Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.10.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Skrifstofustjóri Skrifstofustjóri er yfirmaður skrifstofu Langanesbyggðar og heyrir beint undir sveitar- stjóra og er staðgengill hans. Hann hefur faglega forystu og verkstjórn á daglegum verkefnum skrifstofunnar. Hann hefur umsjón með stjórnsýslu, fjármálum og starfs- mannahaldi sveitarfélagsins og stofnana þess í umboði sveitarstjóra. Helstu verkefni eru: • Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum skrifstofunnar. • Umsjón með stjórnsýslu sveitarfélagsins í umboði sveitarstjóra. • Undirbúningur og frágangur funda sveitarstjórnar, nefnda og ráða. • Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem gilda hverju sinni og heyra undir sveitarfélagið. • Tekur þátt í faglegri framkvæmd verkefna á grunni sérfræðiþekkingar sinnar. • Umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins og birtingu fundargerða. • Yfirumsjón og ábyrgð með leyfisveitingum, uppfærslum á samþykktum, reglum og gjaldskrám. Menntun: • Á sviði viðskipta, stjórnsýslu eða lögfræði. Reynsla: • Úr stjórnsýslu og rekstri. • Af stefnumótun og verkefnastjórnun æskileg. • Á skjalastjórnunar- og bókhaldskerfum æskileg. • Á sviði kjaramála, stjórnunar, og samningagerðar æskileg. Hæfni: • Í samskiptum. • Frumkvæði og lausnamiðuð vinnubrögð. • Greiningarhæfni ásamt hæfni í úrvinnslu og framsetningu talnalegra upplýsinga. • Gott vald á íslensku og enskukunnátta. Nánari upplýsingar veitir: Jónas Egilsson, sveitarstjóri - jonas@langanesbyggd.is Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2020 en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Langanesbyggð leitar eftir skrifstofustjóra Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag með spennandi framtíðarmöguleika. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn var endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli var tekinn í notkun haustið 2019. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug og stendur Ungmennafélag Langaness fyrir öflugu íþróttastarfi. Í þorpinu er mikið og fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margskonar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu, getu og reynslu starfsmanna. Hver einstök ráðning er mikilvæg fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis og viðkomandi einstaklings að vel takist til. Fagnað er í ályktun Fjórð- ungsþings Vestfirðinga, sem haldið var í sl. viku, að fram- kvæmdir séu að hefjast við endurnýjun og uppbyggingu Vestfjarðavegar í Gufudals- sveit og á Dynjandisheiði. Ítrekuð er jafnframt krafa um að tenging Bíldudalsvegar við Vestfjarðaveg verði tekin þessu samhliða og verkefnin unnin innan samgönguáætl- unar sem gildir til 2024. Strandavegir verði endurnýjaðir Minnt er í ályktun á að end- urnýja þurfi vegi í nágrenni Hólmavíkur á Ströndum. Staða Strandabyggðar sé al- varleg og hafi sveitarfélagið nýverið verið tekið inn í verk- efnið Brothættar byggðir. Undir þeim hatti sé leitað allra leiða til að bæta búsetu- skilyrði á svæðinu. Úrbætur í innviðum eru þar lykilþáttur. Þá er þess krafist að end- urnýjun vegar um Veiðileysu- háls á Ströndum verði hluti af fjárfestingarátaki rík- isstjórnar til að mæta efna- hagssamdrætti vegna heims- faraldurs kórónuveiru. Árneshreppur muni ljúka fjögurra ára þátttöku í verk- efninu Brothættum byggðum á árinu 2021. Verkefnið hafi eflt ferðaþjónustu, samfélagið og menningu á svæðinu en lít- ið hafi þokast með uppbygg- ingu innviða. Úr því verði að bæta. Lífæð byggða Í ályktun Fjórðungsþings Vestfirðinga er lýst áhyggj- um af áhrifum kórónuveir- unnar á innanlandsflug til lengri tíma litið. Gerð sé krafa á stjórnvöld að horfa til inn- anlandsflugs sem lykilþáttar fyrir þróun samfélaga og at- vinnulífs og ekki verði dregið úr framlögum vegna stöðu dagsins í dag. Ítrekuð er krafa um meiri framlög til innanlandsflugs og að meiri peningar verði veittir til við- halds og endurbóta á flugvöll- unum á Gjögri, Bíldudal og Ísafirði og til flugleiðsagnar. „Þá minnir Fjórðungsþing á mikilvægi Reykjavík- urflugvallar fyrir samgöngur á milli landsbyggðar og höf- uðborgar. Áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Ísafjarð- ar, Bíldudals og Gjögurs eru mikilvægustu almennings- samgöngur Vestfirðinga og lífæð byggðanna stóran hluta ársins. Því er fagnað verkefn- inu Loftbrúnni sem tók gildi á þessu ári,“ segir í ályktun. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísafjörður Höfuðstaður Vestfjarða, miðstöð þjónustu í héraði. Vilja vegabætur og styrkja flugið  Ályktað um samgöngumálin Morgunblaðið/Sigurður Bogi Loftbrú Ernir fljúga til Bíludals þar sem þessi mynd er tekin. Óbreytt þjónusta verður á næstunni í þjóðgarðinum á Þingvöllum og taka land- verðir á móti gestum í allan vetur, hér eftir sem hingað til. Þetta gerist þrátt fyrir að upphafi vikunnar þurfti að að segja upp starfsfólki hjá þjóð- garðinum vegna fækkunar ferðamanna sem fylgt hefur kórónuveirufaraldrinum. Landvarsla verður allt árið í þjóðgarðinum. Á næstunni mun hún þó taka mið af breyttu heimsóknamynstri. Einnig með megináherslu á háannartímabil frá maí til september og þar sem hlut- verk landvarða er að veita fræðslu um sögu og náttúru Þingvalla. Sýningin Hjarta landsins í gestastofu á Hak- inu verður opin og önnur þjónusta við gesti eftir því sem sóttvarnir og veður leyfa. „Landsmenn eru hvattir til að heimsækja þjóðgarðinn og njóta þess sem haust- og vetr- araðstæður bjóða upp á,“ seg- ir í tilkynningu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvellir Svipsterkur arkitektúr ráðherrabústaðarins. Óbreytt á Þingvöllum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.