Morgunblaðið - 30.12.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Um leið og við óskum ykkur gleðilegrar
hátíðar viljum við þakka fyrir ánægjuleg
viðskipti á árinu sem er að líða
- Rut og Silja
Gleðilega hátíð
Opnum aftur 4. janúar
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 5151
tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Þjónustuaðilar IB Selfossi
Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
STIGA
ST5266 P
40 ár
á Íslandi
Hágæða
snjóblásarar
Fjölbreytt úrval
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
VETRARSÓL er umboðsaðili
Gulltryggð gæði
Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
en til kl. 23 og kalla ekki á mikið eft-
irlit og/eða löggæslu.“
Húsið í Pósthússtræti 5 var reist
árið 1915. Það er í klassískum stíl og
er síðasta verk Rögnvalds Ólafs-
sonar, sem kallaður hefur verið fyrsti
íslenski arkitektinn. Þetta er þriðja
pósthúsið við samnefnda götu. Þegar
Íslandspóstur hætti rekstri pósthúss
þar í nóvember 2018 lauk einnar og
hálfrar aldar póststarfsemi við göt-
una. Fram kemur á heimasíðu Reita
að til leigu séu tvær efstu hæðir húss-
ins, 2. og 3. hæð. Hæðirnar eru um
325 fermetrar og henta vel fyrir
skrifstofur.
Pósthússtræti 3, gamla lögreglu-
stöðin, er hlaðið steinhús, reist árið
1882. Bæði húsin eru friðuð.
inu og verði þessar byggingar hluti
mathallarinnar.
Erindið var tekið fyrir á afgreiðslu-
fundi byggingarfulltrúa Reykjavíkur
22. desember sl. en afgreiðslu þess
var frestað til næsta fundar. Reitir
sóttu upphaflega um leyfi fyrir mat-
höll árið 2019 en sækja nú um breyt-
ingu á áður samþykktu erindi.
Starfsemi veldur ekki ónæði
Veitingastaðirnir í mathöllinni
verða í flokki ll, tegund C. Í reglugerð
er þessari tegund veitingastaða þann-
ig lýst: „Umfangslitlir áfengisveit-
ingastaðir þar sem starfsemin er ekki
til þess fallin að valda ónæði í ná-
grenninu, svo sem með háværri tón-
list, og afgreiðslutími er ekki lengri
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Svokallaðar mathallir hafa rutt sér til
rúms í Reykjavík á undanförnum ár-
um og nú hillir undir eina slíka í mið-
bænum.
Reitir fasteignafélag hf. hafa sótt
um leyfi til þess að breyta núverandi
starfsemi á 1. hæð gamla pósthússins
í Pósthússtræti 5 í mathöll með alls
12 rekstrareiningum.
Staðurinn á að rúma samtals 161
gest í sæti á 1. hæð og 28-50 í kjall-
ara, eða allt að 211 gesti. Einnig er
sótt um leyfi til að endurbyggja 132
fermetra skúr í porti gömlu lög-
reglustöðvarinnar baka til og bæta
við 140 fermetra glerbyggingu í port-
Morgunblaðið/Ómar
Pósthúsið gamla Matur og drykkir koma í stað bréfa og böggla áður fyrr ef áformin um breytingar ganga eftir.
Mathöll í miðbæinn
Sótt um leyfi til veitingastarfsemi í gamla pósthúsinu
Tólf veitingastaðir og yfir 200 gestir á tveimur hæðum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á skyri undir merkjum Íseyjar á
erlendum mörkuðum hefur gengið
ágætlega þrátt fyrir erfiðar ytri að-
stæður, að sögn Ara Edwald, fram-
kvæmdastjóra Íseyjar útflutnings
ehf. Salan hefur gefið eftir á hefð-
bundnum mörkuðum vegna að-
stæðna en nýir markaðir vegið það
upp. Útflutningur á skyri sem fram-
leitt er á Íslandi hefur verið aukinn
og mun aukast enn frekar á komandi
ári.
Mesti vöxturinn hefur verið í
Benelux-löndunum og þá einkum í
Hollandi þar sem sala á Íseyjarskyri
hefur meira en tvöfaldast á milli ára.
Einnig hafa markaðir í Frakklandi,
Slóveníu og Danmörku bæst við. Í
Danmörku er samstarfsaðili Íseyjar
með mjólkursamlag sem framleiðir
skyr fyrir flesta markaði Evrópu. Nú
hefur Ísey gert samning við tvær
danskar verslunarkeðjur, Meny og
Spar, um að kaupa skyr beint frá Ís-
landi.
Í verslanir í Bæjaralandi
Einnig er verið að undirbúa út-
flutning á skyri frá Íslandi á markað
í Þýskalandi og telur Ari að skyrdós-
irnar verði komnar í hillur verslana
Edeka-verslanakeðjunnar í Bæjara-
landi snemma á næsta ári.
Ísland hefur um fjögur þúsund
tonna tollfrjálsan kvóta til útflutn-
ings á skyri til Evrópusambandsins.
Fyrirhugað var að nota hann til út-
flutnings til Bretlands en Brexit setti
strik í þann reikning. Í staðinn hefur
verið samið um framleiðslu á skyri
fyrir Bretlandsmarkað í Wales og
hefst framleiðsla þar á næstu vikum.
Meiri sala er á fituríkari mjólkur-
afurðum hér innanlands en vörum
með meira prótíninnihaldi. Verður
því misvægi í efnainnihaldi þeirra
mjólkurafurða sem hér er markaður
fyrir og þarf að flytja út það prótín
sem eftir situr. Það er gert í formi
undanrennudufts eða annarra vara
sem lágt verð fæst fyrir á heims-
markaði. Meira fæst fyrir mjólkur-
prótínið með því að nýta það í skyr
og því hefur verið aukin áhersla á út-
flutning á skyri sem hér er framleitt.
Stefnir í að flutt verði út um 850 tonn
af skyri á þessu ári og að hann aukist
í 1.400 tonn á næsta ári.
Heildartekjur aukist
Tekjur af framleiðsluleyfum hafa
ekki aukist í þeim takti sem búist var
við. Munar mest um Japan. Þar hef-
ur kórónuveirufaraldurinn hægt á
markaðssetningu á Íseyjarskyri.
Framleiðsla hjá samstarfsaðila Ís-
eyjar á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu
hefst væntanlega í apríl.
Ari segir að þótt sala á skyri
standi nokkurn veginn í stað og leyf-
istekjur séu minni en reiknað var
með hafi tekjur fyrirtækisins aukist
nokkuð, aðallega vegna lækkunar á
gengi íslensku krónunnar.
Nýir skyrmarkaðir
vegið samdrátt upp
Mesta aukning í sölu á Íseyjarskyri í ár er í Hollandi
Stórmarkaður Skyrið frá Ísey er komið í hillur fjölda verslana og fer enn
víðar á næsta ári. Þá bætist meðal annars Þýskaland við.