Morgunblaðið - 30.12.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Immortelle blómið.
Fyrir 200.000 árum síðan bjó náttúran til betri valkost en tilbúið retínól.
Nú hefur nýtt ofurseyði sem unnið er úr lífrænum Immortelle blómum verið bætt við formúlu Divine kremsins.
Það virkar jafn vel og retínól sem gefur húðinni fyllingu og sléttir hana en er jafnframt mildara fyrir húðina.
Hver þarf tilbúið innihaldsefni þegar náttúran getur gert enn betur?
a 7 40 wwKringl n 4-12 | s. 57 -70 | w.loccitane.is
aeilíf !
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Bólusetningarherferð Evrópusam-
bandsins (ESB) fór misjafnlega hratt
af stað en við blasir umfangsmikil og
flókin skipulagning til að bólusetning
nógu margra af 450 milljónum íbúa
sambandsins nái því takmarki sínu að
gera út af við kórónuveirufaraldur-
inn.
Það óhapp vildi til við bólusetningu
á elliheimili í Stralsund á norður-
strönd Þýskalands að átta starfs-
menn fengu fimmfaldan skammt af
bóluefninu. Leggja þurfti fjóra þeirra
inn á spítala og sögðust yfirvöld vona
að þeir biðu ekki tjón af mistökunum.
Í suðurhluta Þýskalands varð að end-
ursenda um 1.000 skammta sem
reyndust hafa verið fluttir í venjuleg-
um nestisboxum sem héldu bóluefn-
inu ekki nógu köldu. Á Ítalíu kvört-
uðu stjórnmálamenn undan því að
Þýskaland hafi fengið stærri skammt
af bóluefninu en sanngjarnt væri.
Á nýársdag er ætlunin að ESB hafi
borist 12,5 milljónir skammtar og
þeir verði 200 milljónir í september.
Eða til að bólusetja 100 milljónir
manns af 450 milljónum íbúa ESB.
Evrópusambandið og þýsk stjórn-
völd staðhæfa að nóg verði til af bólu-
efni gegn kórónuveirunni. Tafir á
undirritun samninga um kaup á því
mun hins vegar þýða að elixírinn
muni berast seint og jafnvel að ónóg
verði af bóluefninu. ESB hafnaði
kauprétti að mörg hundruð milljón-
um skammta til viðbótar, að sögn
tímaritsins Der Spiegel.
Að sögn ritsins var andstaða við að
nýta valréttin aðallega í Frakklandi,
en samið hafði verið við franska lyfja-
fyrirtækið Sanofi um framleiðslu á
300 milljónum skammta af bóluefni
þess, en notkun þess hefur ekki hlotið
samþykki enn. Franska stjórnin vildi
ekki taka tilboði BioNTech því það
hefði þýtt að ESB hefði alls keypt 800
milljónir skammta af því.
Þróunarferli Sanofi/GSK bóluefn-
isins fór af sporinu eftir að þátttak-
endur í einni prófun þess fengu
minni skammt en til stóð. Mælingar
á þeim voru því ógiltar og varð San-
ofi að aflýsa þriðja þróunarfasa bólu-
efnisins sem ráðgerður var nú í des-
ember. Vonast fyrirtækið til að geta
endurtekið annan fasann í febrúar.
Spiegel fer hörðum orðum um mis-
tök ESB við innkaup á bóluefninu.
Upphaflega tilkynnti heilbrigðis-
ráðuneytið í Berlín að líklega bærust
Þjóðverjum aðeins um 400.000
skammtar og þeir yrðu orðnir 11 til
13 milljónir í mars nk., eða aðeins
brot af því sem færu til Bandaríkj-
anna. Spiegel segir þetta hættulega
stöðu en nú hefði þýska stjórnin áttað
sig og frá í síðustu viku hafi hún
gagnráðstafanir sem hafi einkennst
af æðibunugangi. Eru hafnar viðræð-
ur við framleiðendur bóluefna í þeim
tilgangi að fjölga skömmtunum og fá
þá fyrr.
Segir Spiegel að yfirvöld í Berlín
hafi áttað sig allt of seint. Mánuðum
saman hafi legið fyrir að önnur lönd
myndu fá mun meira bóluefni en
Þjóðverjar og hefja bólusetningu á
undan þeim. Fyrir bragðið yrðu að-
gerðir þeirra gegn kórónuveirufar-
aldrinum skilvirkari og árangursrík-
ari.
„Í Berlín og höfuðstöðvum ESB í
Brussel var of lítið gert og allt of
seint og það var jafnan réttlætt með
sjálfsánægjusvörum: Í Evrópu eru
lyf prófuð betur og af meiri ná-
kvæmni en annars staðar í veröld-
inni, og gnótt er bóluefnis, þökk sé
góðri skipulagningu, segir í Der Spie-
gel.
Bólusett á mismunandi hraða í ESB
Evrópusambandið hafnaði boði um valrétt á 500 milljónum aukaskammta bóluefnis Þýsk stjórn-
völd staðhæfa að nóg verði til af bóluefni gegn kórónuveirunni Umfangsmikil og flókin skipulagning
AFP
Stunga Hafin var bólusetningarherferð gegn kórónuveirufaraldrinum í Argentínu í gær með rússneska bóluefnið
Spútník fimmta að vopni. Hér fær starfsmaður sjúkrahússins í borginni Rosario í héraðinu Santa Fe sinn skammt.
Hinn annálaði
franski tísku-
hönnuður Pierre
Cardin er látinn.
Hann var 98 ára
og lést á sjúkra-
húsi í Neuilly við
París í gær.
Cardin er
eignað að hafa
gjörbylt tísku-
fatahönnun með framúrstefnu-
legum línum og formum á sjöunda
og áttunda áratug nýliðinnar aldar.
Sköpun hans þótti draumórakennd
en honum er þakkað að hafa fært
tískuna frá elítunni og nær alþýð-
unni.
Hann fór og inn á áður óþekktar
brautir með því að selja afnotarétt
af nafni sínu til að merkja ýmsan
varning, svo sem sólgleraugu.
Pierre Cardin fæddist á Ítalíu
1922 en flutti til Frakklands barn
að aldri. agas@mbl.is
FRAKKLAND
Tískukóngurinn
Cardin látinn
Pierre Cardin
Jarðskjálfti af stærð 6,4 skók Kró-
atíu í gær og höfðu fleiri en 20
hlotið meiðsli og sjö manns látist
er Morgunblaðið fór í prentun.
Fram kemur í umfjöllun frétta-
stofu Reuters að viðbragðsaðilar
hafi dregið fólk úr byggingum
sem hrundu eða hlutu aðrar
skemmdir í borginni Petrinja og
öðrum smærri bæjum. Þá hafi her-
inn verið kallaður út til að veita
aðstoð.
Skjálftinn fannst í höfuðborg-
inni Zagreb og jafnvel í Vín höf-
uðborg Austurríkis. Í Slóveníu
ákváðu stjórnvöld að slökkva á
kjarnorkuverum í öryggisskyni.
KRÓATÍA
Sjö látið lífið í mikl-
um jarðskjálfta
Útkall Margir tóku höndum saman.
AFP