Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 13
Sjálfsagt munu
stjórnmálamenn, með
dyggri aðstoð hag-
fræðinga, aldrei
hætta að deila um
hvernig skynsamleg-
ast sé að bregðast við
efnahagslegum sam-
drætti. Jafn fráleitt
og það hljómar eru
margir þeirrar skoð-
unar að best sé að
minnka súrefnið til atvinnulífsins
og heimilanna, með hækkun
skatta og gjalda. Ekki eru mörg
ár síðan ríkisstjórn brást við
efnahagslegu áfalli með þeim
hætti. En jafnvel einfaldur lær-
dómur vefst fyrir mörgum, ekki
síst þeim sem telja ríkið upphaf
og endi alls – hina eiginlegu upp-
sprettu verðmæta.
Í ágúst síðastliðnum ítrekaði
ég, í grein á síðum Morgunblaðs-
ins, að það vitlausasta sem hægt
væri að gera í efnahagslegum
þrengingum vegna faraldurs kór-
ónuveirunnar væri að „freista
þess að auka tekjur ríkisins með
þyngri álögum á fyrirtæki og/eða
heimili“. Í þeim leik tæki ég ekki
þátt: „En að opna fyrir súrefn-
iskrana skatta og gjalda er ekki
aðeins skynsamleg leið heldur
arðbær fjárfesting til framtíðar
fyrir ríkissjóð og almenning.
Tekjugrunnur ríkis og sveitarfé-
laga verður styrkari til lengri
tíma og ráðstöfunartekjur launa-
fólks meiri. Þetta er ekki flókn-
ara.“
Allt frá því að Sjálfstæðisflokk-
urinn tók sæti í ríkisstjórn 2013
hefur verið unnið að því að lag-
færa skattkerfið, – gera það
samkeppnishæfara við önnur lönd
hvort heldur þegar kemur að fyr-
irtækjum eða einstaklingum. Á
stundum hefur gengið hægt að
koma umbótum í gegn enda engu
líkara en öskrandi ljón standi í
veginum. En það hefur miðað í
rétta átt.
Þegar kemur að umbótum í
skatta- og gjaldakerfi ríkisins
reyndist árið 2020 gott – eig-
inlega sérlega gott þegar erfiðar
aðstæður eru hafðar í huga. Sam-
hliða umfangsmiklum aðgerðum
til að styðja beint við atvinnulífið
og heimilin, hafa mikilvæg skref
verið tekin til að auka samkeppn-
ishæfni landsins til frambúðar.
Hér verða nokkur dæmi nefnd.
Tekjuskattur
einstaklinga lækkar
Vegna breytinga á lögum um
tekjuskatt sem Bjarni Benedikts-
son beitti sér fyrir sem fjár-
málaráðherra lækkaði tekjuskatt-
ur einstaklinga á árunum 2014 til
2018 um 25 milljarða á árs-
grundvelli með tilheyrandi hækk-
un ráðstöfunartekna
heimilanna.
Enn róttækari
kerfisbreytingar í tíð
sitjandi ríkisstjórnar
hafa tryggt frekari
lækkun með innleið-
ingu nýs lægra skatt-
þreps. Fyrra skrefið
var tekið í byrjun
þessa árs og það síð-
ara verður stigið í
byrjun nýs árs. Með
breytingunum verður
tekjuskattur ein-
staklinga um 21 milljarði króna
lægri á ári en að óbreyttum
reglum. Þessi lækkun kemur
fyrst og síðast þeim til hagsbóta
sem eru í lægstu tekjuhópunum
en fólk með meðaltekjur nýtur
einnig góðs af.
Líkt og ég þreytist ekki á að
taka fram hef ég aldrei verið hrif-
inn af margþrepa tekjuskatts-
kerfi. Miklu fýsilegra er að hafa
eitt skattþrep með breytilegum
persónuafslætti sem lækkar eftir
því sem tekjur hækka. En í ljósi
þess að kerfisbreytingarnar
tryggðu lækkun tekjuskatts
studdi ég þær heilshugar.
Tryggingagjald lækkar enn
Þriðja árið í röð lækkar trygg-
ingagjaldið og verður 6,10% á
komandi ári. Þar með hefur gjald-
ið lækkað um 0,75%-stig á kjör-
tímabilinu og um 1,59%-stig frá
því að Sjálfstæðisflokkurinn tók
sæti í ríkisstjórn og Bjarni Bene-
diktsson settist í stól fjár-
málaráðherra árið 2013. Þetta er
liðlega 20% lækkun á gjaldi sem
leggst á launagreiðslur fyrirtækja
og er sérstaklega íþyngjandi fyrir
lítil fyrirtæki og fyrirtæki í vexti.
Lækkun tryggingagjalds á nýju
ári nemur um fjórum milljörðum
króna.
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
Endurgreiðsluhlutfall virðis-
aukaskatts vegna vinnu á bygg-
ingarstað við nýbyggingu, viðhald
og endurbætur íbúðarhúsnæðis
var hækkað úr 60% í 100% á liðnu
vori. Heimild til endurgreiðslu
var jafnframt víkkuð út og tekur
m.a. til frístundahúsnæðis, mann-
virkja í eigu tiltekinna fé-
lagasamtaka og bílaviðgerða.
Það þarf ekki miklar rann-
sóknir til að komast að því að
hækkun á endurgreiðslu heppn-
aðist sérlega vel. Létti undir með
einstaklingum og félagasamtökum
og studdi vel við atvinnu iðn-
aðarmanna.
Endurgreiðslan hefur verið
framlengd út komandi ár og er
reiknað með að alls verði um níu
milljarðar króna endurgreiddir
vegna þessa. Í huga þess er hér
skrifar eru rök til þess að fast-
setja fulla endurgreiðslu til ein-
staklinga til frambúðar, enda
skattaleg ívilnun sem allir hagn-
ast á.
Byggt undir framtíðina
Í fjárlögum fyrir yfirstandandi
ár var gert ráð fyrir að endur-
greiðslur til fyrirtækja vegna
rannsókna- og þróunarkostnaðar
yrðu liðlega 3,9 milljarðar. Auk-
inn kraftur í nýsköpun og laga-
breytingar hafa hins vegar leitt
til þess að endurgreiðslurnar
verða mun umfangsmeiri eða
tæpir 5,2 milljarðar. Á komandi
ári er reiknað með að endur-
greiðslur nemi um 10,2 millj-
örðum.
Í raun er endurgreiðsla vegna
rannsókna og þróunar fjárfesting
í framtíðinni – fjárfesting í nýjum
tækifærum og störfum, þar sem
lagður er grunnur að fjölbreytt-
ara atvinnulífi. Stefna stjórnvalda
undir forystu Þórdísar Kolbrúnar
Reykfjörð Gylfadóttur nýsköp-
unarráðherra er að styðja við ný-
sköpun á markaðslegum for-
sendum, ekki aðeins með
endurgreiðslum heldur einnig
hækkun á framlögum til
Tækniþróunarsjóðs og með stofn-
un Kríu. Fyrr á þessu ári var
skattaafsláttur til einstaklinga
vegna fjárfestinga í nýsköp-
unarfyrirtækjum hækkaður tíma-
bundið úr 50% í 75% af fjárhæð
fjárfestingar. Samhliða voru fjár-
hæðarmörk hækkuð úr tíu millj-
ónum í 15 milljónir.
Stefnan er að bera ávöxt. Fjár-
festar hafa lagt nýsköpunarfyr-
irtækjum til um 17 milljarða
króna á þessu ári og þar af eru
um 12 milljarðar erlent áhættufé.
Hækkun frítekjumarks
fjármagnstekna
Frítekjumark fjármagnstekna
verður tvöfaldað – hækkað úr 150
í 300 þúsund krónur á komandi
ári. Um leið nær frítekjumarkið
til arðs og söluhagnaðar skráðra
hlutabréfa auk vaxtatekna.
Hækkun frítekjumarksins kemur
sér hlutfallslega best fyrir þá ein-
staklinga og hjón sem hafa tak-
markaðar fjármagnstekjur en
nýtist þeim ekki sem njóta fjár-
magnstekna af óskráðum fé-
lögum, s.s. arðgreiðslna einka-
hlutafélaga. Með þessu er ýtt
undir sparnað og hvatt til fjár-
festinga einstaklinga í skráðum
félögum. Þetta er í samræmi við
Eftir Óla Björn
Kárason » Þegar kemur að um-
bótum í skatta- og
gjaldakerfi ríkisins
reyndist árið 2020 gott –
eiginlega sérlega gott
þegar erfiðar aðstæður
eru hafðar í huga.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Lækkun skatta og skýrir valkostir
stefnu ríkisstjórnarinnar um að
auka beina þátttöku almennings í
atvinnulífinu, en þess er að vænta
að fjármálaráðherra leggi fram
frumvarp á nýju ári um skattaaf-
slátt einstaklinga vegna hluta-
bréfakaupa. (Þess ber að geta að
frumvarp sama efnis er til með-
ferðar hjá efnahags- og við-
skiptanefnd þingsins, en flutn-
ingsmenn eru sjö þingmenn
Sjálfstæðisflokksins og er sá er
þetta skrifar fyrsti flutnings-
maður).
Um það verður ekki deilt að
skilvirkur hlutabréfamarkaður er
óaðskiljanlegur frá öflugu efna-
hagslífi og hagvexti þjóða.
Skattalegir hvatar til að styðja
við skipulegan hlutabréfamarkað
og tryggja fyrirtækjum greiðan
aðgang að áhættufjármagni, ekki
aðeins frá stofnanafjárfestum
heldur ekki síður með beinni
þátttöku almennings, munu skipta
miklu í viðspyrnu efnahagslífsins
á komandi árum.
Samkvæmt tölum Hagstofunnar
hefur atvinnuvegafjárfesting
dregist verulega saman á þessu
ári. Á þriðja ársfjórðungi nam
samdrátturinn um 21,8% borið
saman við sama tímabil fyrra árs.
Fyrstu níu mánuði ársins er áætl-
að að atvinnuvegafjárfesting hafi
dregist saman um 9,9% að raun-
gildi borið saman við fyrstu níu
mánuði ársins 2019. Í þjóð-
hagsspá Hagstofunnar er reiknað
með að atvinnuvegafjárfesting
dragist saman um 12,6% á árinu,
sem kemur í kjölfar mikils sam-
dráttar á síðasta ári eða 18%.
Samdráttur í fjárfestingum
fyrirtækja er áhyggjuefni enda
forsenda framþróunar í atvinnu-
lífinu og þar með verðmætasköp-
unar samfélagsins. Það umhverfi
lágra vaxta sem við búum við í
dag ætti að öðru jöfnu að örva
fjárfestingu og því er samdráttur
í fjárfestingu meira áhyggjuefni
en annars. Auðvitað spilar óvissa
um þróun efnahagsmála hér inn í
en skattaleg umgjörð skiptir
einnig miklu. Hár fjármagns-
tekjuskattur ýtir til dæmis ekki
undir fjárfestingu heldur dregur
úr henni.
Ranglæti leiðrétt
Það var sérstaklega ánægjulegt
að taka þátt í því skömmu fyrir
jól að leiðrétta áralangt ranglæti
vegna skattlagningar söluhagn-
aðar frístundahúsa með tilheyr-
andi skerðingum á réttindum al-
mannatrygginga. Frá og með
komandi áramótum verður sölu-
hagnaður frístundahúsnæðis, sem
nýtt hefur verið til eigin nota,
verið í eigu viðkomandi í sjö ár
eða lengur og fellur undir stærð-
armörk laga, ekki lengur skatt-
lagður og viðkomandi mun ekki
sæta skerðingum á réttindum al-
mannatrygginga. Þessi breyting
kemur ekki síst eldri borgurum
til góða.
Annað réttlætismál var hækkun
skattfrelsismarka erfðafjárskatts
úr 1,5 milljónum í fimm milljónir
króna. Hækkunin nýtist sér-
staklega einstaklingum sem fá út-
hlutaðan arf úr eignaminnstu
dánarbúunum en miðað við álagn-
ingu 2020 eru um 23% dánarbúa
undir fimm milljónum að heild-
arverðmæti.
Sá er þetta skrifar lagði fram
frumvarp um þrepaskiptingu
erfðafjárskatts, sem náði ekki
fram að ganga. Þar var lagt til að
skatturinn yrði 5% af eignum
dánarbús undir 75 milljónum
króna og 10% af því sem umfram
er. Með samþykkt frumvarpsins
hefði tvöföldun erfðafjárskatts ár-
ið 2010 gengið að mestu til baka.
Hitt er svo annað að við eigum að
taka frændur okkar í Noregi og
Svíþjóð til fyrirmyndar í þessum
efnum, en þar er erfðafjárskattur
ekki lagður á.
Kosningaár
Hér hefur fyrst og síðast verið
horft til lækkunar skatta sem
náðst hefur á árinu sem senn er
að baki. Hitt er rétt að ýmis gjöld
hafa verið hækkuð (ekki síst í
takt við þróun verðlags) en sú
hækkun er aðeins brot af þeim
lækkunum hafa náðst fram. Við
stefnum því í rétta átt. Sú stað-
reynd stendur hins vegar óbreytt
að Ísland er háskattaland í al-
þjóðlegum samanburði.
Eitt stærsta verkefnið á nýju
kjörtímabili verður að tryggja
samkeppnishæfni atvinnulífsins
og þar skiptir skattbyrði miklu en
ekki síður hvaða og hvernig
skattar eru lagðir á. Ein tegund
skattheimtu kann að verða skyn-
samleg á meðan önnur drepur allt
í dróma. Það skal t.d. viðurkennt
að ég hef vaxandi efasemdir um
álagningu kolefnisgjalds með
þeim hætti sem gert hefur verið.
Vísbendingar eru um að kolefn-
isgjaldið, undir hatti grænna
skatta, skili ekki þeim árangri
sem stjórnvöld stefna að.
Komandi ár er kosningaár. Í
september leggja kjósendur lín-
urnar. Í einfaldleika sínum er val-
ið nokkuð skýrt; lægri skattar
eða hærri, aukin samkeppn-
ishæfni eða minni, meiri verð-
mætasköpun eða samdráttur, ný-
sköpun og einkarekstur eða aukin
ríkisumsvif. Með vali sínu ráða
kjósendur því hvort við sem sam-
félag höfum efni á því að halda
áfram að byggja upp öflugt vel-
ferðarkerfi og góð lífskjör.
Að þessu sögðu óska ég les-
endum og landsmönnum öllum
gleðilegs árs. Megi komandi ár
verða öllum gæfuríkt.
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Þessa dagana er
loksins að rofa til á
Íslandi. Fyrsta lota
bóluefnis er komin til
landsins og sól farin
að hækka á lofti.
Skín við sólu
Skagafjörður er
þekktur ljóðabálkur
þjóðskáldsins Matt-
híasar Jochumssonar
og full ástæða er til
þess fyrir landsmenn að taka
undir þá lofgjörð nú um hátíð-
arnar. Því veldur sú myndarlega
matargjöf sem Kaupfélag Skag-
firðinga færði þeim sem minna
mega sín, og um leið þjóðinni
allri, í aðdraganda jóla og ára-
móta.
Enda þótt kaup-
félagið kysi að vanda
að halda sér til hlés
frá umræðu og at-
hygli greindi
Morgunblaðið frá því
höfðinglega framtaki
KS að gefa hjálp-
arstofnunum fjörutíu
þúsund máltíðir til
útdeilingar í aðdrag-
anda jólahátíðar. Ég
hef fengið um það
staðfestar upplýs-
ingar að þörfin hafi
verið enn meiri en ætlað var og
kaupfélagið einfaldlega heitið
hjálparstofnunum því að brúa það
bil sem þyrfti til þess að allir sem
á þurftu að halda gætu fengið
matarþörf uppfyllta það sem eftir
lifði ársins. Mér er sagt að þann-
ig hafi framlag kaupfélagsins um
það bil tvöfaldast. Um áttatíu
þúsund matarpakkar hafi á síð-
ustu vikum ratað til heimila bág-
staddra úr þessari miklu matar-
kistu sem Skagafjörður svo
sannarlega er. Það hefði orðið
heimsfræg frétt hefði t.d. Bill Ga-
tes, einn ríkasti maður heims,
gefið þjóð sinni, Bandaríkja-
mönnum, 80 milljónir máltíða fyr-
ir hátíðarnar. Jafnframt hefðu ís-
lenskir fjölmiðlar örugglega
margsagt frá gjafmildi auðkýf-
ingsins. En hlutfallslega er gjöf
kaupfélagsins af þessari stærð-
argráðu.
Rekstur Kaupfélags Skagfirð-
inga hefur alla tíð verið til fyr-
irmyndar. Órofa samstaða skag-
firskra bænda í 130 ára sögu
kaupfélagsins hefur lagt grunn að
gjöfulli búmennsku sem nú orðið
teygir sig langt á haf út og færir
íslenskri þjóð mikil verðmæti úr
auðlindum lands og sjávar. Öllum
nema trúföstum ESB-sinnum er
nú orðið fullljóst hve sjálfbærni
Íslendinga í matvælaframleiðslu
er mikilvæg. Hrunið kenndi okk-
ur það og nú Covid-faraldurinn.
Við eigum bændur og sjómenn
sem eru líftrygging okkar fyrir
búsetu hér. Fiskurinn, kjötið,
mjólkurvörurnar og grænmetið
okkar er talið í fremstu röð að
heilnæmi og gæðum í veröldinni.
Við getum lært margt af Skag-
firðingum og skagfirska efna-
hagssvæðinu. Ekki einungis af
leiðum þeirra til vandaðra bú-
skaparhátta heldur einnig af
höfðingsskap þeirra og lítillæti.
Þessi mikla matargjöf, sem hér
verður ekki reynt að meta til
fjár, ætti að vera þjóðinni allri
áminning um að standa vörð um
sjálfbæra og verðmætaskapandi
framleiðslu heilnæmra matvæla í
þeirri íslensku náttúru sem okkur
hefur verið treyst til þess að nýta
og varðveita í senn. Þar eru og
verða íslenskir bændur, hinir
einu og sönnu landverðir okkar, í
fremstu röð.
Eftir Guðna
Ágústsson »Mér er sagt að fram-
lag kaupfélagsins
hafi um það bil tvöfald-
ast. Um áttatíu þúsund
matarpakkar hafi á síð-
ustu vikum ratað til
heimila bágstaddra.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður og
ráðherra.
Tröllaukin matargjöf bjargaði jólum margra