Morgunblaðið - 30.12.2020, Side 2

Morgunblaðið - 30.12.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is „Ég hélt það væri verið að rukka mig eða eitthvað, mér datt ekki í hug að þetta væri neitt svona,“ sagði Helga Sóley Torfadóttir, áskrifandi að Morgunblaðinu, þegar hún tók við vinningi sínum í gær í áskrifendaleik blaðsins og bílaumboðsins Öskju. Helga var dregin út í happdrætt- inu 17. desember sl. en allir áskrif- endur voru í pottinum. Hún hreppti glæsilegan rafbíl af gerðinni Honda e. Bíllinn var svo afhentur í Öskju, umboði Honda-bifreiða, í gær. Helga Sóley hefur í raun verið áskrifandi að Morgunblaðinu alla sína ævi. „Fyrst voru það foreldrar mínir og síðan tók ég bara við,“ sagði hún. Fyrir á Helga fjögurra ára gaml- an bíl en þessi á eftir að koma að góðum notum. Hún býst við því að selja gamla bílinn, enda langar hana að læra vel á þann nýja. Helga hefur aldrei áður keyrt rafbíl en var þó far- in að hugsa um að einhvern tímann í framtíðinni yrði hún komin á slíkan bíl. Honda e er hannaður með þétt- býlisnotkun að leiðarljósi og knúinn hreinni raforku úr náttúru Íslands. Akstursdrægni bílsins er allt að 220 km sem er nægileg drægni til viku- legs aksturs innan borgarmarkanna. Magnús E. Kristjánsson, for- stöðumaður sölu- og markaðssviðs Árvakurs, afhenti Helgu Sóleyju lyklana að bílnum. „Morgunblaðið og Askja tóku höndum saman í þessu áskrift- arhappdrætti. Morgunblaðið kann virkilega vel að meta áskrifendur sína og alltaf gaman að geta farið í svona samstarf og gefa áskrifendum möguleika á að vinna svona frábær- an bíl. Morgunblaðið þakkar Öskju kærlega fyrir þetta samstarf á sama tíma og það óskar Helgu Sóleyju innilega til hamingju með bílinn,“ sagði Magnús við afhendinguna. Rafbíll Magnús E. Kristjánsson afhendir Helgu Sóleyju Torfadóttur glænýjan Hondu e, rafbíl. Vinningshafinn hélt það væri verið að rukka sig  Vann Hondu-rafbíl í áskrifendaleik Morgunblaðsins Vinningshafi Helga Sóley hæstánægð með nýja bílinn. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Boðað blíðvirði á nýársnótt gefur til- efni til að ætla að mikil svifryks- mengun af völdum flugelda verði á höfuðborgarsvæðinu á nýársnótt og fram eftir fyrsta degi ársins. Á und- anförnum árum hafa um 600 tonn af skoteldum verið flutt inn árlega, en svifryksmengun vegna flugelda telst bæði varasöm og heilsuspillandi, segir í tilkyningu frá Reykjavíkur- borg. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga rétt frá flugeldarusli. Hávaði vegna flugelda verður oft mikill og því eru gæludýraeigendur hvattir til að huga vel að dýrum sín- um, segir í áminningum bæði frá borginni og Matvælastofnun. Best er að halda köttum inni dagana í kring- um áramót og hafa hunda ávallt í ól þegar þeim er hleypt út. Fólk með viðkvæm öndunarfæri, hjarta- og æðasjúkdóma og börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir svifryki. Æskilegast er fyrir þennan hóp að vera innandyra þegar mest gengur á í kringum miðnættið og loka glugg- um. Eftir áramótin verður flugelda- rusl víða. Reykjavíkurborg hvetur fólk því til að tína sprekið saman og setja í rusladalla, sem eru fyrir al- mennt sorp. sbs@mbl.is Flugeldamengun líkleg á nýársnótt Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Seyðfirðingar geta átt von á því að rýma þurfi hluta byggðar allt fram á vor hið minnsta ef umhleypingar eru í veðri. Helgast það af því að stór fleki losnaði frá skammt frá þeim stað þar sem stóra aurskriðan féll fyrir um ellefu dögum. Veðurstofan fylgist náið með ástandinu og búast má við hreyfingum í hlíðunum fyrir ofan byggð næstu mánuði. „Ef að Veðurstofan metur það sem svo að það þurfi að rýma getur vel verið að það verði gert. Það verð ur þó sennilega ekki á sama skala og núna. Utan við stóru skriðuna eru enn laus jarðlög sem losnuðu frá. Þegar veðurspá er vond og að- stæður óhagstæðar þá getur vel ver- ið að rýmt verði,“ segir Björn Odds- son fagstjóri hjá almanna- varnardeild ríkislögreglustjóra. Hefur hann stýrt 22 fundum með lögreglunni á Austurlandi, sveitarfé- lagi og stofn unum þeirra síðustu vikur. Svæðið sem um ræðir er að mestu leyti fyrir ofan verkstæði og skemm- ur. Björn útilokar þó ekki að íbúa- byggð sé einnig undir. Veðurstofan sendi fleiri ofanflóða- sérfræðinga til Seyðisfjarðar í gær til að meta aðstæður í skriðusárinu og þar í kring. Engar breytingar að ráði frá því fyrir jól í Botnabrún Í gærkvöldi barst svo tilkynning frá almannavarnardeild ríkislög- reglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi þess efnis að rýmingum á svæðinu yrði aflétt að hluta. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands könnuðu aðstæður í Botnabrún í gær og ekki var að sjá neinar breytingar að ráði frá því fyrir jól. Einnig höfðu hreyfingar verið mældar daglega voru þær litlar sem engar. Því var talið að stöðugleiki hafi aukist nægi- lega mikið til þess að hægt væri að aflétta ferkari rýmingu. Enn er rým- ing í gildi á ákveðnu svæði en íbúar fjögurra gatna máttu í gærkvöldi snúa heim. Staðan í farvegi stóru skriðunnar og í nágrenni verður skoðuð frekar í dag. Allir upp á tærnar í þíðu Hann áréttar þó að aðstæður nú séu með ágætum. „En það má bú- ast við því í umhleypingum fram á vor að einhverjar hreyfingar verði í hlíðinni. Ef við segjum sem svo að spáð verði þíðu í mars apríl, þá munu allir fara upp á tærnar,“ segir Björn- .Hreinsun hófst í gær á þeim svæð- um þar sem það þykir óhætt. Enn er ekki hafið hreinsunarstarf á því svæði sem stóran skriðan féll. End- anlegt umfang þeirra skemmda sem orðið hafa á húsum er því óljóst eins og sakir standa. Helgast það m.a. af því skoðunarmenn frá Náttúruham- faratryggingum Íslands hafa ekki komist inn á svæðið til að meta end- anlegt tjón. Ýmist er um að ræða alt- jón að ræða eða að hús hafi skemmst án þess að þau séu sýnilega ónýt. Aflétta rýmingu á stærra svæði  Seyðfirðingar gætu þurft að rýma hús fram á vor  Áfram í gildi hættustig almannavarna á Seyðisfirði  Íbúar fjögurra gatna fengu að snúa heim í gær  Fleiri ofanflóðasérfræðingar hafa skoðað svæðið Morgunblaðið/Eggert Aurskriður Eyðilegging á gömlum reisulegum húsum á Seyðisfirði er sorg- leg staðreynd í kjölfar aurskriða sem féllu skömmu fyrir jól fyrir austan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.