Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 1

Morgunblaðið - 19.10.2020, Side 1
M Á N U D A G U R 1 9. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  246. tölublað  108. árgangur  MINNIR Á GAMLA ÞÝSKALAND FÉKK HOLLRÁÐ Á BARNUM HÖFUNDUR SEM KEMUR SÍFELLT Á ÓVART EINVÍGI ALLRA TÍMA 28 BÓKADÓMUR 29FARSÓTTARFERÐALAG 6 Notalegt haustveður hefur verið á landinu síðustu daga og margir því notað tækifærið til útivistar. Margir voru á gangi á Norðurbakkanum í Hafnarfirði, meðfram sjónum þar, þegar í gegn þótt stundum blási á móti. Þannig virðast nú vera vís- bendingar um að kórónuveirufaraldurinn á landinu sé í rénun þótt veiran sé enn víða á sveimi. þessi mynd var tekin. Yfir bænum var blýgrár skýjabakki en í gegnum rofið helltust sólstafirnir og sendu geisla sína á mannfólkið. Sú sýn staðfestir að alltaf er von og geislarnir ná Morgunblaðið/Árni Sæberg Á göngu undir blýgráum skýjum á Norðurbakkanum 2.214 eru í sóttkví á höfuðborgar- svæðinu, sem er um 1% heildar- fjölda íbúa á svæðinu. Hlutfall þeirra sem eru í sóttkví er hvergi nærri eins hátt annars staðar á landinu, þó að íbúa sé að finna í öllum landshlutum í sömu stöðu. Að- eins fjórir eru í sóttkví á Austurlandi og aðeins eitt smit hefur greinst hjá einstaklingi með lögheimili þar, en hann var ekki búsettur þar. Um 79% þeirra sem greindust með Covid-19 á föstudag og laug- ardag voru í sóttkví. 26 liggja á sjúkrahúsi og fjórir eru í gjörgæslu- meðferð. Þær hertu aðgerðir sem tóku gildi á Íslandi fyrir tveimur vikum eru endurnýjaðar með reglugerð heil- brigðisráðherra frá og með morgun- deginum og gilda að mestu leyti áfram óbreyttar fram til að minnsta kosti 3. nóvember. Þá verður staðan endurmetin. »4 Eitt prósent borgarbúa í sóttkví  Óbreyttar aðgerð- ir til 3. nóvember Svandís Svavarsdóttir Fríverslunarviðræður Íslands, Noregs og Liechtensteins við Breta munu halda áfram, jafnvel þótt ekki náist sam- komulag á milli Bretlands og Evrópusambandsins fyrir næstu áramót. Óviss staða er nú uppi í fríverslunar- viðræðum Breta við Evrópusambandið, en fyrir helgi bárust þau skilaboð frá breskum stjórnvöldum að til- gangslaust væri að halda þeim áfram nema Evrópusam- bandið gæfi eftir sumar af helstu kröfum sínum. Breski ráðherrann Michael Gove lét hins vegar í veðri vaka í gær að dyrunum hefði ekki verið lokað heldur hurðin ein- ungis „felld að stöfum“ og munu aðalsamningamenn Breta og ESB ráðfæra sig í dag um framhald málsins í óformlegum viðræðum. Vonar að reynt verði til þrautar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að Íslendingar hafi frá upphafi verið meðvitaðir um að þessi staða gæti komið upp og hagað undirbúningi sínum í samræmi við það. „Engu að síður vona ég að Bretland og Evrópusambandið reyni til þrautar að ná samningi, það er ekki aðeins í þágu þeirra sjálfra heldur milliríkjaviðskipta almennt.“ Guðlaugur áréttar að viðræður Íslendinga muni halda áfram jafnvel þótt viðræður Breta og ESB skili ekki árangri. „Við erum í sjálfstæðum viðræðum og höfum alla möguleika og fullt frelsi til að gera fríverslunarsamn- ing við Bretland á okkar forsendum.“ Bretar eru næststærsta viðskiptaþjóð Íslendinga á eft- ir Bandaríkjamönnum og meira en helmingur allra út- flutningstekna af viðskiptum við Bretland skapast við sölu á ferskum fiskafurðum. Guðlaugur segir því brýnt að tryggt sé að ferskur fiskur komist áfram hindrunar- laust til Bretlands. Ýmsar breytingar munu fylgja því þegar undanþága Breta vegna útgöngunnar rennur út um áramótin. Evr- ópska sjúkratryggingakortið mun til dæmis ekki gilda lengur í Bretlandi og þurfa ferðamenn þangað því að huga að ferðatryggingum sínum. Þá munu Íslendingar sem vilja flytja til Bretlands ekki njóta neinna sérrétt- inda líkt og ef um ríki innan EES væri að ræða. »2 Brýnt að tryggja aðgang að Bretlandi  Útlit fyrir að Bretar og ESB nái ekki saman um útgöngu AFP Brexit Útlit er fyrir að Bretar og ESB nái ekki saman um fríverslunarsamning fyrir næstkomandi áramót. Gert er ráð fyrir því að ríkissjóður greiði 750-900 milljónir króna í leigu og rekstur á bráðabirgðahúsnæði fyrir Menntaskólann í Reykjavík á 4-5 ára tímabili, á meðan hluta starf- seminnar þarf að flytja af skóla- svæðinu vegna framkvæmda þar. Húsnæðið þarf að vera rúmgott, um 4.000 fermetrar, enda verður veru- legur hluti af núverandi skóla- húsnæði undirlagður framkvæmd- unum á tímabilinu. Þær ættu að hefjast bráðlega. Til stendur að rífa þann hluta Casa Christi sem ekki er friðaður og þar með ryðja veginn fyrir nýja 2.200 fermetra byggingu þar sem aðstaða verður fyrir mötuneyti og skrifstofur sem nú eru til húsa í Gamla skóla. »9 Nám fjarri skólasvæðinu  MR tekur húsnæði á leigu í 4-5 ár Morgunblaðið/Styrmir Kári MR Framkvæmdir eru fram undan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.