Morgunblaðið - 30.12.2020, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2020
Tilkynningar
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness samþykkti 15. desember s.l. að auglýsa
tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits skv. 43. gr.
og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingar felast m.a. að í stað tveggja hæða með inndreginni
þriðju hæð, er gert ráð fyrir þremur hæðum með inndreginni
fjórðu hæð meðfram Dalbraut, þar sem gafl fjórðuhæðar er 9 m.
frá norðurgafli hússins. Nýtingarhlutfall lóðar verður 1,73 í stað
1,53. Engin breyting er gerð á skilmálum deiliskipulagsins.
Tillagan verður til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar,
www.akranes.is frá og með 2. janúar til og með 18. febrúar
2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna
þarf að skila skriflega eigi síðar en 18. febrúar 2021 í þjónustuver
Akraneskaupstaðar eða á netfangið skipulag@akranes.is
Sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs Akraneskaupstaðar.
Félagsstarf eldri borgara
Seltjarnarnes Nú hefur verið gert hlé á dagskrá félags og
tómstundastarfsins fram yfir áramót. Hvetjum þó fólk til að nýta sér
sundstaði, heilsuleikfimi í útvarpi og sjónvarpi og nýta gott veður
þegar það býðst til útiveru. Kaffikrókurinn er opinn alla virka daga kl.
10.30 og þá eingöngu fyrir íbúa Skólabrautar. Starfsfólk félags og
tómstundastarfs eldri bæjarbúa óskar ykkur öllum gleðilegrar hátíðar.
Allt félags og tómstundastarf eldri bæjarbúa á
Seltjarnarnesi liggur niðri yfir hátíðarnar. Kaffikrókurinn er þó opinn
alla virka daga kl. 10.30 eingöngu fyrir íbúa Skólabrautar.
Óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Smá- og raðauglýsingar
þú það sem
á FINNA.is
með
morgun-
✝ Guðrún Er-lendsdóttir
fæddist á Ak-
ureyri 23. nóv-
ember 1949. Hún
varð bráðkvödd á
heimili sínu 16.
desember 2020.
Foreldrar hennar
voru Erlendur
Snæbjörnsson, f. í
Svartárkoti í
Bárðdælahreppi
1916, d. 2001, og Hrefna Jóns-
dóttir, f. á Pálmholti í Arn-
arneshreppi í Eyjafirði 1926,
d. 2013. Systkini Guðrúnar:
Sólveig, f. 1945, Jón, f. 1948,
d. 1996, Lovísa, f. 1951, Óskar,
Högnadóttir Fuentes, f. 7. apr-
íl 2012. 3) Ólafur Hrafn, f. 4.
maí 1981, í sambúð með Sig-
ríði Halldórsdóttur, sonur
þeirra Halldór Hrafn, f. 7. jan-
úar 2020.
Guðrún varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1969. Að stúdentsprófi loknu
lærði hún meinatækni við
Tækniskóla Íslands og starfaði
sem meinatæknir og lífeinda-
fræðingur í Reykjavík, á Ak-
ureyri og í Eskilstuna í Sví-
þjóð.
Útför Guðrúnar fer fram
frá Akureyrarkirkju 30. des-
ember kl. 13.30.
Streymt verður á Facebook:
Útfarir í Akureyrarkirkju –
beinar útsendingar.
stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/yybfk6f4
Virkan hlekk á steymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
f. 1952, d. 2009,
Snæbjörn, f. 1956,
d. 2013 og Hörð-
ur, f. 1965.
Guðrún giftist
24. júní 1973
Hilmi Hrafni Jó-
hannssyni, f. 5.
janúar 1949. Börn
þeirra eru: 1)
Helga, f. 5. mars
1972, í sambúð
með Jacek Koz-
lowski, börn þeirra eru Ísak,
f. 17. janúar 2011, og Rakel, f.
26. ágúst 2013. 2) Högni, f. 27.
maí 1974, kvæntur Karina
Marlene Fuentes Morales,
dóttir þeirra Isidora Guðrún
Taktu þér tíma
Taktu þér tíma,
tak hann á bak þér og finn,
hve þungur hann er.
Farðu varlega með hann,
hann kveinkar sér,
róaðu hann.
Svalt herbergið andar,
blómaangan liðinna ára
liggur í loftinu,
þú dokar við, og dag einn
er tíminn horfinn
og herbergið er autt.
(Bo Carpelan/ þýð.
Bragi Sigurjónsson)
Dag einn er tíminn horfinn og
herbergið er autt. Guðrún Er-
lendsdóttir skólasystir mín varð
bráðkvödd 16. desember sl. Líf-
kraftur hennar var svo mikill að
dauði hennar kom á óvart þótt
hún hefði átt við langvarandi
veikindi að stríða.
Guðrún var fædd og uppalin á
Akureyri í stórum systkinahópi.
Hún hét eftir ömmu sinni, Guð-
rúnu Árnadóttur, húsfreyju í
Svartárkoti í Bárðardal og á Ás-
láksstöðum í Kræklingahlíð. Við
vorum því bæði komin út af Jóni
eldra Jónssyni á Mýri í Bárðar-
dal. Við gengum saman í skóla, í
barnaskóla, gagnfræðaskóla og
menntaskóla og urðum stúdentar
saman frá Menntaskólanum á
Akureyri 1969. Einhvern veginn
æxlaðist það svo að í landsprófi
og á menntaskólaárunum vorum
við samrýnd, kannski af því við
áttum bæði heima á Norður-
brekkunni, kannski af því ein vin-
kvenna Guðrúnar bjó eitt árið
heima hjá fjölskyldu minni,
kannski af því við vorum bæði úr
stórum systkinahópi en helst held
ég það hafi verið gleðin sem
fylgdi Guðrúnu sem dró vinskap
okkar saman. Móður minni þótti
líka gaman að hitta þessa rösku
og glaðværu frænku sína. Guðrún
var dugleg eins og hún átti kyn
til. Foreldar hennar komu upp
mörgum börnum, byggðu fjöl-
skyldu sinni falleg hús og bjuggu
þeim gott heimili. Guðrún bar
þess vitni að hafa notið öryggis í
æsku og gekk ótrauð menntaveg-
inn. Létt skap sitt hafði hún líka
sem heimanfylgju og það aflaði
henni vinsælda og auðveldaði
henni lífið.
Eftir stúdentspróf lagði Guð-
rún stund á lífeindafræði og vann
lengi sem meinatæknir á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri, þar sem Guðmundur Karl
Pétursson, ömmubróðir hennar,
hafði lengi verið farsæll og vin-
sæll yfirlæknir. Ég fluttist hins
vegar burt og samskipti okkar
Guðrúnar minnkuðu. En seinna
varð ég svo lánsamur að vinna
með dóttur hennar um langt
skeið. Hún hefur hlotið dugnað-
inn og lundina frá móður sinni.
Vegna samvinnu okkar fylgdist
ég með Guðrúnu í veikindum
hennar en átti þess einnig kost að
hitta hana, endurnýja vináttuna
og efla minningarnar frá því þeg-
ar við vorum ung saman í skóla á
Akureyri.
En nú andar svalt herbergið
aðeins angan rauðu rósarinnar
sem Guðrún bar á útskriftardegi
okkar á Akureyri, 16. júní 1969,
heitasta degi sumarsins, í sólskini
og sunnanvindi. Tíminn til að
hittast og minnast er horfinn,
herbergi Guðrúnar autt. Ég votta
fjölskyldu hennar innilega samúð
mína.
Úlfar Bragason.
Hún stendur okkur ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum, Guðrún
Erlendsdóttir, kær vinkona sem
við kveðjum hér. Við kynntumst á
Akureyri, vorum saman allan
skólaferilinn og eftir MA var
haldið til Reykjavíkur á vit nýrra
ævintýra. Allan þennan tíma var
Guðrún okkar haldreipi og jafn-
vel fyrirmynd á stundum.
Hver myndi ekki vilja vera bú-
in að lesa allt efnið snemma, dag-
inn fyrir stúdentsprófin? Kannski
nýta tímann sem myndaðist til að
sækja sér smá lit með gönguferð
upp í fjall? Hver myndi ekki vilja
hafa gengið fram á klappirnar við
fótstall Helga magra og Þórunn-
ar hyrnu til að fá að hlusta á Guð-
rúnu leggja á ráðin um hvert
næst skyldi halda?
Ein unaðsminningin er stans í
Varmahlíð á puttaferðalagi frá
Reykjavík, þegar Skagafjörður-
inn breiddi út faðminn móti vin-
konunum. Þá var talað um fram-
tíðina, hugsanlega ferð til Ísraels,
þar sem vinna á samyrkjubúum
gat verið kostur. Ekki varð af
ferð til Austurlanda nær, en
skroppið til Spánar og vissulega
þurfti ekki alltaf að fara langt.
Reykjavík hafði ýmislegt sem
heillaði.
Hvar sem Guðrún fór og á öll-
um tímabilum lífs síns hafði hún
frumkvæði á sinn nærfærna hátt.
Ef hugurinn var eitthvað þungur
og kvíði sótti að hjá þeirri sem
fjarri var sínum, var ekkert mál
að draga fram dýnu og búa henni
næturstað. Ef ein var langdvölum
í útlöndum, greip hún til pennans
til að senda hvatningu.
Það sem ber hæst á milli okkar
Guddu var trúnaður. Hún var
alltaf trygg og góð. Við hefðum
treyst henni fyrir öllu. Hún stóð
við orð sín og brást ekki trausti.
Hjálpsemi og góðmennska við
okkur og styrkur hennar í öllum
veikindunum er aðdáunarverður,
einnig trygglyndi hennar og
hjálpsemi við Hilmi. Við dáðumst
mikið að því. Síðan var hún mjög
skemmtileg og var aldrei fyndin á
annarra kostnað. Hún var sönn
og góð manneskja, æskuvinkona
sem við erum ævarandi þakklátar
fyrir að hafa átt.
Guðrún elskaði að lesa Davíð
Stefánsson, sá skáldinu auðvitað
bregða fyrir á Akureyri. Við velj-
um lokaorð ljóðsins Vorboði. Þar
yrkir hann til konunnar sem
gerði líf hans bjartara, rétt eins
og Guðrún auðgaði líf okkar vin-
kvennanna.
Og svipur hennar sýndi
hvað sál hennar var góð.
Það hló af ást og æsku,
hið unga villiblóð.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor,
því hún var mild og máttug
og minnti á – jarðneskt vor.
Við sendum eiginmanni henn-
ar Hilmi, börnunum Helgu,
Högna, Ólafi Hrafni og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Guðrúnar
Erlendsdóttur.
Fanny Ingvarsdóttir,
Gunnlaug Hanna
Ragnarsdóttir, Helga
Heimisdóttir, Margrét
Hallsdóttir, Þórhalla
Gísladóttir.
Guðrún
Erlendsdóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát