir m.a. í umsögn að
Minjastofnun telji að húsið geti orð-
ið lyftistöng fyrir bæjarfélagið ef
því verði fengið nýtt hlutverk og að
það sé hluti af atvinnusögu bæj-
arins og hannað af listamanni í
heimabyggð. Fram kom á fundi
skipulags- og umhverfisnefndar um
málið að húsið væri í slæmu ástandi
og að eigandi hússins hefði ekki not
fyrir það. Niðurstaða nefndarinnar
var því að heimila niðurrif.
Hyggjast rífa hús hannað af Sigvalda
Húsið í slæmu ástandi Minnihluti
vill finna húsinu nýtt hlutverk í bænum
Hafnarbyggð 16 Til stendur að rífa
hús sem hannað var af Sigvalda.
Stefnt er að opnun nýs veitinga-
staðar í nýbyggingunni við Klapp-
arstíg þar sem Skelfiskmarkaðurinn
var áður til húsa. Staðurinn sem um
ræðir ber heitið Vængjavagninn.
Hefur staðurinn notið umtalsverðra
vinsælda undanfarin misseri en
Vængjavagninn hefur, eins og nafnið
gefur til kynna, fram til þessa verið
veitingastaður á hjólum. Í október
má hins vegar gera ráð fyrir að
breyting verði þar á. Framkvæmdir
eru vel á veg komnar og ekki eru
nema örfáar vikur þar til staðurinn
verður opnaður.
Vængjavagninn verður ekki eini
staðurinn í húsinu, en auk hans verða
fjölmargir aðrir söluaðilar á svæðinu.
Hugmyndin með opnun veitingastað-
anna er að búið verði til húsnæði sem
hýsir fínni útgáfu af götubitastemn-
ingu án þess þó að taka sjarma götu-
bitans. Þá verður sömuleiðis starf-
ræktur „pop up“-bar en fjöldi
viðburða verður í gangi samhliða. Til
að byrja með verður opið frá fimmtu-
degi til sunnudags. Með þessu eru
vonir bundnar við að hægt verði að
gæða svæðið lífi að nýju.
aronthordur@mbl.is
Ljósmynd/Vængjavagninn
Aðstaða Framkvæmdir eru vel á veg komnar, en eins og sjá má á myndinni
er aðstaðan nær fullbúin. Skammt er þar til staðurinn verður opnaður.
Opna á Klapparstíg
Vængjavagninn opnaður þar sem
Skelfiskmarkaðurinn var áður til húsa
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/