Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. OKTÓBER 2020
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
NJÓTUM ÞESS AÐ VERA HEIMA
BARÁHÖLD FYRIR
FALLEGA DRYKKI
Skoðaðu úrvalið á fastus.is/barvörur
Hannesson, fv. stöðvarstjóri í
Reykjavík, f. 26.2. 1922, d. 19.9. 2013,
og Sigríður Sigfúsdóttir húsmóðir, f.
9.11. 1921, d. 24.2. 1998. Áður var
Lára gift Gísla Kristjáni Birgissyni
rafvirkjameistara, f. 27.5. 1961, og
Ólafi Þór Jóelssyni framkvæmda-
stjóra, f. 1.11. 1972.
Börn Láru eru: 1) Erla Gísladóttir
hönnuður, f. 19.1. 1984, gift Ólafi
Frey Frímannssyni lögfræðingi. 2)
Arnór Gíslason rafvirki, f. 4.8. 1986. 3)
Kristján Helgi Gíslason versl-
unarstjóri, f. 8.8. 1996, giftur Celinu
Kilgren Ridderstråle. 4) Friðrik Þór
Ólafsson nemi, f. 6.8. 2001, giftur
Huldu Bryndísi Jónsdóttur nema. 5)
Ástrós Elísdóttir leikhúsfræðingur, f.
4.9. 1982, gift Valtý Sigurðssyni líf-
fræðingi. 6) Jón Elísson tónlistar-
maður, f. 2.8. 1984. 7) Svana Kristín
Elísdóttir nemi, f. 18.1. 1989.
Systkini Láru eru Óli Þorleifur,
húsasmíðameistari í Hveragerði, f.
28.3. 1952; Björg, tómstundafræð-
ingur í Kópavogi, f. 13.1. 1956, og
Helgi Rúnar, forstjóri í Garðabæ, f.
31.7. 1967.
Foreldrar Láru eru Arnfríður Ís-
aksdóttir hárgreiðslumeistari, f. 7.7.
1930, d. 21.5. 2003, og Óskar Ólason
málarameistari, f. 13.4. 1923, d. 27.8.
2010. Þau bjuggu lengst af í Reykja-
vík og á Seltjarnarnesi.
Lára
Óskarsdóttir
Arnfríður Finnbogadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Runólfur Pétursson
lögreglumaður og
innheimtumaður
tollstjóra í Reykjavík
Helga Sigríður Runólfsdóttir,
húsfreyja á Bjargi, Seltjarnarnesi, fædd í Kanada
Ísak Kjartan Vilhjálmsson,
bóndi á Bjargi, Seltjarnarnesi
Arnfríður Ísaksdóttir
hárgreiðslumeistari, frá Bjargi á
Seltjarnarnesi, bús. í Reykjavík
Björg Ísaksdóttir
húsfreyja á Seltjarnarnesi
Vilhjálmur Guðmundsson
sjómaður á Seltjarnarnesi
Vilhjálmur frá
Skáholti skáld
Guðmundur Guðmundsson b.
Traðarholti í Stokkseyrarhr.
Hörður Ólason
iðnverkamaður í Rvk.
Björg Ísaksdóttir
myndlistamaður
Helga Vala Ísaksdóttir
hárgreiðslum.
Sigrún Ísaksdóttir
látin
Haukur Dór
listmálari
Þorbjörg Þorláksdóttir
bústýra, Vopnafirði
Guðjón Jónsson
vinnumaður, Vopnafirði
Jóhanna Lára Guðjónsdóttir
húsfreyja á Eyri, Reyðarfirði
Óli Þorleifsson
útgerðamaður á Eyri, Reyðarfirði
Helga Finnbogadóttir
húsfreyja á Reyðarfirði
Þorleifur Jónsson
útvegsbóndi á Eyri, Reyðarfirði
Úr frændgarði Láru Óskarsdóttur
Óskar Ólason,
málaram. frá Eskifirði, bús. í Reykjavík
„ALÞJÓÐLEGA FJARSKIPTA-
NOTENDAÞJÓNUSTAN - HAUKUR TALAR.
HVERNIG GET ÉG AÐSTOÐAÐ?”
„ENN OG AFTUR: NEI, ÉG VIL EKKI RÉTT
DAGSINS.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna hans þegar
hann er ekki heima.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HVAÐ SAGÐI 20 KÍLÓA
ÞUNGA MÚSIN VIÐ KÖTTINN?
„HEI KISI, KISI, KISI” MÚSAHÚMOR
NEI, ELDHÚSIÐ VAR SVONA
BREITT!
FASTEIGNASALINN SÝNDI MÉR
ÖMURLEGT HÚS Í DAG!
ERT ÞETTA
HVERSU
MIKIÐ ÞÚ
HATAÐIR
ÞAÐ?
HVERSU
SLÆMT
VAR
ÞAÐ?
SVONA
SLÆMT!!
Guðni Ágústsson segir svo sög-una um fjárkaupin. „Bragi
Ágústsson frá Brúnastöðum fór
norður að Gunnarsstöðum í Þist-
ilfirði að kaupa sér nokkur lömb.
Jóhannes Sigfússon mælti mjög
með tveimur kollóttum forystu-
gimbrum, morblesóttri og svart-
blesóttri. Bragi lét tilleiðast, tók
þær báðar og nefndi aðra Dúkku og
hina Dimmu. Jóhannes þakkaði
honum viðskiptin með vísu:
Besti maður Bragi telst
og Brúnastöðum hollur.
Valdi fé og vildi helst
Vinstri grænar kollur.“
Það er gamla sagan, – Hall-
mundur Kristinsson segir á feisbók:
Man ég það vel úr minni sveit:
Misvel var tuggan þegin,
og alltaf var talin betri beit
á bakkanum hinum megin.
Á Boðnarmiði yrkir Magnús Hall-
dórsson og segir byggt á veð-
urfregnum:
Víða þurrt á veðursetrum,
veit að mörgum líkar það.
Úrkoman í millimetrum,
mældist núll á einum stað.
Útivist mun ekkert skerða,
þótt yfir gangi lægðardrag.
Hlýindi mjög hófleg verða,
hægviðri á laugardag.
Helgi Ingólfsson yrkir:
Lífið! Hve veiran allt vefur það,
hún vöðlast og þvælist og tefur það.
Menn hvína af hita.
Fæ ég hvergi að vita
hvernig hún Melania hefur það?
Og enn yrkir hann og kallar
„Kúlulán hið nýrra“:
Hún getur ei spilað á Spáni,
en sportið sitt iðkar sem kjáni
í trássi svo mjög
við tilmæli og lög
og tekur við golfkúluláni.
Dagbjartur Dagbjartsson segist
hafa rekist á þessa vísu en sé hreint
ekki viss hvort hann hafi lamið
þetta saman eða skrifað niður eftir
öðrum:
Vísugreyin frá oss farnar
flestar vaða á keiponum
en heppilegra að hendingarnar
hangi í stuðlareiponum.
Gylfi Þorkelsson varpar fram
limru:
Ei skal við Þórólfi amast
þó allt sé nú þjóðlíf að lamast,
(né Ölmu og Víði
sem eru alveg til prýði)
heldur þeim sem er taumleysið tamast.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af fjárkaupum
og kúluláni hinu nýja