Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 4

Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Svartur/ Dark Ash Walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. 5th wheel í palli. VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate 2500 Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed Automatic transmission. 6 manna. Heithúðaður pallur. VERÐ 11.290.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 Ford F-350 XLT 6-manna Litur: Carbon Black/ Walnut að innan. 2020 GMC Denali, magn- aðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.190.000 m.vsk 2020 GMC Denali Ultimate 3500 ATH. ekki „verð frá“ Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Hún fer bara vel af stað, fólk tekur vel í það að mæta fyrr og dreifa álag- inu til þess að það sé ekki örtröð svona á síðasta degi,“ segir Þór Þor- steinsson, formaður Landsbjargar, í samtali við Morgunblaðið, spurður um gengi flugeldasölu björgunar- sveitanna sem hófst á mánudaginn. „Það er bara heilmikil bjartsýni og ég er búinn að heyra í fólki svona hringinn um landið. Þetta lítur bara vel út,“ bætir hann við. Rótarskot eru sem fyrr einnig í boði fyrir fólk sem hefur ekki hug á að skjóta upp flugeldum en vill samt sem áður styrkja starf björgunar- sveitanna. „Þau eru bara fjáröflun sem er skemmtileg og góð viðbót við flug- eldana og nýr valkostur. Fólk tekur vel í þetta og sérstaklega gaman að sjá fólk koma inn á sölustaði björg- unarsveitanna sem jafnvel hefur aldrei gert það áður,“ segir Þór. Meðalár í útköllum hjá björgunarsveitum landsins Þór segir að árið sem senn er að líða hafi verið meðalár í útköllum hjá björgunarsveitunum. Covid hafi ekki haft úrslitaáhrif á annir björg- unarsveitanna en þó sett svip á starfsemi þeirra. „Sem betur fer hefur ekki verið mikið um Covid-mál á okkar könnu þrátt fyrir að við séum vissulega skrifaðir inn í viðbragðsáætlun al- mannavarna við heimsfaraldri inflú- ensu,“ sagði Þór. Útköll hafi verið að einhverju leyti tæknilega erfiðari vegna Covid, setja þurfti upp skilrúm í ökutækj- um og stundum þurfti að skipta upp sveitum til þess að fá ekki inn hóp- smit í heilu björgunarsveitirnar. Þá hafi Íslendingar stundað mikla úti- vist í sumar, en Íslendingar hafa alltaf verið stærsti hópurinn sem björgunarsveitirnar þjónusta. Aftur á móti hefur stórum bílslysum fækk- að og aðkomu björgunarsveitanna að þeim, sem má líklega rekja til fækkunar ferðamanna. Verkefni sem björgunarsveitirnar hafa sinnt á árinu eru að sögn Þórs um 1.300, en meðaltalið er á milli 1.200 og 1.500 á ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg Styrkur Flugeldasala björgunarsveitanna gengur að sögn formanns vel og bjögunarsveitarfólk fullt bjartsýni. Flugeldasala björgunar- sveitanna fer vel af stað  Formaður Landsbjargar kveðst bjartsýnn á sölu í ár Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tekið er á veru Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði í lögum um fé- lagið, ekki í þjónustusamningi, að sögn Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Hún segir þó að við gerð nýs þjónustusamnings hafi ráðherra og útvarpsstjóri í fyrsta sinn gefið út yfirlýsingu um starfsemi Rúv á auglýsingamarkaði. Með því sé þessi þáttur betur skýrð- ur en áður hafi verið gert. Nefnir Lilja að í yfirlýsingunni fel- ist ákveðnar væntingar um hegðun Rúv á auglýsingamarkaði. Segir að verðskrá Rúv og afsláttarkjör eigi að vera opinbert plagg sem birtist á vef þess. Tekur ráðherra fram að hún telji að auglýsingatekjur Ríkis- útvarpsins hafi aldrei verið lægri að raungildi en nú stefni í. Eins og annars staðar á Norðurlöndunum Spurð hvort hún telji að Rúv sé of fyrirferðarmikið á þessum markaði rifjar Lilja upp þau ummæli sín að vera ríkisfjölmiðilsins á auglýsinga- markaði eigi að vera með sama hætti og sambærilegra miðla annars stað- ar á Norðurlöndunum. Ef dregið verði úr fyrirferð Rúv til samræmis því sem algengast er í hinum ríkj- unum þurfi jafnframt að tryggja fjármögnun almannaþjónustu Ríkis- útvarpsins. „Stóra málið er stóru alþjóðlegu efnisveiturnar. Ég hef talað fyrir því að við skattleggjum einhliða þær auglýsingar sem þær selja hér. Við eigum að stíga stórt skref í því efni og vera hugrökk,“ segir Lilja. Varð- andi vanda einkarekinna fjölmiðla bætir hún því við að mikilvægt sé að lögfesta fjölmiðlafrumvarpið. Í því felist stuðningur við fjölmiðlana. Skýra betur veru Rúv á markaði  Hvetur til skattlagningar efnisveitna Morgunblaðið/Ómar RÚV Félagið verður á auglýs- ingamarkaði þó með breyttu sniði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.