Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.01.1990, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 10.01.1990, Blaðsíða 2
2 BÆJARINS BESTA NYJAR MYNDIR VIKULEGA SPYDER Leynilögreglumaðurinn Brad Spyder er í hefndar- hug. Félagi hans, Lee, var myrtur á Hawaii og bendlaður við harðskeyttan eiturlyfjahring. Spyder ætlar að finna morðingja hans og hreinsa mannorð hins látna félaga síns. Hann fer til Hawaii og fyrr en varir er hann staddur í heimi eiturlyfjasmyglara, ofbeldis og morða og líf hans er f veði... JR-VIDEO VIÐ NORÐURVEG S 4299 TARZAN IN MANHATTAN Tarzan (Joe Lara) er kominn til frumskógar nútímans... New York borgar. Ahyggjulausri til veru Tarzans er ógnað þegar bandarískir veiðimenn drepa apamóður hans og ræna félaga hans, apanum Cheetah, og fara með hann til Ameríku. f hefndarhug ferTarzan til New York. Þar nýtur hann hjálpar Jane (Kim Crosby) og hins furðulega föður hennar Archie (Tony Curtis). En leitin að Cheetah reynist fullt eins hættuleg og verstu ógnir frumskógarins. Hólmavík: Haldið upp á hundrað ára verslunarafmæli HÓLMAVÍK hefur nú bæst við þá staði þar sem Bæjarins besta er dreift á Vestfjörðum og vonum við að íbúar þar verði duglegir við að láta okkur vita af fréttnæmum viöburðum. Tímasetning á komu blaðs- ins til Hólmavíkur fer til að byrja með eftir ferðum flutn- ingabílanna, en eftir því sem BB kemst næst, eru Stranda- menn ýmsu vanir þegar að samgöngumálum kemur og kippa sér ekki upp við það þó pósturinn sé vikugamall þeg- ar hann berst. Fyrsta fréttin okkar frá Hólmavík er að sjálfsögðu af hundrað ára verslunarafmæli staðarins sem haldið var upp á með afmælisveislu sem sveitarfélagið bauð til þann 3. janúar í grunnskólanum. Um 300 manns mættu í kaff- ið og verður það að teljast nokkuð gott, því íbúar eru um 460 talsins og hefur þeim reyndar fjölgað um 13 síðan 1. desember 1988 og er það eini þéttbýlisstaðurinn á Vestfjörðum sem hefur bætt við sig íbúum á árinu. Bók um Hólmavík urinn Óli E. Björnsson, sem búscttur er á Akranesi, hef- ur í fjölda ára safnað gögn- um og myndum um hús á Hólamvík, sögu þeirra og íbúa og stefnt er að því að bókin komi út í sumar. Þá var samþykkt að minnast bæði verslunarafmælisins og 60 ára afmælis Skógræktarfé- lags íslands með því að taka þátt í átaki félagsins í land- græðslu árið 1990 og gróður- setja 8-10.000 trjáplöntur í Kálfanesborgum fyrir ofan staðinn í vor. Þá söng kór Hólmavíkur- kirkju og Leikfélag Hólma- víkur sá um skcmmtiatriði. í lokin sá síðan Björgunar- sveitin Dagrenning um flug- eldasýningu sem tókst afar vel enda veður stillt og gott. Þess má síðan geta að helgina 27.-29. júní á að halda aðalafmælishátíðina og fer hún að miklu leyti fram úti. Undirbúningur er þegar hafinn og verður margt um að vera, m.a. mun forseti íslands koma í opin- bera heimsókn. Löggiltur verslunarstaður árið 1890 1888. Tvær fjölskyldur bjuggu þar, sú seinni fjöl- skylda Stefáns frá Hvítadal. Árið 1895 var fyrsta verslun- arhúsið, Langi skúr, byggt af Birni Sigurðssyni kaupmanni og síðar bankastjóra. Árið 1896 tók kaupmaðurinn R.P. Riis við versluninni og 1897 byggði hann Riis-hús sem enn stendur og er elsta húsið á Hólmavík. Ári síðar var Verslunarfélag Stein- grímsfjarðar stofnað og það varð síðar að Kaupfélagi Steingrímsfjarðar. Kaup- félagið rekur þá verslun sem í dag fer fram á Hólmavík í nýju og glæsilegu húsi sem tekið var í notkun í fyrra. Þar eru matvöru -vefnaðar - og búsáhaldadeild til húsa og í eldra húsinu er rekin bygg- ingarvörudeild. Kaupfélagið á dótturfyrirtækið Hrað- frystihús Drangsnes, það rekur fiskvinnslu, rækju- verksmiðju og stærsta slátur- hús á Vestfjörðum. Það á einnig meirihluta í Hólma- drangi h.f. sem á meirihluta í Drangavík. Það má því segja að verslun sé blómleg á Hólmavík í dag, hundrað árum eftir að Kristján 9. lög- gilti hana sem verslunarstað. Brynjólfur Sæmundsson oddviti flutti hátíðaræðu og sagði m.a. annars frá sam- þykktum hreppsnefndar sem gerðar voru á hátíðafundi fyrr um daginn. Sú fyrri var samþykkt um að gefa út bók um Hólmavík. Hólmvíking- Þann 3. janúar 1890 gaf Kristján 9. út lög um að Hólmavík væri löggiltur verslunarstaður enda þótt ar væri að vísu enginn íbúi. kringum 1880 var þar byggt einn bær en hann fór í eyði ísafjarðarkaupstaður Hússtjórnarskólinn Ósk í vetur verður boðið upp á eftirtalin nám- skeið: - Almenn matreiðsla - matreiðsla fyrir kokka á bátum - vefnaður - fatasaumur - bútasaumur - keramik - postulínsmálun - framreiðsla og borðskreytingar - sjávarréttir - pottréttir - kjötréttir - smáréttir - ábætisréttir - síldarrétt- ir - ostaréttir - gerbakstur - glóðarsteiking - heilsufæði - smurt brauð. Upplýsingar og pantanir í síma 3025. Skólastjórí <*> JD Tískuverslunin Caskó Mjallargötu 5, ísafirði, S 4420 meiriháttar ÉTSALA HEFST Á FÖSTUDAG. Erum með meðal annars: Gallabuxur frá kr. 590.- Dömublússur fra kr. 500.- Herraskyrtur fra kr. 500.- og'margt margt fleira. Sjón er sögu ríkari. Opið mánud.-fimmtud.frákl. 13-18 föstudagafrákl. 13-20 laugardagafrákr. 10-14.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.